Morgunblaðið - 22.06.2021, Blaðsíða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 2021
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Reykjafold 20, Reykjaví, 19,78% ehl., fnr. 204-2455, þingl. eig. Sig-
urður Helgi Sighvatsson, gerðarbeiðandi Arion banki hf., fimmtu-
daginn 24. júní nk. kl. 10:30.
Berjarimi 22, Reykjavík, fnr. 203-9947, þingl. eig. Arnar Þór Helga-
son, gerðarbeiðendur Sýslumaðurinn á Norðurlandi ves og Lands-
bankinn hf., fimmtudaginn 24. júní nk. kl. 11:00.
Rafstöðvarvegur 1A, Reykjavík, fnr. 229-8153, þingl. eig. Kristinn L
Brynjólfsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf. og Reykja-
víkurborg, fimmtudaginn 24. júní nk. kl. 13:30.
Rafstöðvarvegur 1A, Reykjavík, fnr. 229-8067, þingl. eig. Kristinn L
Brynjólfsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf. og Reykja-
víkurborg, fimmtudaginn 24. júní nk. kl. 13:40.
Rafstöðvarvegur 1A, Reykjavík, fnr. 225-8526, þingl. eig. Kristinn L
Brynjólfsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf., Reykjavíkur-
borg og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., fimmtudaginn 24. júní nk.
kl. 13:50.
Rafstöðvarvegur 1A, Reykjavík, fnr. 225-8527, þingl. eig. Kristinn L
Brynjólfsson, gerðarbeiðendur Vörður tryggingar hf., Reykjavíkur-
borg og Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf., fimmtudaginn 24. júní nk.
kl. 14:00.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
21. júní 2021
Tilkynningar
Deiliskipulag
fyrir Haukabrekku í Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar samþykkti á fundi
sínum 20. maí 2021 að auglýsa tillögu að
deiliskipulagi sem nær til hluta Haukabrekku
í Stóra-Langadal í samræmi við 41. gr. skipu-
lagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið afmarkast af Stóru-Langa-
dalsá til vesturs og brekkurótum Grásteins-
fjalls að austan og nær yfir bæjarstæði
Haukabrekku og nánasta umhverfi þess.
Í gildi er deiliskipulag fyrir svæðið með sjö
frístundalóðum frá 1999 en hið nýja fyrir-
hugaða deiliskipulag felur í sér breytta
afmörkun þeirra og í einu tilfelli nýja stað-
setningu. Núgildandi deiliskipulag verður
fellt úr gildi með gildistöku nýs deiliskipu-
lags.
Tillagan er sett fram á uppdrætti dags.
26.03.2021 og greinargerð dags. 26.03.2021
og munu gögnin vera til sýnis frá 22. júní
2021 á skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11,
370 Búðardal.
Umsagnir, ábendingar og athugasemdir skal
vinsamlegast skilað til skriftstofu Dala-
byggðar í stjórnsýsluhúsinu að Miðbraut 11
Búðardal, eða á netfang embættis skipulags-
fulltrúa sveitarfélagsins: skipulag@dalir.is
fyrir 4. ágúst 2021
Þórður Már Sigfússon,
skipulagsfulltrúi
Uppboð
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Uppboð til slita á sameign verður haldið í aðstöðu
Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, Hlíðasmára 1,
Kópavogi þriðjudaginn 29. júní nk. kl. 09:30. á eftirfarandi
eign, sem hér segir:
Rjúpnabrekku Blakkur IS22025/16, enskur setter.
Greiðsla við hamarshögg !
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
9. júní 2021
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9-12.30. *Útifjör kl. 10.45-11.35,
hentar öllum, ókeypis. Félagsvist kl.13-15.45.Tálgað í tré kl. 13. Kaffi
kl.14.30-15.20. *Nánari upplýsingar í síma 411-2701 / 4112701. Allir vel-
komnir.
Árskógar Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl.
9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Sýning á
gömlum ljósmyndum kl. 13. Kaffisala kl. 14:30-15.30. Heitt á könn-
unni, allir velkomnir. Grímuskylda og það þarf að skrá sig í viðburði
eða hópa, sími 411-2600.
Bólstaðarhlíð 43 Morgunkaffi í kaffihorninu kl. 10.Tæknilæsi kl. 9-12
og 13-16. Leikfimi með Silju kl. 13. Opið kaffihús kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11.
Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Opin Lista-
smiðja kl. 13-15.30. Bónusrútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30.
Bókabíllinn kl. 14.45.
Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með-
læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45–15.15. Pool-hópur í Jóns-
húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Stólajóga kl. 11 í Jóns-
húsi. Smiðjan Kirkjuhvoli opin kl. 13–16.
Korpúlfar Útvarpsleikfimi kl. 9.45 í Borgum, botsía kl. 10. í Borgum.
Helgistund frá Grafarvogskirkju kl. 10.30 í Borgum. Hádegisverður
11.30 til 12.30. Spjallhópur, góð og gleðileg samvera í Borgum kl. 13 í
listasmiðju, allir velkomnir. Sundleikfimi með Brynjólfi í Grafarvogs-
sundlaug kl. 14. Kaffihúsið opið frá kl. 14.30 til 15.30, gaman að sjá
ykkur sem flest.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, trésmiðja kl. 9-
16, opin listasmiðja kl. 9-16, Dansleikfimi kl. 10.30, Fréttatími og spjall
kl. 12, Samverustund með djákna kl. 13, Bónusbíllinn kl. 15, Hug-
leiðslan kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í sundllaug Seltjarnarness kl. 7.15 og
18.30, kaffispjall í króknum frá kl. 9, pútt á flötinni við Skólabraut kl.
10.30.
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Móttöku-, brennslu– og orkunýtingarstöð
úrgangsefna í Vestmannaeyjum
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Vestmannaeyjabæjar er
einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur.
Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílar
Toyota Verso Live 5/2016. 7
manna. Ekinn aðeins 80 þús km.
Sjálfskiptur. Kemur frá góðu
heimili og er með topp þjónustu-
sögu. Verð 2.680.000,-
www.sparibill.is
Hátúni 6 A – sími 577 3344.
Opið kl. 12–18 virka daga.
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝
Guðberg Ellert
Haraldsson
fæddist í Reykjavík
30. september
1927. Hann lést 9.
júní 2021.
Guðberg var
sonur Haraldar
Jónssonar og Olgu
Eggertsdóttur.
Fyrri eiginkona
Guðbergs var Sig-
urlaug Júlíusdóttir,
f. 11.9. 1918, d. 20.8. 1991.
Afkomendur þeirra: 1) Har-
aldur, f. 1949, d. 18.2. 2005,
maki Ingibjörg
Guðbjartsdóttir,
börn þeirra eru
Guðbjartur, Guð-
berg Ellert, Bryn-
hildur Olga og Ingi
Valur. 2) Páll Jó-
hann, f. 1953, maki
Dóra Steinsdóttir,
dóttir þeirra er
Anna Lauga. Dæt-
ur Páls úr fyrri
samböndum eru
Lilja Hrönn og Kolbrún Eva.
Systir Guðbergs var Gyða, f.
1934, d. 1.3. 2002.
Eftirlifandi eiginkona Guð-
bergs er Regína Birkis f. 1.2.
1937. Börn Regínu úr fyrra
hjónabandi eru Gunnlaugur
Kristján Jónsson, Guðbjörg
Birkis Jónsdóttir og Dalla Rann-
veig Jónsdóttir.
Guðberg vann hjá Reykjavík-
urhöfn alla sína vinnutíð frá
1946-1999, fyrst sem lærlingur í
bifvélavirkjun og síðustu árin
sem yfirmaður bækistöðvar
Reykjavíkurhafnar.
Útförin fer fram frá Selja-
kirkju í dag, 22. júní 2021,
klukkan 13.
Ég man eins og það hafi gerst
í gær þegar ég sá Begga, eins og
við kölluðum hann alltaf, í fyrsta
skipti fyrir 36 árum en þá var ég
að leysa af hjá Reykjavíkurhöfn
á skrifstofunni þar sem móðir
mín var einkaritari hafnarstjóra
og Beggi var verkstjóri úti í Ör-
firisey. Góðmennska, ljúft við-
mót og stóísk ró var hans að-
alsmerki.
Beggi varð svo seinni maður
móður minnar tæpum áratug
síðar, en þau voru þá bæði búin
að missa maka sína. Það var
mikið gæfuspor fyrir mömmu og
Begga og líka fyrir okkur fjöl-
skylduna að fá þennan yndislega
mann í okkar hóp.
Við hjónin eignuðumst tvær
dætur eftir að mamma og Beggi
hófu sína sambúð og var Beggi
eini afinn sem þær áttu og var
hann þeim undurgóður afi eins
og þeim börnum sem við áttum
fyrir. Barnabörnin okkar Mar-
inós nutu líka góðs af því að eiga
Begga sem langafa.
Beggi missti son sinn Harald
2005, eftir stutt veikindi aðeins
56 ára að aldri, það var Begga
mikið áfall. Nokkru síðar spurði
ég Begga hvernig honum liði,
hann sagði: „Guðbjörg mín,
söknuðurinn er mikill en því mið-
ur get ég engu breytt sem orðið
er.“ Ég varð orðlaus yfir æðru-
leysi hans, en þarna var Beggi í
hnotskurn, vissi að hann réði
ekki yfir almættinu.
Samfylgd okkar fjölskyldunn-
ar með Begga spannaði tæpa
þrjá áratugi og aldrei bar
skugga á þá samfylgd. Hann var
móður minni mikil stoð og stytta
og áttu þau gott líf saman sem er
ómetanlegt.
Ég man tjaldferðirnar þeirra
með appelsínugult tjald frá
Seglagerðinni, þar sem þau ferð-
uðust um landið og tjölduðu með
prímus.
Við hjónin og fjölskyldan okk-
ar áttum því láni að fagna að
ferðast með mömmu og Begga
erlendis og eins ferðuðumst við
mikið saman innanlands á sumr-
in, betri ferðafélagi var vand-
fundinn.
Margar ferðirnar eru minnis-
stæðar, grillveislan í Torrevieja
með Halla, Ingu og fleiri fjöl-
skyldumeðlimum, fjölskyldu-
dvölin í Frakklandi um jólin uppi
í fjöllunum þar sem rafmagnið
fór af húsinu tíu mínútur í jól og
kalkúnninn ekki tilbúinn. Ferðin
okkar til Salo þegar Beggi varð
85 ára og dvöldum við þar tíu
saman í húsi, þar sem Beggi gaf
okkur yngra fólkinu lítið eftir
þegar kom að því að skoða og
ferðast um.
Einnig dvöldum við saman
flest jól og áramót heima hjá
okkur Marinó í Lindasmáranum.
Síðustu árin hefur Beggi verið
heilsuveill en alltaf hélt hann ró
sinni og kvartaði ekki. Mamma
og Beggi gengu samstiga sína
seinni ævigöngu, báru virðingu
hvort fyrir öðru, gættu hvort
annars og studdu. Síðasta ferðin
okkar með Begga var í maí í
fyrra, en þá fórum við dagsferð
austur fyrir fjall, borðuðum á
Matkránni, við mæðgur fórum í
blómainnkaup og Beggi og mað-
urinn minn skelltu sér í að skoða
nýbyggingar í Hveragerði á
meðan.
Aldur er afstæður, 93 ára lést
Beggi okkar en í mínum huga
var hann yngri, hann var minni
fjölskyldu ómetanlegur.
Það er mikill söknuður hjá
okkur fjölskyldunni að þurfa að
kveðja Begga sem átti svo stóran
þátt í okkar lífi.
Mætur maður er farinn á fund
feðra sinna, guð geymi þig, elsku
Beggi okkar, og takk fyrir sam-
fylgdina.
Aðstandendum Begga votta
ég samúð mína.
Guðbjörg Birkis Jónsdóttir.
Guðberg, eða Beggi eins og
hann var ávallt kallaður, var
sómamaður í alla staði, að mínu
mati laus við þá lesti sem því
miður há mörgum samferða-
manninum. Hann var snyrti-
menni með jafnaðargeð og ávallt
tilbúinn að rétta fram hjálpar-
hönd og aðstoða okkur í fjöl-
skyldunni. Ég kynntist Begga af
alvöru fyrir um það bil 30 árum
þegar hann og Regína tengda-
móðir mín hófu sambúð, bæði
búin að missa maka sína. Stelp-
urnar mínar þekktu ekki annan
afa en Begga og var það vel og
voru þær oft í pössun í Árskóg-
um hjá þeim og nutu frábærs at-
lætis og var Beggi í miklu uppá-
haldi hjá þeim. Við ferðuðumst
mikið saman, bæði hérlendis og
til útlanda, naut ég þess að
Beggi þekkti landið vel og leið-
beindi okkur gjarnan á stöðum
sem við höfðum ekki komið á áð-
ur. Við fórum um allt land og út í
eyjar, dvöldum viku í Hrísey,
heimsóttum Vigur og Flatey svo
lítið eitt sé nefnt. Beggi hafði
mikinn áhuga á bílum enda bif-
vélavirkjameistari og hafði starf-
að við það sem verkstjóri hjá
Reykjavíkurhöfn. Man ég að hér
á árum áður bárum við oft sam-
an bækur okkar um eyðslu á
bensíni þegar við vorum komnir í
náttstað og hafði Beggi alltaf
vinninginn í færri lítrum pr. 100
km. Hafði hann gaman af, enda
sennilega miklu betri bílstjóri en
ég. Einnig var hann kallaður til
eftir að hann var kominn á eft-
irlaun til að gera upp sögulegan
Mac-grjótflutningabíl sem sýnd-
ur hefur verið á Miðbakkanum á
hafnardeginum undanfarin ár.
Er hann nú sem nýr og á Beggi
stóran þátt í því, enda enginn
klárari í að endurgera þessar
fornu minjar um liðna tíð. Í upp-
hafi minntist ég á hjálpsemi
Begga sem var alltaf til staðar.
Vegna starfs míns þarf ég oft að
ferja bíla og það var alveg sama
hvenær ég hringdi í Begga –
seint að kvöldi eða snemma að
morgni – svarið var alltaf: „Ekk-
ert mál, Marinó minn, komdu
bara núna, ég verð kominn nið-
ur.“ Eins er mér minnisstætt
þegar var staðið í pallagerð í
garðinum í Lindasmáranum og
ég fékk mann til verksins, en
Beggi mætti og bauð fram krafta
sína og nutum við verkstjór-
ahæfileika hans og ávörpuðum
hann aldrei með öðru nafni en
„verkstjórinn“ meðan á verki
stóð, enda var hann það.
Með þessum fátæklegu orðum
kveð ég þennan aldraða höfð-
ingja, vin minn, sem gerði samt
aldurinn afstæðan – snyrtilegur,
teinréttur, með allt á hreinu,
Guðberg Ellert Haraldsson
ávallt. Ég bið algóðan Guð að
styrkja Regínu tengdamóður
mína í sorg sinni, sem og Pál son
hans og aðra aðstandendur.
Vertu sæll, Beggi, þar til við hitt-
umst aftur.
Marinó Björnsson.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr
minningargreinum til birting-
ar í öðrum miðlum nema að
fengnu samþykki.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda ör-
stutta kveðju, HINSTU
KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Myndir | Hafi mynd birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
skal senda hana með æviágripi í
innsendikerfinu. Hafi æviágrip
þegar verið sent er ráðlegt að
senda myndina á netfangið
minning@mbl.is
Minningargreinar