Morgunblaðið - 01.07.2021, Page 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Lambalæri
2,5-3 kg úrbeinað lambalæri
250-300 g villisveppafylling
5-6 msk. black garlic marinering
2 hvítlauksgeirar
Nokkrar greinar ferskt rósmarín og
garðablóðberg (timjan)
Bindigarn
Salt og pipar eftir smekk
Undirbúningur á lærinu:
Penslið lærið að innanverðu með
gerjuðu hvítlauksmarineringunni,
komið fyllingunni vel fyrir inni í lær-
inu. Bindið lærið vel upp með
garninu þannig að fyllingin haldist á
sínum stað. Stingið nokkur lítil göt
(um 7-8 göt) í lærið með litlum, beitt-
um hníf. Skerið hvítlaukinn í 4-5 bita
og setjið ofan í götin ásamt rósm-
aríni og garðablóðbergi (timjan).
Kryddið með salti og pipar fyrir
grillun.
Grillun
Gott er að leyfa lærinu að standa á
borði í 2-3 klukkustundir áður en
það er grillað til að ná stofuhita.
Hitið grillið vel upp og grillið lær-
ið á öllum hliðum (um 4 mínútur á
hverri hlið) til að loka því. Lækkið
hitann á grillinu í um 90-120°C og
eldið lærið annaðhvort á óbeinum
hita eða á efri grindinni á grillinu.
Notið kjarnhitamæli og takið lærið
af þegar hann sýnir 55-58°C. Leyfið
lærinu að hvíla í 10-15 mínútur.
Hægt er að skerpa á hitanum á lær-
inu með því að setja það inn í 160°C
heitan ofn í um 2 mínútur.
Berið svo fram með meðlæti og
sósum sem henta.
Villisveppafylling
100 g flúðasveppir
50 g þurrkaðir villisveppir 200 g
frosnir villisveppir
1 msk. olía
1 msk. smjör
2 laukar skornir í þunnar sneiðar
1 bolli rauðvín eða marsalavín
2 msk. fljótandi villisveppakraftur
5-6 msk. brauðrasp
2 bollar rjómi
Steikið flúðasveppi, villisveppi,
lauk og þurrkaða villisveppi á pönnu
upp úr olíu og smjöri í um 10 mín-
útur. Bætið við víni og sjóðið niður
um helming. Setjið þá rjóma út í og
hitið að suðu.
Maukið sveppablönduna í mat-
vinnsluvél, blandara eða með töfra-
sprota, bætið þá krafti og brauð-
raspi saman við og sjóðið saman.
Smakkið til með salti og pipar.
Brokkólísalatið hennar mömmu
1 brokkólíhaus (ekki stilkarnir)
1/2 rauðlaukur
50 g trönuber
50 g sýrður rjómi
150 g majónes
1 msk. hunang
Sítróna
Salt
Saxið brokkólíið smátt og skerið
rauðlauk fínt í litla bita. Setjið í skál.
Hrærið saman sýrðum rjóma, majó-
nesi og hunangi í annarri skál. Bland-
ið því næst grænmetinu saman við.
Smakkið til með salti og sítrónusafa.
Grillað kartöflusalat með
kapers og dijon-sinnepi
500 g smælkikartöflur
150 g majónes
2 tsk. kapers
1 tsk. ferskur graslaukur
30 g dijon-sinnep
Börkur af 1 sítrónu
Safi úr 1/2 sítrónu
Salt
Pipar
Olía
Sjóðið kartöflurnar í vatni í 20–30
mínútur með smá salti.
Sigtið síðan kartöflurnar og leyfið
þeim að kólna í sigtinu í 5 mínútur.
Veltið kartöflunum upp úr olíu og
kryddið með salti.
Grillið kartöflurnar á heitu grilli,
veltið þeim um fram og aftur þangað
til fallegar rendur eru komnar á
kartöflurnar.
Takið þær af grillinu og leyfið
þeim að kólna.
Blandið majónesi, kapers,
dijon-sinnepi, smátt skornum
graslauk, berki og safa úr sítrónu
saman í skál.
Blandið kartöflunum að lokum
saman við og kryddið með salti og
pipar eftir smekk.
Ljósmynd/Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir
GRILL Þeir Viktor og Hinrik eru engir nýgræðingar á sínu sviði.
Grillað lamba-
læri með villi-
sveppafyllingu
Á dögunum kom út bókin GRILL eftir þá Hinrik Örn
Lárusson og Viktor Örn Andrésson. Bókin er ein-
staklega vegleg og eiguleg og inniheldur fjölda
uppskrifta sem matgæðingar ættu ekki að láta
fram hjá sér fara. Hér er á ferðinni skemmtileg
uppskrift að grilluðu lambalæri með villisveppa-
fyllingu sem ætti að vekja lukku á veisluborðinu.
Blephaclean
Hágæða blautklútar sem vinna
vel á frjókornaofnæmi.
Góð tvenna við
frjókornaofnæmi
Fæst í völdum apótekum og Eyesland gleraugnaverslunum.
Dry Eyes
Augnhvíla sem hægt er að kæla og
hjálpar við frjókornaofnæmi. Einnig
hægt að hita í örbylgjuofni.