Morgunblaðið - 25.06.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021
Garðatorg 6 | s. 551 5021 | www.aprilskor.is
HEYDUDE Lena
9.990 kr.
HEYDUDE
Fisléttir og mjúkir skór með foam innleggi
í ýmsum litum og gerðum
Lyftistöng fyrir starfsmenn
- Langir kjarasamningar
koma í kjölfar betra rekstr-
arumhverfis álversins
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Ég þekki ekki fortíðina, en þessi samningur er
allavega vel yfir meðaltalinu. Þetta er 55 ára gam-
alt fyrirtæki og samningurinn sem við höfum und-
irritað er númer 23,“ segir Reynhold Richter,
aðaltrúnaðarmaður starfsmanna í álveri Rio Tinto
á Íslandi. Hann fagnar samningi sem verkalýðs-
félögin gerðu við fyrirtækið og er til fimm og hálfs
árs.
Samið var við starfsmenn til eins árs í senn
Talsverð óvissa ríkti um starfsemi álvers Rio
Tinto í Straumsvík, meðal annars vegna aðstæðna
á álmörkuðum og óánægju fyrirtækisins með raf-
orkusamninga. Því hefur verið samið við starfs-
menn til eins árs í senn.
„Það er lyftistöng fyrir starfsmenn að fá svona
samning. Ekkert er leiðinlegra en að vera í stöð-
ugum deilum við vinnuveitandann. Við notum svo
stóran hluta af vökutíma okkar í vinnunni að ef
það eru vinnudeilur uppi hefur það áhrif á vinnu-
andann og fólk er upptekið af því að hugsa um
kaupið sitt,“ segir Reynhold.
Byrjað var í gær að kynna nýja samninginn.
Reynhold segir að hann sé góður og mælir ein-
dregið með samþykkt hans.
Viðsnúningur hefur orðið á rekstrarumhverf-
inu. Landsvirkjun og Rio Tinto á Íslandi sam-
þykktu í febrúar viðauka við raforkusamning fyr-
irtækjanna frá árinu 2010. Samkomulagið var talið
renna styrkari stoðum undir samkeppnishæfni ál-
versins við áframhaldandi starfsemi þess.
Einnig hefur hækkun álverðs breytt stöðunni.
Verðið er nú hærra en það hefur verið frá árinu
2011, að stuttu tímabili árið 2018 frátöldu. „Það er
mjög vaxandi eftirspurn eftir áli í heiminum og
hefur verið vaxandi í langan tíma. Vöxturinn er
sterkari meðal annars vegna þess að álið hefur
verið hluti af nýjum lausnum í loftslagsmálum,“
segir Pétur Blöndal, framkvæmdastjóri Samáls.
Dregið hafi úr framleiðsluvexti í Kína og verð á
hrávörum almennt farið hækkandi. „Það hefur
styrkt stöðu álvinnslu um allan heim, meðal ann-
ars hér á landi.“
Pétur segir að í áliðnaði sé jafnan horft til langs
tíma. Því sé dýrmætt að skrifað hafi verið undir
samninga í Straumsvík í febrúar og jákvætt að ný-
ir kjarasamningar hafi verið gerðir í kjölfarið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Álver Álverðið hefur ekki verið hærra frá árinu 2011, að stuttu tímabili árið 2018 frátöldu.
Eftirlitsnefnd með starfsháttum lög-
reglu hefur komist að þeirri niður-
stöðu að háttsemi tveggja lögreglu-
þjóna, á vettvangi í Ásmundarsal á
Þorláksmessukvöld, geti talist
ámælisverð og tilefni sé til að senda
þann þátt málsins til meðferðar hjá
lögreglustjóranum á höfuðborgar-
svæðinu.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í skýrslu nefndarinnar um
málið, sem Morgunblaðið hefur und-
ir höndum.
Á upptökunum úr búkmyndavél
lögregluþjónanna mátti heyra hluta
samskiptanna milli lögregluþjón-
anna tveggja.
„Hvernig yrði fréttatilkynningin
[...] 40 manna einkasamkvæmi og
þjóðþekktir einstaklingar [...] er það
of mikið eða?“
Þá svaraði hinn lögregluþjónninn:
„Ekki fyrir mig, ég myndi lesa það.“
Og einnig: „Ég þekkti tvær stelp-
ur þarna uppi og þær eru báðar sjálf-
stæðis [...] svona [...] framapotarar
eða þú veist.“
Nefndin telur einnig að endur-
skoða þurfi verklagsreglur er snúa
að samskiptum lögreglu við fjöl-
miðla, en fram kemur í skýrslunni að
„ekkert tilefni hafi verið til upplýs-
ingagjafar af þessu tagi“.
Þar er vísað til þess að í dagbók
lögreglu hafi komið fram að „hátt-
virtur ráðherra“ hafi verið meðal
veislugesta. Forráðamönnum Ás-
mundarsalar var gert sektarboð þar
sem ekki hafði verið tryggt að gestir
bæru grímur öllum stundum. Þeir
gengu að sektarboðinu, 200 þúsund á
hvorn þeirra og er málinu lokið.
Háttsemin ámælisverð
- Gera athugasemd við háttsemi lögregluþjónanna í Ás-
mundarsal - Endurskoða þurfi verklag eftir dagbókarfærslu
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Málinu lokið Viðburðurinn á
Þorláksmessu dró dilk á eftir sér.
Tíðni ung-
barnadauða er
mjög lág hér á
landi, eða þrisvar
sinnum lægri en
meðaltíðni í lönd-
um Evrópusam-
bandsins, sam-
kvæmt nýjum
gögnum Eurostat
sem birtust í
Morgunblaðinu á þriðjudag.
„Það sem mestu máli skiptir varð-
andi velferð ungbarna er að hér á
landi er mjög gott mæðraeftirlit, fæð-
ingahjálp og ungbarnavernd, auk
þess sem þjónusta við nýfædd börn er
mjög góð,“ segir Þórður Þórkelsson,
yfirlæknir nýburalækninga og vöku-
deildar Barnaspítala Hringsins.
„Það skiptir trúlega einnig máli að
bæði mæðraeftirlit og ungbarnavernd
eru ókeypis, auk þess sem aðgengi að
heilbrigðisþjónustu hér á landi er al-
mennt mjög gott.“
Spurður hvort bólusetningar gegn
ungbarnasjúkdómum hafi áhrif segir
hann að þó svo að í sumum löndum
Evrópu séu hlutfallslega færri börn
bólusett en hér á landi skýri það trú-
lega ekki þennan mun á dánartíðni
milli landa, þar sem börn séu ekki að
deyja úr þeim sjúkdómum í sama
mæli og hér áður fyrr.
Það sem greini hins vegar helst
milli Íslands og margra annarra landa
sé þessi þjónusta við verðandi mæður
og nýfædd börn hér á landi, sem
skipti miklu máli því mesta hættan á
að eitthvað fari úrskeiðis og að börn
veikist alvarlega sé í kringum fæð-
inguna og á fyrstu dögum lífsins.
Í því sambandi skipti máli nálægð
vökudeildarinnar við fæðingardeild
Landspítalans, þar sem þrjú börn af
hverjum fjórum fæðist hér á landi og
allar áhættufæðingar fari fram. Enn
fremur sé þar nýburalæknir til staðar
allan sólarhringinn.
„Þetta er þjónusta sem ekki er boð-
ið upp á hvar sem er,“ segir Þórður.
Þá tekur hann fram að öll börn sem
fæðast á Landspítalanum séu skoðuð
af lækni á fyrsta sólarhring lífs þeirra
og aftur við fimm daga aldur, auk
þess sem þau séu skimuð fyrir með-
fæddum hjartagöllum fyrir heimför.
Eftir að heim er komið fái móðir og
barn heimsókn ljósmóður daglega
fyrstu 7-10 dagana, nokkuð sem ekki
er almennt boðið upp á í öðrum lönd-
um Evrópu.
„Ég leyfi mér því að halda því fram
að þjónusta hér við nýfædd börn sé að
mörgu leyti betri en hún er í flestum
öðrum löndum í hinum vestræna
heimi.“ ari@mbl.is
„Mjög gott
mæðra-
eftirlit“
Þórður
Þórkelsson
- Tíðni ungbarna-
dauða lág á Íslandi
Útför Gunnars Birgissonar, fyrrverandi alþing-
ismanns og bæjarstjóra, fór fram í Lindakirkju í
Kópavogi í gær. Athöfninni var einnig streymt í
beinni útsendingu í Samskipahöllinni, reiðhöll
hestamannafélagsins Spretts. Auk þess var hún í
beinni útsendingu á netinu. Að lokinni útför var
erfidrykkja í Samskipahöllinni. Séra Sigfinnur
Þorleifsson stýrði athöfninni og Óskar Einarsson
sá um hljómflutning. Þá söng Páll Rósinkranz
ásamt bakröddum ýmis lög, til að mynda Whiter
Shade of Pale eftir hljómsveitina Procol Harum
auk fleiri laga eftir hljómsveitina Queen.
Útför Gunnars Birgissonar
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson