Morgunblaðið - 22.06.2021, Side 8

Morgunblaðið - 22.06.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 2021 Mjúkir og þægilegir fótlaga skór fyrir konur og karla frá spænska Bio inniskór Netverslun skornir.is SMÁRALIND www.skornir.is Verð8.995 Stærðir 36-46 3 litir Í Morgunblaðinu í dag er rættvið Karen Halldórsdóttur, bæjarfulltrúa í Kópavogi, um Borgarlínu í tilefni af bókun hennar á bæjarráðsfundi á dög- unum. Þar lýsir hún áhyggjum af því að enn sé ekki ljóst hver rekstrarkostn- aður Borgarlínu verði, „né hvort sveitarfélögunum sé einum ætlað að bera þann kostnað“. Þá minnir hún á að það sé ábyrgðarhluti að fara með fjármuni almennings, en sú ábyrgð virðist hafa gleymst í ákafanum við að ausa millj- arðatugum, eða þaðan af hærri fjárhæðum, í þennan risastræt- isvagn. Loks bendir Karen á að tillaga Áhugafólks um betri sam- göngur setji þær skyldur á kjörna fulltrúa að fjalla um hana. - - - Þetta er auðvitað hárréttábending hjá Karen og skilj- anlegar áhyggjur. Það hlýtur að vera einsdæmi að mál af slíkri stærðargráðu sé keyrt áfram jafn illa undirbúið, vanhugsað og órökstutt og Borgarlínan er. - - - Fyrir þær fjárhæðir sem ætl-unin er að sóa í Borgarlín- una er hægt að gera gríðarlegar umbætur í samgöngumálum á höfuðborgarsvæðinu, samhliða því að efla almenningssamgöngur á hagkvæman hátt. - - - Borgarlínan er hins vegar ein-ungis fjáraustur og skilar í besta falli litlu, sennilega engu og jafnvel minna en það í sam- göngubótum á svæðinu. - - - Hvernig má það vera að fleirikjörnir fulltrúar láti ekki í sér heyra en raun ber vitni? Karen Elísabet Halldórsdóttir Hvar eru fulltrúar skattgreiðenda? STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Reykjavíkurborg og Félag íslenskra landslagsarkitekta efna til hönnun- arsamkeppni um Lækjartorg og að- liggjandi gatnarými. Hópurinn sem kemur að vinningstillögunni mun fá alls sjö milljónir fyrir og hóparnir á bak við næstu tvær tillögur þar á eftir fá fimm milljónir hvor. „Óskað er eftir þátttakendum í forval vegna fyrirhugaðrar sam- keppni. Öllum er frjáls þátttaka í forvalinu en innan teymanna þarf þó að vera að minnsta kosti einn lands- lagsarkitekt og einn arkitekt,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg um málið. Samkeppnin verði í tveim- ur þrepum. „Markmið samkeppninnar er að fá fram frjóar og áhugaverðar hug- myndir um hönnun Lækjartorgs og nærliggjandi gatna. Samkeppnis- svæðið nær yfir Lækjartorg, Lækj- argötu frá Hverfisgötu að Austur- stræti, Austurstræti frá Lækjargötu að Ingólfstorgi og Bankastræti frá Þingholtsstræti að Austurstræti,“ segir í tilkynningunni. Björn Axelsson skipulagsfulltrúi er formaður dómnefndar. Í henni sitja einnig Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi, Orri Steinarsson, arkitekt og skipulagsfræðingur, Hlín Sverrisdóttir landslagsarkitekt og Heba Hertervig arkitekt. Hönnunarsamkeppni um Lækjartorg - Sjö milljónir fyrir fyrsta sæti og fimm milljónir fyrir annað og þriðja sæti Morgunblaðið/Eggert Lækjartorg Vonast er eftir frjóum og áhugaverðum hugmyndum. Engin kórónuveirusmit greindust innanlands um síðustu helgi, sam- kvæmt tölum sem birtust í gær á vefnum covid.is. Alls voru í gær 15 í einangrun, 41 í sóttkví og 1.544 í skimunarsóttkví. Einn var á sjúkrahúsi vegna sjúk- dómsins. 33 þúsund bólusettir Áfram verður bólusett við kórónu- veirunni í þessari viku og er áætlað að bólusetja 33 þúsund einstaklinga hér á landi með þremur tegundum bóluefna. Samtals fá um 18 þúsund bóluefni Pfizer, þar af fá 8.500 þúsund fyrri bólusetninguna. Á landsbyggðinni fá liðlega 5 þúsund seinni skammtinn af AstraZeneca á landsbyggðinni og 10 þúsund einstaklingar fá boð í Jans- sen. Til stóð að bjóða þeim íbúum höfuðborgarsvæðisins, sem fengu AstraZeneca-bóluefni í vor, að koma í síðari bólusetningu á fimmtudag. Nú er ljóst að það bóluefni berst ekki til landsins í tæka tíð og því mun sú bólusetning væntanlega frestast um viku. Morgunblaðið/Kristinn Í Laugardalshöll Búið er að bólusetja 238.814 einstaklinga á Íslandi að minnsta kosti einu sinni og verður bólusetningum haldið áfram í vikunni. Þúsundir bólusettar - Engin innlend smit um helgina - Tafir á bóluefni AstraZeneca

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.