Morgunblaðið - 01.07.2021, Side 61
DÆGRADVÖL 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2021
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
NEVER CURVY
SAMFELLA
Dásamlega falleg og
haldgóð blúndusamfella
frá Cosabella.
Stærðir S-XL
Verð 21.900,-
einu ári í guðfræðideild HÍ. „Ég veit
ekki hvort guðfræðinámið mætti
telja milda aukaverkun miðaldurs-
krísunnar, en ég tel mig vita minna
um Guð eftir árið en fyrir, sem er
kannski eðlilegt og a.m.k. ekki við
hina góðu kennara deildarinnar að
sakast.“
Á afmælisdaginn verður fjöl-
skyldan í bústað sínum í Vatnaskógi,
en sá staður er Gunnari Þór mjög
kær enda var hann í sumarbúðum
KFUM sem ungur drengur og hefur
síðan starfað þar töluvert.
Fjölskylda
Eiginkona Gunnars Þórs er Edda
Björk Skúladóttir, iðjuþjálfi með
meistarapróf í heilbrigðisvísindum,
f. 9.3. 1972. Foreldrar hennar eru
Skúli Svavarsson, kristniboði og fv.
framkvæmdastjóri SÍK, f. 24.3.
1939, og Kjellrun Langdal hjúkr-
unarfræðingur, f. 22.11. 1943.
Börn Gunnars Þórs og Eddu
Bjarkar eru 1) Emil Þór, grafískur
hönnuður og meistaranemi við
Konstfack – U of Arts, Crafts and
Design í Stokkhólmi, f. 10.12. 1995.
Unnusta hans er Una Hallgríms-
dóttir hönnuður, f. 18.5. 1996. 2) Sig-
ríður Rakel, nemi við LHÍ, f. 20.9.
2002, og 3) Helena Ingrid, nemi við
Réttó, f. 5.9. 2007.
Systkini Gunnars Þórs eru Sig-
urður, framkvæmdastjóri í Kópa-
vogi, f. 23.7. 1969, og Hannes, tölv-
unarfræðingur í Hafnarfirði, f. 30.9.
1974.
Foreldrar Gunnars Þórs eru hjón-
in Sigríður Jónsdóttir, f. 8.2. 1946, d.
6.10. 1993, ljósmóðir, organisti og
var fyrsti kórstjóri Grafarvogs-
kirkju og Pétur Sigurðsson, f. 29.7.
1942, skipstjóri og stýrimaður,
lengst af á Suðureyri og í Reykjavík.
Gunnar Þór
Pétursson
Sigríður Helgadóttir
húsfreyja á Fagurhóli,
A-Landeyjahr., síðar í
Vestm.eyjum og Rvk.
Markús Sigurðsson
bóndi og smiður á
Fagurhóli, A-Landeyjahr.,
síðar í Vestm.eyjum og Rvk.
Gunnþórunn
Markúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Jón Ásgeirsson
stöðvarstjóri í
Reykjavík
Sigríður Jónsdóttir
ljósmóðir, organisti og
kórstjóri í Reykjavík
Guðrún Stefánsdóttir
húsfreyja og
veitingamaður frá Kverná
við Grundarfjörð
Ásgeir Jónsson
vél- og járnsmiður á
Ísafirði og í Reykjavík
Sigurlína Jónsdóttir
húsfreyja á Hrauni í
Árneshreppi, Strand.
Sigvaldi Jónsson
húsmaður á Hrauni í
Árneshreppi, Strand.
Ína Jensen
Sigvaldadóttir
húsfreyja í Reykjavík
(kjördóttir Carls
Friðriks Jensen
kaupmanns í Kúvíkum)
Sigurður Pétursson
útgerðarmaður í Kúvíkum,
síðast búsettur í Reykjavík
Kristjana Þórunn
Einarsdóttir
húsmóðir á Ísafirði
Pétur Jón Sigurðsson
stýrimaður á Ísafirði,
síðar skipstjóri, síðast í
Reykjavík
Úr frændgarði Gunnars Þórs Péturssonar
Pétur Sigurðsson
skipstjóri og stýrimaður
í Súðavík og Reykjavík
„UM … EKKERT STRESS, SÆTA … OG, UM …
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA’“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finnast allt
fullkomið eins og það
er.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞEIR ERU
HREIN-
SKILNIR
ÞÚ HEFUR NÁÐ
SAMBANDI VIÐ
ÞJÓNUSTU-
VERIÐ
ÝTTU Á EINN TIL AÐ
SKILJA EFTIR SKILA-
BOÐ SEM ALDREI VERÐUR
SVARAÐ
EÐA ÝTTU Á TVO TIL AÐ FÁ
SAMBAND VIÐ ÞJÓNUSTUFULL-
TRÚA SEM SVARAR ALDREI
ÉG GERI Þ.AÐ SEM
ÉG GET!
ÉG KANN AÐ META ÞAÐ HVAÐ ÞÚ
HUGSAR VEL UMÖRYGGI MITT!
KLUKKU-
STUNDIR
ÁN SLYSA
BANNAÐ
AÐ VEIÐA
ÍSL
ENS
K
OR
ÐAB
ÓK
Í Njáluferðum spinnast oft fjör-ugar umræður. Guðni Ágústs-
son er oft leiðsögumaður í slíkum
ferðum og fer mikinn í frásögn
sinni. Á dögunum með Félagi eldri
borgara í Reykjavík kvöddu systk-
inin Vala og Baldur Hafstað með
þessum orðum í lok ferðar. Vala
sagði:
Guðni skáldar, Guðni lýgur,
Guðni hátt í Njálu flýgur.
Kallinn heimta allir aftur
ógnar stór þó sé hans kjaftur.
Baldur kvað þessa:
Eftir ógnar langa leit
á lærdómssviði hálu
ég fundið hef, það herrann veit
höfundinn að Njálu.
Í Rímblöðum Hannesar Péturs-
sonar er kvæðið „Höfundur Njálu.
Brot úr niðurstöðu rannsóknar“.
Ég hef alltaf haft gaman af þessu
ljóði og get ekki stillt mig um að
rifja það upp:
… Staðreyndir ýmsar stangast á
stórum meir en vér héldum.
Ekki t.d. var Ingjaldur þá
orðinn bóndi á Keldum.
Áður hef ég áherslu lagt
á örlög Hámundarsona.
Ég hygg því rétt, eins og hér var sagt,
að höfundur Njálu sé kona.
Í Blöndu er þessi staka úr „Njálu-
rímum“, sem hafa verið ortar varla
síðar en á 16. öld:
Þegnar riðu á Þríhyrningsháls,
þaktir brynju og skjöldum;
allir komu þar óvinir Njáls
nema Ingjaldur frá Kjöldum.
Í riti Jóns Helgasonar um Jón frá
Grunnavík segir: „Þá Þorvaldur á
Sauðanesi í Vöðlusýslu var að
kveða rímur af Gunnari á Hlíðar-
enda og hönum þótti sagan eigi vel
útskýra hans skapnað og yfirlitu,
vitraðist Gunnar honum á milli
svefns og vöku. Þá kvað Þorvaldur
þessa vísu, sem hann lét standa í
rímunni; hún hljóðar svo:
Andlitsfagur, augnablár,
ásján fegurðin vafði
réttnefjaður með rauðgult hár,
rósir í kinnum hafði.“
Brynjólfur Halldórsson prófastur
(um 1676-1737) orti til varnar Hall-
gerði, en í bók sinni „Njála í íslensk-
um skáldskap“ segir Matthías Jo-
hannesen að sr. Brynjólfur sé fyrsti
verjandi Hallgerðar sem nokkuð
kveði að:
Á lesti þótti Langbrók gjörn,
er lífs varð margra skaði,
flestu má þó finna vörn
að fráteknum þjófnaði.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Höfundur Njálu
og sögumaðurinn Guðni