Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 2
benediktboas@frettabladid.is
REYKJAVÍK Í árslok 2022 verða
skuldir á hvern Reykvíking 1,3
milljónir króna eða rúmar fimm
milljónir á hverja fjögurra manna
fjölskyldu.
Svo segir í bókun Vigdísar Hauks-
dóttur, borgarfulltrúa Miðflokks-
ins, sem reiknaði skuldir á hvern
borgarbúa eftir að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið 2022
var kynnt í borgarstjórn á þriðju-
dag.
Vigdís tekur fram að þetta sé
vegna svokallaðs A-hluta borgar-
innar, þegar borgarsamstæðan í
heild sé skoðuð blasi við önnur og
aðeins dekkri sýn. Þá sé talan 3,1
milljón króna á hvern íbúa eða 12,5
milljónir á hverja fjögurra manna
fjölskyldu.
„Í árslok 2022 er áætlað að skuld-
ir A-hluta verði 173 milljarðar og
skuldir samstæðunnar samtals
423 milljarðar. Lántaka næstu 5 ár
er áætluð 100 milljarðar í A-hlut-
anum og því má áætla að í árslok
2026 verði skuldir komnar yfir
530 milljarða. Til samanburðar er
áætlað að nýi Landspítalinn kosti
55 milljarða. Skuldastaðan er ógn-
vekjandi,“ segir í bókun Vigdísar.
Meirihlutinn benti á að grænum
fjárfestingum hefði verið f lýtt og
bætt sérstaklega við viðhaldsfé í
skóla- og frístundahúsnæði þar
sem 25-30 milljörðum á næstu
fimm til sjö árum verður varið til
þeirra 136 bygginga þar sem skóla-
starf fer fram í Reykjavík. Það muni
duga til að vinna upp það viðhald
sem var sparað á árunum eftir
hrun. n
Í árslok 2022 er áætlað
að skuldir A-hluta
verði 173 milljarðar og
skuldir samstæðunnar
samtals 423 milljarðar.
Vigdís
Hauksdóttir,
borgarfulltrúi
Miðflokksins
Litadýrð í Hörpu
Það var stórkostlegt um að litast í kjallara Hörpu í gær þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði en þar fer nú fram upplifunarsýningin Circuleight. Verk
nýsköpunarhópsins Artechouse má berja augum á sýningunni undir tónlist Högna Egilssonar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Veitingafólk norður í Húna-
vatnssýslu dó ekki ráðalaust
í Covid. Óku pítsum heim
til sveitafólks og hugsuðu í
lausnum.
bth@frettabladid.is
SAMFÉLAG Þar sem eitt sinn stóð
sjoppan Víðigerði á samnefndum
stað í Húnavatnssýslunni er nú
North West, hótel og veitingastaður,
sem hefur líkt og staðir úti um allan
heim þurft að laga starfsemi sína að
heimsfaraldri Covid.
Ag nes Bergþórsdótt ir stóð
vaktina og þjónaði til borðs þegar
blaðamaður Fréttablaðsins knúði
kaffiþyrstur dyra á akstri milli
Reykjavíkur og Norðurlands.
„Við höfum þurft að laga okkur
að faraldrinum. Til dæmis tókum
við upp á því eftir stóra úrvinnslu-
sóttkví að aka mat heim hér á bæina
í kring. Bændur og aðrir tóku því
mjög vel að fá heimsendar pítsur
á þessum tíma og aðra rétti sem
við bjóðum upp á,“ segir Agnes, en
sumar matarferðirnar námu tugum
kílómetra.
„Maður verður að finna lausnir,“
bætir hún við.
North West stendur mitt á milli
tveggja N1-skála, Staðarskála og
á Blönduósi. Nokkur ár eru síðan
aðstandendurnir tóku sig upp og
fluttu frá Reykjavík norður í Húna-
vatnssýslu þar sem þeir umturnuðu
Víðigerði sem áður var. Agnes segir
að æ fleiri stoppi nú hjá þeim. Fólk
sé ánægt með að þurfa ekki að
láta sér duga sjoppufæði á löngum
vegarkafla.
„Við fundum að það var ákveðið
gat á þessari leið. Um leið og við
fórum að bjóða upp á alvöru mat
hefur orðið rosaleg aukning.“
En hefur hún heyrt að Húna-
vatnssýslur þyki enginn skemmti-
akstur?
„Nei, ég hef bara heyrt að við
séum langbesti hluti leiðarinnar,“
svarar hún að bragði.
Agnes segir að margt hafi komið
sér á óvart þegar hún flutti af möl-
inni í Reykjavík og norður.
„Ég viðurkenni að ég var dálítið
hrædd fyrst við að fara svona lengst
út í sveit en hér er ég í meiri tengingu
við náttúruna og allt mjög fínt.“
Agnes og félagar ætla að standa
vaktina alla daga vikunnar fram í
miðjan desember. Þá verður staðn-
um lokað tímabundið, en opnað
aftur 7. febrúar næsta ár.
„Hvað ég ætla að gera í fríinu? Ætli
við stefnum ekki bara að langri og
góðri dvöl á Tene. Þá verður löng
vinnutörn að baki og ætli okkur
veiti nokkuð af góðu fríi,“ segir hún
og hefur ekki meiri tíma fyrir spjall.
Gestir bíða eftir matnum. n
Keyrðu matinn langa leið
heim til bænda í sóttkví
Heimsending á pítsum þykir ekki sjálfsögð í sveitinni, en á Covid-tímum
verður að bjarga sér, segir Agnes Bergþórsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN ÞORLÁKSSON
Ég viðurkenni að ég
var dálítið hrædd fyrst
við að fara svona lengst
út í sveit.
Agnes Bergþórsdóttir
Hver borgarbúi
skuldi um milljón
í lok næsta árs
birnadrofn@frettabladid.is
UPPLÝSINGAMÁL Dómsmálaráðu-
neytinu ber að afhenda Samtökum
áhugafólks um spilafíkn (SÁS)
gögn sem samtökin kölluðu eftir
en ráðuneytið neitaði að afhenda
á grundvelli þess að þau innihéldu
upplýsingar er vörðuðu mikilvæga
fjárhags- og viðskiptahagsmuni.
Um er að ræða gögn sem borist
hafa ráðuneytinu frá rekstrarað-
ilum spilakassa hérlendis er varða
úrbætur og spilakort. SÁS lögðu
fram kæru til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál þann 1. mars vegna
synjunar ráðuneytisins á beiðni um
aðgang að gögnum.
Í úrskurði nefndarinnar kemur
fram að umrædd gögn hafi verið
skoðuð og sé ráðuneytinu skylt að
veita SÁS aðgang að gögnunum. n
Ráðuneytinu ber
að afhenda gögnin
2 Fréttir 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ