Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 18
Eitt af áhugamálum Tinnu er að
taka ljósmyndir, vinna með upp-
setningu og stílisera umhverfið.
Hafa ljósmyndir hennar vakið
verðskuldaða athygli enda oft
mikil vinna að baki þegar kemur
að uppsetningu og stíliseringu.
Tinna er markaðsmanneskja og
leikkona og vinnur við hvoru
tveggja. Hún vinnur sem sölu- og
markaðsstjóri hjá Provision og
hefur líka verið að leika, síðast í
þáttaseríunni Systraböndum.
„Í frítímanum finnst mér gaman
að taka myndir og vinna með
setup-ið á sama tíma en Instagram
er skemmtilegur vettvangur fyrir
það,“ segir Tinna og bætir því við
að hún sé mjög dugleg að pósta
myndum á Instagram-reikning
sinn. Aðspurð segir hún að þegar
kemur að því að segja frá fata-
stílnum sé það enginn einn stíll.
„Fatavalið fer alveg eftir skapinu
hjá mér. Strigaskór og þægileg
peysa er klassík á mánudegi. Síðan
þegar nær dregur helgi fer ég
kannski í hæla. Ég er nú samt þekkt
fyrir að vera mikil „tomboy“-
stelpa. Ég horfi frekar öðruvísi á
föt í dag og ég passa mig á því að
kaupa minna og nýta lengur. Við
þurfum að hugsa um hvar öll þessi
föt enda og hvernig fatakaup hafa
áhrif á umhverfið.“
Fer oft í búningaleik með fötin sín
Þegar Tinna er spurð hvort hún
hafi ávallt haft mikla skoðun á því
hverju hún klæðist, segir hún svo
ekki vera, því móðir hennar hafi
stýrt því í fyrstu. „Mamma var
rosa mikið að klæða mig í sterka
liti þegar ég var lítil. Þegar ég fór
að klæða mig sjálf tók við tímabil
þar sem svarti liturinn réði ríkjum.
Ég sé samt að fatastíllinn minn
hefur breyst með aldrinum. Eins
og maður sjálfur í raun. Ég á til
að mynda flísbuxur sem ég hefði
Tinna klæðist hér töffaralegum vintage jakka sem passar einstaklega vel við ljósbláu skyrtuna
og buxurnar. Bláu pinnahælarnir setja punktinn yfir i-ð. Jakki: Vintage búð í París. Ljósblá skyrta:
Monki Oslo. Buxur: Bik Bok Ósló. Pinnahælar: Aldo London. MYNDIR/AÐSENDAR
Kósí-stíllinn
klæðir Tinnu vel
og græni liturinn
á peysunni
kemur vel út.
Takið eftir Tom
Ford-gleraug-
unum sem eru
svo smart.
Tinna er mætt í vetrarstílnum og ber vestið einstaklega
vel. Ullarhúfan toppar heildarútlitið og á vel við veturinn.
Tinna klæðist
hér fallegri
peysu frá H&M
en hún hefur
gaman af því
að leika sér á
myndum enda
áhugamann-
eskja um ljós-
myndun.
Tinna Björt hefur góðan smekk fyrir
litum. Takið eftir skónum.
Sjöfn
Þórðardóttir
sjofn
@frettabladid.is
brennt í gamla daga en í dag elska
ég þær. Það er líka skemmtilegt að
áhugamál mitt gefur mér tíma til
leika mér með fötin sem ég á. Ég
djóka oft með fötin mín; er í raun
bara miðaldra kona í búningaleik.“
Hvernig myndir þú lýsa fata-
stílnum þínum í dag með einni
setningu?
„Þægilegur, einfaldur, smekk-
legur og kannski smá svalur.“
Tinna er á því að hugarástand
geti líka skipt máli þegar kemur að
því að fíla sig í flíkinni sem maður
er í hverju sinni. „Ég held að sjálfs-
traust geti gert ljóta flík að gulli.“
Persónuleikinn skín í gegn
Tinna segist fyrst og fremst vera
hrifnust af sniðum sem passa fyrir
hennar vaxtarlag. „Þegar kemur að
sniðum vil ég að þau passi mínum
vexti en í dag máttu í raun klæða
þig eins og þú vilt. Það er svo fallegt
þegar persónuleiki skín í gegnum
klæðnaðinn hjá fólki.“
Tinna hefur gaman af því að
fara á vintage markaði og finnur
þar oft flíkur sem eru einstakar.
„Uppáhaldsflíkin mín er jakki sem
ég keypti á vintage markaði í París.
Þegar ég sá hann var beðið eftir því
að ég legði hann frá mér. Þá vissi ég
að ég væri með gæðaflík og sleppti
auðvitað ekki jakkanum,“ segir
Tinna og sér ekki eftir því að hafa
nælt sér í þennan dýrindis jakka
sem hún notar mikið.
Frábært þegar tískuhönnuðir
vinna með ódýrum merkjum
Áttu þér þinn uppáhalds hönnuð?
„Nei, ég get nú ekki sagt það en
ég fylgist með hvað er að gerast í
stóru tískuhúsunum. Það er gaman
að sjá að fleiri og fleiri fatahönn-
uðir vinna með ódýrari merkjum
eins og til dæmis H&M og Balmain
gerði 2015 en sú lína seldist upp
strax.“
Hvaða tískuvörumerki heilla þig
mest?
„Ralph Lauren er klassík. Tom
Ford er flottur. Síðan er gaman að
sjá merki sem voru í tísku þegar ég
var fimmtán ára koma sterk inn í
dag eins og Tommy Hilfiger, Fila og
Champion. Ég bíð eftir að sjá Fruit
of the Loom í öllum búðum.“
Fylgir þú tískustraumunum
þegar kemur að litavali eða áttu
þér þína uppáhaldsliti sem þér
finnst klæða þig best?
„Litaval hjá mér fer eftir árs-
tíðum. Það er rosa gaman að fara
í sumarliti eftir langan vetur og
næs að fara í dekkri liti á haustin.
Uppáhaldsliturinn minn er
svartur. En ég reyni oft að vera í
ljósu við hann. Svartar buxur og
hvítur stuttermabolur. Og ef ég er í
stuði hendi ég gulum jakka við.“
Hamingja í hvítum strigaskóm
Tinna elskar strigaskó og hvítir eru
í sérstöku uppáhaldi. Tinna er því
fljót að svara þegar hún er beðin
um að lýsa skótískunni sem hún
heillast af. „Nýir hvítir strigaskór
veita mér hamingju. En ég á líka
brún ökklastígvél sem ég nota
mikið, þau passa við allt. Síðan eru
það pinnahælar á góðum degi.“
Hvað finnst þér vera ómissandi
að eiga þegar þú velur þér fylgihluti
í dag?
„Ég hef gengið með hringi/hoops
síðan ég setti 2pac-klút í hárið á
mér í 8. bekk. Ég nota þá enn í dag
og á kannski vandræðalega mikið
af þeim. Þeir passa við allt. Síðan
geta flott gleraugu gert mikið en ég
er rosa ánægð með mín Tom Ford
gleraugu sem ég fékk hjá Eyesland.“
Þeir sem vilja kíkja á það sem
Tinna er að gera geta fylgst með
henni á Instagram-reikningi
hennar @tinnabg. n
Faðir Tinnu, Guðjón Sigmundsson,
eða Gaui litli, rekur Hernámssetrið,
þar sem hægt er að leika sér.
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI +D3 FYRIR HEILSUNA
Arctic Star sæbjúgnahylki+D3 innihalda yfir fimmtíu
tegundir af næringarefnum og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húð- próteins og insúlíns
• Stuðla að eðlilegri upptöku kalsíums
og fosfórs
• Stuðla að viðhaldi beina, tanna og vöðva
• Stuðla að bættri starfsemi ónæmis-
kerfisins
• D-vítamín hefur hlutverki að gegna við
frumuskiptingu.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast á
www.arcticstar.is
Arctic Star Sæbjúgnahylki +D3
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, og Fjarðakaup.
2 kynningarblað A L LT 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR