Verktækni - 2015, Síða 52

Verktækni - 2015, Síða 52
52 VERKTÆKNI 2015/20 TÆKNI- OG vísINdaGreINar hönnun og búnaði þotnanna. Þessi uppákoma varð Flugleiðum gíf­ urlega kostnaðarsöm enda á mesta annatíma félagsins. Næsta vetur ákvað stjórn félagsins að hætta rekstri DC­10 breiðþotunnar og tókst sem betur fer í mars 1980 að losna við hana til Air Florida. Að tillögu Arnar Ó. Johnson aðalforstjóra samþykkti stjórn Flugleiða í ársbyrjun 1979 heimild til að ganga til samninga um kaup á nýrri Boeing 727­208A þotu, sem ætlað var að efla þjónustu félagsins í Evrópufluginu. Var stefnt að afgreiðslu hennar í maí 1980 og mér falin umsjón með gerð tæknilýsingar og annan flugrekstrarlegan og tækni­ legan undirbúning. Þotan var síðan afhent í Seattle 30. maí 1980, skráð sem TF­FLI, og kom til Íslands morguninn eftir. Árið 1984 var framleiðslu Boeing 727 gerðarinnar hætt en þá höfðu verið smíðaðar 1832 slíkar vélar. Árið 1988 seldu Flugleiðir þotuna til erlends félags, en leigðu hana af því til október 1989, þegar hún var endanlega afskráð hér á landi. Samtímis komu nýju Boeing 727­208A þotunnar árið 1980 var skollin á alvarleg kreppa í alþjóðlegum flugrekstri og allar frekari hug­ myndir um endurnýjun flugflota Flugleiða því lagðar á hilluna í bili. Við tók nokkurra ára tímabil, sem fól fyrst og fremst í sér alls kyns til­ færslur á DC­8, 727 og F27 grunngerðum félagsins. Flugleiðir keyptu til dæmis fjórar notaðar F27­200 skrúfuþotur frá Korean Airlines á hagstæðum kjörum. Þá var það mikið happ félagsins árið 1985 þegar keyptar voru þrjár DC­8­63 þotur af KLM, sem alla tíð höfðu fengið fyrsta flokks viðhald. Hver þota kostaði aðeins um þrjár milljónir dollara, en vegna gildistöku strangari hávaðareglna í Bandaríkjunum þurfti að eyða álíka upphæð í að búa þær hljóðdeyfum. Þetta reyndist samt vera afbragðs góð fjárfesting, því fjórum árum síðar voru þær seldar fyrir um 11 milljón dollara hver og sá hagnaður nýttist vel við kaup á nýjum þotum fyrir félagið. Heildarendurnýjun flugflotans Í júlí 1985 ákvað stjórn Flugleiða að ráða Sigurð Helgason yngri sem forstjóra félagsins. Meðal þeirra verkefna, sem hann lagði áherslu á, var að formlega yrði hugað að endurnýjun flugflota félagsins. Fól hann mér að vinna að tillögum á því sviði. Á þessum árum var innan stjórn­ ar félagsins viss togstreita um framtíð Norður­Atlantshafsflugsins. Vildu sumir stjórnarmenn draga úr því, eða jafnvel hætta með öllu. Með hliðsjón af þessu ákvað stjórnin að í fyrsta áfanga skyldi hugað að nýjum þotum, sem eingöngu yrði ætlað að þjóna Evrópufluginu. Miða skyldi við 135­165 farþegasæti. Á stjórnarfundi 16. desember 1986 var formlega samþykkt að óska eftir skýrslu um helstu valkosti nýrra flugvéla til Evrópuflugs og að slík skýrsla verði lögð fyrir stjórnarfund 5. febrúar 1987. Gekk það eftir og var skýrsla mín: „Endurnýjun flugvéla Flugleiða - 1. áfangi, Evrópuflugið“, kynnt á þeim fundi. Í henni var fjallað um sjö flugvéla­ gerðir, Airbus A320­200, Boeing 737­300, 737­400 og 7J7­150, og McDonnell Douglas MD­82, MD­83 og MD­92X. Í niðurstöðum skýr­ slunnar var lagt til, „að stjórn Flugleiða heimili að gengið verði til samninga við Boeing um kaup tveggja 737-400 flugvéla, sem afhentar verði vorið 1989.“ Þá var jafnframt i lok skýrslunnar lagt til „að hrað- að verði könnun á valkostum varðandi flugskýli á Keflavíkurflugvelli, með það fyrir augum að slíkt flugskýli verði tiltækt eigi síðar en vorið 1989.“ Málið kom til lokameðferðar á stjórnarfundi 29. maí 1987. Þar var samþykkt að eftirfarandi tillaga hljóti endanlegt samþykki stjórnar Flugleiða á fyrirhuguðum hátíðarfundi hennar á Akureyri 3. júní 1987 en þá var þess jafnframt minnt þess að 50 ár voru liðin frá stofnfundi Flugfélags Akureyrar: „a) Stjórn Flugleiða samþykkir að gerður verði samningur við Boeing um kaup tveggja flugvéla af gerðinni B737-400, er komi til afgreiðslu í apríl og maí 1989. Jafnframt verði tryggður kaupréttur á tveimur öðrum flugvélum sömu gerðar, er kæmu til afgreiðslu í mars 1990 og mars 1991. b) Forstjóra félagsins er veitt heimild til undirritunar kaupsamnings og annara gagna í þessu sambandi, og með venjulegum fyrirvörum um samþykki stjórnvalda, samþykki stjórnar á endanlegum kaup- samningi, svo og útvegun fjármagns til kaupanna. Frestur til útveg- unar fjármagns er til 30. september 1987.„ Aðalfulltrúi Boeing á hátíðarfundinum var Borge Boeskov, V.P. European Sales. Hann var fæddur á Íslandi árið 1937, móðir hans íslensk, en faðirinn Lauritz Boeskov garðyrkjumeistari. Svo vill til, að Lauritz var meðal stofnenda Loftleiða 3. apríl 1944. Fjölskyldan fluttist til Danmerkur 1948. Að loknu stúdentsprófi fór Borge til Bandaríkjanna, lauk þar prófi í flugvélaverkfræði, og réði sig til Boeing. Þegar Flugfélag Íslands keypti Boeing 727­108C þotu sína 1967 vann Borge að afkastaútreikningum fyrir hana og kom nokkrum sinnum til Íslands vegna þess. Nýja Boeing 737­400 gerðin fór í sitt fyrsta flug 19. febrúar 1988. Í lok ársins var fyrsta „High Gross Weight“ útgáfa hennar framleidd, en Flugleiðir höfðu einmitt pantað þá undirgerð, sem var með rúmlega 68 tonna flugtaksþunga. Flugleiðir voru áttunda félagið til að panta Boeing 737­400. Nú, þegar stefnan hafði verið sett á gerðina fyrir Evrópuflug Flugleiða, var aftur hægt að hefja nánari úttekt á möguleg­ um arftaka DC­8 í N.­Atlantshafsfluginu og einnig fyrir F27 í innan­ landsfluginu. Fljótlega varð vel ljóst, að raunhæft kæmi aðeins ein ný þotugerð til álita í stað DC­8, þ.e. Boeing 757­200. Ekki síst vegna þess að frá og með árinu 1989 gæti Boeing boðið hana með töluvert hærri flugtaks­ þunga og meira flugdrægi og jafnframt með samsvarandi sérbúnaði Við afhendingu Boeing 727-208A þotunnar TF-FLI í Seattle 30. maí 1980 flutti forstjóri Boeing,”T” Wilson, óvænt ræðu. Á myndinni eru einnig Sigurður Helgason, Jóhannes R.Snorrason og Leifur Magnússon. Við „Roll-Out” athöfn nýju Boeing 737-400 þotunnar í Seattle 26. janúar 1988. Í fyrsta skipti er merki íslensks flugfélags á slíkri flugvél. Leifur Magnússon, Oddrún Kristjánsdóttir, Sigurður Helgason, Unnur Einarsdóttir og Borge Boeskov.

x

Verktækni

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.