Verktækni - 2015, Page 66

Verktækni - 2015, Page 66
66 VERKTÆKNI 2015/20 TÆKNI- OG vísINdaGreINar Á mynd 3 sést myndræn skilgreining á hættusvæði ljósboga ásamt þremur öðrum fjarlægðum sem eru notaðar við mat á hættum við vinnu í nánd við spennuhafandi búnað. Þessar fjarlægðir eru háðar rekstrarspennu búnaðar. Hættusvæði ljósboga (Blossavarnarmörk): Er það svæði þar sem hitaorka við ljósbogaatvik er meiri en 1,2 cal/cm2 og getur þar af leið­ andi valdið lífshættulegum brunasárum. Nálgunarmörk: Aðeins mega þjálfaðir fagmenn fara inn fyrir þessi mörk, óþjálfuðum er þó heimilt að fara inn fyrir þessi mörk en þó einungis undir ströngu eftirliti þjálfaðra fagmanna. Hættumörk: Aðeins fagmenn með rétta þjálfun mega fara yfir þessi mörk ef réttur varnarbúnaður gegn snertispennu er notaður. Bannmörk: Aðeins fagmenn með rétta þjálfun, eða sérútbúin verk­ færi, mega fara yfir þessi mörk, og þá er vinna þeirra skilgreind sem vinna undir spennu. Nánari upplýsingar og skilgreiningar um nálgunarmörk og hættu­ mörk er að finna í ÍST EN 50110­1. Nánari upplýsingar um bannmörk er að finna í NFPA 70E. Ef starfsfólk fer inn fyrir blossvarnarmörk við ljósbogahættu skal það skv. NFPA 70E vera í fatnaði sem þolir orkuþéttni ljósboga í vinnufjar­ lægð. Staðallinn skilgreinir fjóra2 PPE (e. perspnal protective equip­ ment) flokka. Hver PPE flokkur lýsir nauðsynlegum öryggisfatnaði og búnaði sem starfsmaður skal ávallt klæðast við vinnu innan hættu­ svæðis ljósboga, ef spennuhafandi leiðari eða leiðarakerfi er óvarið. Merkispjaldið hér að neðan skilgreinir þessa fjóra flokka og lýsir þeim öryggisfatnaði og búnaði sem klæðast skal eftir þörfum. 2 Í eldri útgáfum 70E eru skilgreindir 5 flokkar. Í 2015 útgáfa 70E var PPE flokkur 0 fjarlægður. Miða skal við ljósbogastraum í hönnun - 11/0,4 kV spennar Eins og áður var greint frá þá getur verið töluverður munur á ljósboga­ og skammhlaupsstraumi á kerfum með rekstrarspennu undir 1 kV. Ljósbogastraumur getur því blekkt varnarbúnað sem er stilltur til þess að leysa út skammhlaupsstraum. Varnarbúnaðurinn getur jafnvel séð strauminn sem vægan yfirstraum og því tekið nokkurn tíma að rjúfa straum á bilanasvæðinu. Til þess að skoða þessi áhrif betur er sett upp dæmi um algeng 11/0,4 kerfi. Skoðuð eru áhrif varnarbúnaðar við ljósbogaatvik á 400 V hlið kerfisins með tilliti til mismunandi spennastærða sem varin eru með bræðivörum. Í eldri kerfum sem sett voru í rekstur fyrir aldar­ mót og eru ennþá mörg óbreytt í rekstri, var algengt að verja spenni og þar með 400 V hluta kerfisins á þennan hátt. Í dag þekkist þessi hönnun að einhverju leiti, en flest ný kerfi eru hönnuð með varnarlið­ um og aflrofum háspennumegin við spenni. Samskonar áhrif er einnig að finna í þeim kerfum þar sem stillingar varnarliða eru yfirleitt mið­ aðar við að leysa út skammhlaupsstrauma á sem skemmstum tíma, en taka ekki mið af ljósbogastraumi. Auðvelt er þó að breyta stillingum varnarliða og í flestum tilfellum er svigrúm til þess að minnka stillingar svo miðað sé við áætlaðan ljósbogastraum. Til þess að skoða hvernig bræðivar á 11 kV hlið spennis bregst við ljósbogastraum á 400 V hlið spennis er tekið dæmi um 800 kV spenni Mynd 3: Skilgreining á öryggisfjarlægðum í myndrænu formi. Mynd 4: Ljósbogaatvik á lágspennuhlið 800 kVA spennis sem er varinn með bræðivari. Reiknað er með að netið hafi óendanlega skammhlaupsorku.

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.