Morgunblaðið - 25.06.2021, Side 17

Morgunblaðið - 25.06.2021, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. JÚNÍ 2021 ✝ Jón Trausti Ár- sælsson fæddist í Ólafsvík 2. sept- ember 1942. Hann lést á Heilbrigð- isstofnun Suður- lands 14. júní 2021. Hann var sonur hjónanna Ársæls Jónssonar frá Arn- arstapa, f. 25.9. 1918, d. 12.8. 1996, og Önnu Sigrúnar Jóhannsdóttur, f. 3.6. 1919, d. 26.5. 2000. Systkini Jóns Trausta eru Jó- hann, f. 1943, Þórður, f. 1946, Guðrún Marta, f. 1947, Sigrún, f. 1954, Hjörtur, f. 1955, og Fróði, f. 1965. Eiginkona Jóns Trausta er Ingveldur Þorbjörnsdóttir frá Andrésfjósum, f. 26.8. 1945, dóttir hjónanna Ingigerðar Bjarnadóttur, f. 1912, d. 2009, og Þorbjörns Ingimundarson- eru Júlíana, f. 1997, og Jón Ingvi, f. 1999. Börn Jóns Trausta frá fyrra hjónabandi eru: 1) Anna Þóra, f. 1963, eig- inmaður hennar er Ragnar Her- mannsson, f. 1961, börn þeirra eru Einar Darri, f. 1987, Her- mann, f. 1987, Esther Viktoría, f. 1991, og Dagur, f. 1997. 2) Sigurlaug Didda, f. 1964, börn hennar eru Úlfur Ægisson, f. 1990, og Hrafn Barret, f. 1999. Jón Trausti fæddist í Ólafsvík og ólst upp á Snæfellsnesi. Um tvítugt fluttist hann til Reykja- víkur og lauk námi frá Skip- stjóra- og stýrimannaskólanum árið 1962. Jón Trausti var sjómaður frá unga aldri eða allt frá því hann var 14 ára gamall þegar hann fór fyrst til sjós. Hann vann sem skipstjóri stærstan hluta starfs- ævi sinnar en vann síðustu árin áður en hann hætti að vinna á starfsstöð Olís í Þorlákshöfn. Jón Trausti og Ingveldur fluttu til Þorlákshafnar árið 1975 og hafa búið þar síðan. Útför Jóns Trausta fer fram frá Þorlákskirkju í dag, 25. júní 2021, kl. 14. ar, f. 1908, d. 1968. Jón Trausti og Ingveldur gengu í hjónaband 7.11. 1975. Börn þeirra eru: 1) Þorbjörn, f. 1976, eiginkona hans er Anna V. Sigurðardóttir, f. 1976, börn þeirra eru Inga Jóna, f. 2003, Styrmir, f. 2005, og Sig- urdís, f. 2011. 2) Ársæll, f. 1980, eiginkona hans er Linda Ósk Þorvalds- dóttir, f. 1986, börn þeirra eru Stella Natalía, f. 2011, og El- ísabet Alba, f. 2016, fyrir átti Ársæll eina dóttur, Guðrúnu Sif, f. 2009. 3) Fóstursonur Jóns er Ingi- mundur Kristinsson, f. 1965, eiginkona hans er Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1969, börn þeirra Nú er pabbi minn lagður af stað í sína hinstu för, ég sem von- aði og trúði að við fengjum að hafa hann lengur hjá okkur. Eftir stutt en erfið veikindi var hvíldin þér kærkomin. Eftir sitja margar minningar um pabba sem hafði ótal ráð og passaði alltaf upp á að ég gleymdi nú örugglega ekki að halda eigum mínum vel við, eins og t.d. að smyrja bílinn, mála þak- kantinn og skipta um dekk. Við pabbi áttum mjög gott samband, unnum vel saman og vorum mikl- ir vinir. Hann vildi alltaf fylgjast vel með, vildi vera með í öllum þeim verkefnum sem ég tók að mér, hvort sem það var að smíða hús, setja upp innréttingar, græja garðinn eða hvað sem var. Alltaf var hann til í að koma og rétta fram hjálparhönd, sama hvað klukkan sló eða hvernig veð- ur var og oftar en ekki var hann mættur á undan manni. Pabbi var mjög handlaginn og hafði ein- staklega gott lag á því að laga hluti sem við bræður náðum að skemma, kannski ekki með réttu varahlutunum en það virkaði samt alltaf. Alla tíð las pabbi mik- ið, var mjög fróðleiksfús og vissi alveg ótrúlegustu hluti. Það var því alltaf gaman að fara með hon- um á rúntinn og í ferðalög, hann sagði manni margar sögur frá þeim stöðum sem við vorum á hverju sinni og reyndi alltaf að kenna manni hvað hin og þessi fjöll og firðir hétu. Pabbi hafði mikinn áhuga á íþróttum, a.m.k. í seinni tíð, og þó svo að hann og mamma hafi ekki oft komið og séð prinsinn sinn spila fótbolta þá fylgdist hann alltaf vel með. Pabbi var mjög barngóður og voru stelpurnar mínar heppnar að eiga hann sem afa. Hann sýndi menntun þeirra og íþróttum ein- lægan áhuga og var duglegur að hrósa þeim. Þannig var hann pabbi líka, hann hrósaði óspart þegar það átti við og gagnrýndi ef þess þurfti og var ekkert að tala undir rós, það var líka þess vegna sem það var svo gott að spyrja pabba álits, maður gekk að því vísu að fá hundrað prósent hrein- skilið svar. Í dag skein sól á sundin blá og seiddi þá, er sæinn þrá, og skipið lagði landi frá. Hvað mundi fremur farmann gleðja. Það syrtir að, er sumir kveðja. Ég horfi einn á eftir þér, og skipið ber þig burt frá mér. Ég horfi einn við ystu sker, því hugur minn er hjá þér bundinn. En löng er nótt við lokuð sundin. En ég skal biðja og bíða þín uns nóttin dvín og dagur skín. Þó aldrei rætist óskin mín, til hinsta dags ég hrópa og kalla, svo heyrast skal um heima alla. (Davíð Stefánsson) Takk fyrir allt pabbi minn, við pössum upp á mömmu, Ársæll (Sæli). Tíminn er skrýtið fyrirbrigði. Svo mælanlegur að hann líður jafn hratt alls staðar á jörðinni en um leið svo afstæður að hann líður hvergi jafn hratt. Hverjum manni er afmarkaður tími í árum, mán- uðum, vikum og dögum en sá tími sem hver maður lifir í minningum og hjörtum fólks er ómælanlegur. Pabbi minn var 78 ára þegar hann dó. Fallegur og alla jafnan fílhraustur maður sem var svo óheppinn að fá krabbamein sem lagðist á hann af fítonskrafti. Hann barðist fyrir lífinu af krafti og hugrekki og um tíma leit út fyrir að hann hefði betur en það var bara stundargleði. Aftur tók meinið sig upp og þá var ekki við neitt ráðið. Pabbi var sjálfstæður og stoltur maður. Hann hafði ekki áhuga á því að vera veikur og upp á aðra kominn. Hann var ekki mikið fyrir væmni og hefði ekki viljað hafa þessa grein í þeim anda. Ég ætla að virða það. Pabbi var að vestan, hann var hörkuduglegur, fór snemma á sjó og var orðinn skipstjóri 23 ára gamall. Ég man eftir því að fara með mömmu og Diddu systur nið- ur á bryggju til að taka á móti honum þegar hann kom af sjónum og hve hrædd ég var alltaf um að detta niður á milli fjalanna í bryggjunni. Svo kom hann niður landganginn, brosandi út að skeggi og bakaleiðin var alls ekki eins ógnvænleg í pabbafangi. Pabbi og mamma skildu þegar við systur vorum 6 og 7 ára og við þann atburð misstum við töluvert sambandið við pabba. Á fullorð- insárum höfum við þó átt fleiri stundir saman og lengri símtöl sem eru og verða dýrmætar perl- ur í hafi minninganna. Pabbi var skoðanafastur mað- ur og líklega einn af fáum mönn- um sem ég þekki sem var ekki sjáanlega meðvirkur með neinum. Samt átti hann sér hlýja og ljúfa hlið sem hann sýndi oft og tíðum, einkum börnum og dýrum og þau hændust að honum. Pabbi var alltaf kallaður Trausti og bar hann það nafn með rentu enda með afbrigðum traust- ur og samkvæmur sjálfum sér. Hann sagði mér stundum söguna af því þegar hann lét mig nokk- urra mánaða standa í lófanum á sér og þótt hann sleppti af mér hendinni þá stóð ég þar teinrétt og óttalaus því ég treysti honum fyrir því að bera mig. Nú er komið að leiðarlokum, elsku pabbi minn, og þó að orðin ef og hefði, séu orð sem leita óþægilega oft á hugann, þá er ég fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa átt þig að. Einhvers staðar las ég að sorgin væri búin til úr ást. Ég held að það sé satt. Sam- fylgd okkar er lokið í raunheimum en þú munt lifa áfram um ókomna tíð í öllum afkomendum þínum og í minningum þeirra sem voru svo heppin að þekkja þig. Nú hafa hlutverk okkar snúist við, því ég ætla ásamt systkinum mínum og vinum þínum að bera þig lokaspölinn. Ég veit að þú hefðir treyst okkur til þess. Þín Anna Þóra. Að eignast tengdaforeldra er merkilegt í mínum huga því í mínu tilviki eignaðist ég annað sett af foreldrum. Þetta orð tengdaforeldri lýsir þessu í raun svo vel, foreldri sem maður teng- ist eða eignast síðar á lífsleiðinni. Ég kynntist elsku Trausta tengdapabba þegar við Tobbi fór- um að rugla saman reytum fyrir rúmlega 22 árum síðan. Ég minn- ist hans með þakklæti fyrir allt og allt. Trausti var einstaklega góður maður, hörkuduglegur og hjálp- samur. Hann var hreinskiptinn og lá ekki á skoðunum sínum, var heiðarlegur og ætlaðist til þess sama af öðrum. Þegar ég rifja upp stundir með Trausta koma upp í hugann þau ófáu skipti sem hann og Inga komu í Ásamýri að kíkja á krakkana eða hjálpa til. Hann var alltaf meðvitaður um þegar hjálp- ar var þörf og var iðulega búinn að hringja til þess að bjóða fram aðstoð hvort sem verið var að byggja við húsið, sinna viðhaldi eða bara koma sláttuvélinni í gang fyrir sumarið. Hann kom líka reglulega til að athuga með hrossin og hafði gaman af því að ræða um allt sem viðkom þeim, hvort sem rætt var um fjallaferðir eða góða hesta sem höfðu reynst honum vel. Ég bið þess að þú sért kominn á góðan stað, elsku Trausti, og veit að við Tobbi og krakkarnir munum búa að því alla tíð að hafa fengið að fylgja þér á lífsins leið. Anna V. Sigurðardóttir. Fallinn er frá félagi minn og vinur Jón Trausti Ársælsson eftir erfið veikindi síðustu mánuði. Trausti var alinn upp á nesinu vestan Ennis. Kynni okkar Trausta hófust er hann ungur maður var skipstjóri á bát vestan af Snæfellsnesi og þeir færðu sig hérna suður fyrir seinni part vertíðar. Nokkrum ár- um seinna flutti Trausti með Ingu konu sinni hingað til Þorlákshafn- ar og settust þau hér að. Margs er að minnast frá fyrri árum. Mörg voru ferðalögin með þeim hjónum bæði innanlands og utan. Bronco-árin eru eftirminni- leg, þá var verið að flækjast á fjöllum. Einu sinni var farið norð- ur Sprengisand og áætlað að gista í Nýjadal. Þá ráðlagði skálavörð- ur þar okkur að halda strax áfram því áin væri að verða ófær. Þegar komið var í Bárðardal var komið kvöld og leiðindaveður og erfitt að tjalda. Leituðum við gistingar á efsta bænum og held ég að konan hafi vorkennt þessum flækingum með smábörn með sér og fengum við gistingu í skólahúsi sveitarinn- ar. Á heimleiðinni um Kjalveg var gist í Hvítárnesi og eru ekki allir á því að við höfum gist þar ein. Skipstjórnin átti vel við Trausta og farnaðist honum hún vel. Var hann lengst af með báta frá Glettingi hf. Það var gott að vera í talstöðv- arsambandi við Trausta og vorum við oft í kvótasambandi, en það var fyrir tíma farsímanna, þá var gefinn upp í leynitölum fiskafjöldi í trossum. Trausti hafði gaman af að fara á hestbak og fór stundum á fjall fyrir Skeiðamenn en þangað höfðu þau Ingveldur mikla teng- ingu. Eitt haustið er Trausti var á fjalli var komið að síldarvertíð og skildi útgerðarmaðurinn ekkert í því að eini maðurinn sem kynni að kasta nót svo vel færi væri að flækjast á fjöllum. En það leystist og Trausti skilaði sér. Það var með Trausta eins og okkur marga að er leið á ævina hætti hann sjómennskunni og fór að vinna í landi. Þá byggðu þau sér sumarhús í nágrenni æsku- stöðva Ingu og undu sér þar vel. Síðustu vinnuárin var Trausti við Olís- verslunina í Þorlákshöfn en hún þjónaði sjávarútveginum um nauðsynjar og var Trausti þar á heimavelli enda vinsæll af- greiðslumaður. Takk fyrir samveruna og vin- áttuna. Við Sigga vottum Ingveldi og börnunum þeirra okkar dýpstu samúð. Sigurður Bjarnason. Látinn er kær vinur okkar, Jón Trausti Ársælsson eða Trausti eins og við kölluðum hann ávallt, eftir stutta en snarpa baráttu við krabbamein. Vinátta okkar hjóna við þau Trausta og Ingu hófst fljótlega eftir að við fluttum til Þorlákshafnar árið 1996 og hefur alla tíð verið okkur afar kær og mikils virði. Þau hjón voru sam- rýnd mjög og höfðu með sér ákveðna verkaskiptingu eins og gerist í góðum hjónaböndum og töldu bæði að þetta væri gott fyr- irkomulag. Ævistarf Trausta var lengst af til sjós, þar var hann stýrimaður en lengst af skipstjóri og var mjög farsæll í sínum störfum þar enda glöggur og gætinn. Trausti var hreinn og beinn. Það sem einkenndi hann helst var trúmennska og heiðarleiki og kom hann fram við alla af virðingu og hjálpsemi, þess nutu margir vinir hans og kunningjar. Trausti var skemmtilegur ferðafélagi, fróður og vel lesinn. Við hjónin áttum þess kost að ferðast með þeim hjónum bæði innanlands og er- lendis, það voru skemmtilegar ferðir. Í upphafi árs í fyrra fórum við til Tenerife með þeim og þar nutum við okkar mjög vel, við rétt náðum heim fyrir Covid. Einnig fórum við saman í hringferð um landið okkar sl. sumar og komum víða við. Í þeirri ferð naut Trausti sín vel og gat á sinn hátt sagt okk- ur sögur og ýmsan fróðleik í ferð- inni, hann hafði á sínum sjó- mannsárum verið mikið við veiðar úti fyrir allri suðurströndinni og landað afla í flestum höfnum Austurlands og þekkti því víða staðhætti og atvinnusöguna. Hann hafði gaman af því að rifja upp skemmtileg atvik frá gömlu síldarárunum og brosti þá á sinn hátt. Það var gaman að sitja kvöldstund með Trausta og ræða málin, hann var sérlega glöggur og rökfastur og gerði þá kröfu bæði á sjálfan sig og aðra án þess að fella dóma. Trausti átti Ingu sína og virti hana mjög, hans helsta keppikefli var að búa henni og fjölskyldunni allri traust og gott heimili, það gekk eftir og nutu þau þess öll að styðja hvert annað í amstri dags- ins. Nú við leiðarlok er okkur hjón- um efst í huga þakklæti fyrir trausta og heila vináttu og skemmtilegar samverustundir. Við eigum part í Ingu áfram og vonandi gefst okkur tími og tæki- færi til að gera eitthvað saman og minnast Trausta. Elsku Inga, börnin öll, tengda- börn, barnabörn og aðrir ástvinir, missir ykkar er mikill en minning um góðan dreng lifir og veitir okk- ur skjól. Við hjónin sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og óskum ykkur alls hins besta. Takk fyrir allt, kæri vinur, og megi Guðsblessun fylgja þér. Margrét og Ægir. Það eru mikil viðbrigði eftir áralanga sjómennsku að stíga á land og skipta um starfsvettvang. Það þarf líka að vera góðum eiginleikum búinn til að höndla svo ólíka tilveru að stíga niður úr skipstjórastól og gerast auðmjúk- ur þjónn í verslunarvafstri. Upphaflega læddist að mér að gamla skipstjóranum yrði torsótt að taka við hlutverkaskiptum eftir mörg og farsæl ár í hólnum. Jón Trausti sýndi mér fljótt að hann bjó yfir öllum þeim kostum er til þurfti í hans veigamikla starfi í þjónustu við fólk og at- hafnamenn til sjávar og sveita. Honum var einlægt að hjálpa, út- vega og gæta að allir fengju sitt og bestu kjör. Að sjómannasið bölvaði hann gjarnan helv. tölv- unni um leið og hann hamraði lyklaborðið með einum putta krepptum. Ekki kom að sök þótt hann og helv. tölvan næðu ekki alltaf saman. Hann þekkti fljót- lega og mundi flestöll vörunúm- erin í búðinni og kennitölur flestra viðskiptavina. Þar var hann viss um að gamla lórantölu- minnið hefði þjálfað upp sína tölu- glöggvun, er nýttist honum aftur orðið vel, baka til við búðarborð. Olísbúðin í Þorlákshöfn var líka félagsmiðstöð sjómanna. Þar löðuðust að ungir sem aldnir er sóttu sér ráð í verslunina til Trausta og ræddu ýmiss konar vanda sinn, í leit að fiskimiðum og baráttu við hafið. Þar var gamli formaðurinn ávallt liðtækur að miðla af reynslubrunni sínum við að hjálpa og byggja upp, ekki síst hjá byrjendum og þeim er lakast stóðu. Hann var jafnvígur á áhuga- sviði sínu hvort sem var til sjávar eða sveita. Mikill skepnumaður. Hafði ánægju af að tengjast um- ræðum um landbúnað og sækja í fjallferðir, sauðburð og allt það er tengdist marghátta lífinu til sveita. Hlýhug ber ég honum fyrir allt hans trygglyndi í starfi og góðan félagsanda. Þakklátastur er ég þó vináttunni er okkar í millum hafði þróast, í áranna rás. Það var einstakt hjá honum æðruleysið er hinn illvígi sjúk- dómur knúði dyra. Þá tjáði hann sig um af einlægni að færi svo, myndi hann kveðja sáttur. Hon- um efst í huga var þakklæti fyrir lífið er hefði verið honum gott. Nú er hann til kallaður, heim í aðrar vistarverur. Þar vil ég sjá það sem hann í hjarta sínu var. Stórtækan útvegsbónda, með þúsundir fjár og drekkhlaðin afla- skip við bryggju. Bíðandi þess er einhvern tímann verður, að hans elskaða eiginkona gangi með hon- um einnig, samhent eins og áður, um blómabrekkuna breiðu, upp af guðdómlegu skipalaginu þar. Með þakklæti í huga bið ég góðan Guð að blessa eftirlifendur og minningu hins látna og votta Ingveldi, börnum þeirra og fjöl- skyldu allri mína dýpstu samúð. Einar Gíslason. Jón Trausti Ársælsson HINSTA KVEÐJA Elsku afi minn. Mér fannst skemmtileg- ast að fara á bryggjurúnt með afa og spjalla við hann, hann vissi svo mikið um öll skipin af því að hann var sjómaður og skipstjóri. Þegar ég gisti hjá afa og ömmu svaf ég alltaf með afa og Elísabet Alba systir mín með ömmu. Afi leyfði mér líka alltaf að fá ís og nammi. Þú varst besti afi í heimi, og aldrei þér ég gleymi. Ég veit að þú munt yfir mér sveima, þig ég ætla alltaf að dreyma. (Stella Natalía Ársælsdóttir) Þín afastelpa, Stella Natalía Ársælsdóttir. Afi Trausti var besti afi í heiminum og í sólkerfinu og bara bestur. Ef maður spurði afa „viltu leika“ þá sagði hann alltaf já. Afi passaði mig oft með ömmu og mér fannst það mjög skemmtilegt. Ég sakna afa mjög mikið því það var svo gaman að leika við hann og hann var alltaf svo góður við mig. Knús og kossar, þín afa- stelpa, Elísabet Alba Ársælsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BRAGI JÚLÍUSSON, Búastaðabraut 16, Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 20. júní á Heilbrigðis- stofnun Vestmannaeyja. Útförin fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum fimmtudaginn 1. júlí klukkan 13. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja fyrir frábæra umönnun. Sigþóra Björgvinsdóttir Björg Ólöf Bragadóttir Valgeir Sigurjónsson Gylfi Bragason Edda Svandís Einarsdóttir Sigþór Örn, Sandra Dögg, Steina Dís og Bragi Þór Ástkær faðir minn, GUÐMUNDUR ÖRN INGÓLFSSON, lést sunnudaginn 20. júní. Útför hans fer fram frá Guðríðarkirkju þriðjudaginn 29. júní klukkan 13. F.h. aðstandenda, Ingólfur Arnar Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.