Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 24
Syndaselurinn Brynjólfur
Björnsson er margfaldur
Íslandsmeistari í sundi.
Hann syndir sjálfur daglega
og kennir sívinsæl námskeið
í skriðsundi og garpasundi.
„Sundið er örlagavaldur í mínu lífi.
Það kikkaði inn þegar ég skoraði
sjálfsmark hjá Þrótti í æsku og
fékk að hætta í fótboltanum. Í
framhaldinu prófaði ég að fara á
sundæfingu og hef ekki stoppað
í sundinu síðan. Það átti strax vel
við mig og mér leið alveg rosalega
vel í vatninu.“
Þetta segir Brynjólfur Björnsson,
sundþjálfari og syndaselur með
meiru.
„Viðurnefnið syndaselur hefur
fylgt mér frá því á unglingsárunum
þegar ég æfði og keppti í sundi
hjá Sunddeild Ármanns. Þá var
ég spurður hvort ég væri syndur
sem selur, sem ég og játti og var
þá réttnefndur syndaselur, sem er
auðvitað afbökun á hefðbundinni
merkingu orðsins syndasels,“
útskýrir Brynjólfur og hlær.
Brynjólfur setti ýmis met í
aldursflokkum ásamt því að verða
nokkrum sinnum Íslandsmeistari í
f lugsundi, fjórsundi og skriðsundi.
„Besti árangurinn var Íslands-
met í 1.500 metra skriðsundi árið
1978, sem ég bætti árið á eftir, en
sundferlinum lauk þegar ég lenti í
vinnuslysi og braut báðar hendur
illa.“
Endurnærandi að fara í sund
Sund er að mati Brynjólfs ein
albesta líkamsrækt sem hægt er að
stunda.
„Sund hefur einstaklega góð
áhrif á heilsu og hreysti. Þegar
við syndum þjálfum við hjarta-
og æðakerfi okkar og virkjum
flesta vöðvahópa líkamans. Þá
er meiðslahætta lítil sem engin í
sundi því vatn veldur mjúku álagi á
líkamann, öfugt við sumar íþróttir
sem valda snöggu og harkalegu
álagi á liði og vöðva, sem svo getur
valdið meiðslum,“ upplýsir Brynj-
ólfur.
Góður sundsprettur hefur jafn-
framt undurgóð andleg áhrif á hug
og hjarta.
„Flestir sem fara í sund þekkja
vellíðunina sem fylgir því að fara
ofan í sundlaug, jafnvel þótt þeir
syndi ekki mikið. Það eitt að vera
í vatninu endurnærir mann og
hvað þá ef maður syndir líka og
fær þjálfun fyrir hjarta- og æða-
kerfið. Sund nærir líka sálartetrið
því eftir sundferð er maður eins
og nýr maður. Ég vil meina að fólk
sem stundar sund haldi sér ungu í
útliti, sál og sinni. Það tónar allan
skrokkinn í sundinu, ber sig vel og
lítur frísklega út,“ segir Brynjólfur.
Í sjóinn þegar laugarnar lokuðu
Syndaselurinn Brynjólfur segist
heppinn að hafa dottið í sundið
sem krakki og sund er enn hans
helsta hreyfing.
„Sund er besta hreyfingin fyrir
mig. Ég nýt þess að synda því mér
líður svo vel á sundi, og syndi þá
aðallega baksund og skriðsund,
en síður bringusund þar sem ég er
slæmur í hnjánum. Svo fer ég líka í
sjóinn,“ segir Brynjólfur kátur.
Hann hafði aldrei ætlað sér í sjó-
sund en skorti útrás fyrir hreyf-
ingu í vatni þegar sóttvarnayfir-
völd lokuðu sundlaugum landsins
í strangasta samkomubanninu.
„Því má segja að sitthvað gott
hafi hlotist af Covid því ég sá ljósið
hvað sjósund varðar og finnst nú
geggjað að blanda sjósundi saman
við sund í sundlaug þar sem ég
syndi einn til tvo kílómetra í einu
til að fá hreyfinguna. Í sjóinn
sæki ég til að fá kælingu og öll
steinefnin sem þar er að finna og
hafa svo góð áhrif á húðina. Kuldi
hefur góð áhrif á bólgur og ég finn
að mér líður svo miklu betur í
skrokknum eftir að ég fór að synda
í köldum sjó. Menn voru auðvitað
búnir að benda mér á kosti sjó-
sunds í langan tíma en ég asnaðist
ekki til að prófa fyrr en þeir lokuðu
laugunum og nú reyni ég að fara
þrisvar í viku í sjóinn og fjórum
sinnum í laugina á móti,“ greinir
Brynjólfur frá.
Gaman að keppa við sjálfan sig
Sundið hefur gefið Brynjólfi margt
og segir hann sund almennt mjög
gefandi sport fyrir þá sem stunda
það.
„Félagsskapurinn er dýrmætur
þeim sem stunda sund, sækja nám-
skeið og sundlaugarnar. Sjálfur hef
ég kynnst fullt af yndislegu fólki.
Sundkennslan er gefandi starf og
mér finnst alltaf jafn gaman að
kenna. Ég fæ mikil viðbrögð frá
nemendum mínum og hef unun af
starfinu, ég legg mig allan fram og
fólk finnur það. Það nær árangri,
því líður vel og hefur gaman,“ segir
Brynjólfur.
Hann hefur kennt landsmönn-
um sund í meira en þrjá áratugi.
„Þeir sem koma til mín eru full-
orðið fólk sem hefur löngun til að
bæta sig eða læra sund frá grunni.
Það er auðvitað ólíkt kennslu í
skólasundi þar sem sumir vilja
hreinlega ekki mæta í sund og
megnið af tímanum fer í að kljást
við agavandamál. Því er enginn
dreginn á sundnámskeið fullorð-
inna, sem auðveldar allt og gerir
svo skemmtilegt.“
Brynjólfur segir misjafnt hversu
fljótt fólk nær tökum á því að verða
vel synt.
„Sundþjálfun skilar sér alltaf til
hvers og eins, og þótt hraðinn sé
misjafn fá allir sína styrkingu og
þjálfun fyrir hjarta- og æðakerfið.
Þá er tilfinning fyrir vatni misjöfn
og því verða ekki allir jafn hraðir,
þótt æft sé svipað. Flestir líta á
sund sem skemmtilega líkamsrækt
þótt innan um séu alltaf ein-
staklingar sem sækja í mót og vilja
keppa. Engu að síður er gaman að
keppa við sjálfan sig í sundi, að sjá
mælanlegan árangur á eigin getu
og framförum.“
Vaxandi vinsældir sunds
Brynjólfur hefur ekki tölu á þeim
fjölda sem sótt hefur vinsæl
námskeið hans í skriðsundi og
garpasundi undanfarna áratugi,
en vinsældir námskeiðanna fara
sívaxandi.
„Það er aldrei of seint að byrja að
læra sund. Þeir sem koma til mín
eru á öllum aldri, nema í garpa-
sundinu þar sem aldurstakmark
er tuttugu ár, og hef ég verið með
einstaklinga yfir áttrætt sem koma
til að læra skriðsund,“ upplýsir
Brynjólfur.
Hann segir skriðsund fara mýkst
með skrokkinn.
„Á skriðsundi fer maður líka
hraðar og fólk vill komast á gott
skrið. Það kveikir í mörgum að sjá
hversu margir eru farnir að synda
skriðsund, því hér áður fyrr var
það þannig að ef fólk sást á skrið-
sundi var vitað að það æfði sund.
Þetta hefur breyst mikið á þrjátíu
árum og hefur sundið átt vaxandi
vinsældum að fagna vegna auk-
innar eftirspurnar eftir markvissri
sundþjálfun. Æ fleiri sækjast eftir
því að ná góðum tökum á skrið-
sundi til að geta stundað sjósund,
keppt í þríþraut, landvættum eða
öðru, því svo ótal margt spennandi
er í boði sem kallar á góðan grunn í
skriðsundi.“
Flugsundið skemmtilegast
Garpasund eru sundæfingar fyrir
fullorðna og til að komast í hóp
garpa þarf að kunna skriðsund.
„Á garpasundæfingum eru allar
sundaðferðir syntar en aðal-
áherslan er á skriðsund. Æfingar
eru fjölbreyttar og miða að því að
auka samhæfni, laga sundtækni,
og styrkja og auka úthaldið,“ skýrir
Brynjólfur.
Til að bæta og laga sundtækni sé
alltaf best að fá leiðsögn hjá sund-
kennara.
„Margir upplifa sig gera ákveðna
hluti rétt en sá sem stendur á
bakkanum hefur yfirsýn yfir hvað
betur má fara. Margir beita sér
vitlaust í sundi og má til dæmis
nefna bringusund sem synt er með
höfuðið upp úr. Það er ekki gott því
af því hlýst vöðvabólga. Vissulega
má svo skoða myndbönd og lesa
sér til um sund, en það er alltaf
best fyrir skrokkinn og rétta sund-
beitingu að fara á námskeið eða
skrá sig í sundhóp með þjálfara,“
segir Brynjólfur.
Að hans mati er flugsund
fegursta sundaðferðin.
„Flugsund er skemmtilegasta
sundið, en maður syndir ekki langt
á því. Á garpanámskeiðum lærir
fólk að synda flugsund og hefur af
því mikið gaman. Skriðsund er líka
mjög tíguleg sundaðferð og mest
notuð. Ég fæ iðulega til mín fólk
yfir sjötugt sem syndir yfir kíló-
metra á skriðsundi. Þetta geta því
allir og njóta til hins ítrasta þegar
færninni er náð.“ ■
Syndaselur fór í sund eftir sjálfsmark í fótbolta
Brynjólfur Björnsson er einn vinsælasti sundþjálfari landsins. Hann segir aldrei of seint að byrja að læra að synda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Að fara í sund hressir, bætir og kætir bæði líkama og sál
og segir Brynjólfur að félagsskapurinn sé afar gefandi.
Brynjólfur segir skemmtilegt að keppa við sjálfan sig í
sundi, til að mæla árangur og framfarir á eigin getu.
Fólk á öllum aldri sækir sundnámskeið Brynjólfs, en á
garpasundæfingar er tuttugu ára aldurstakmark.
Ég vil meina að fólk
sem stundar sund
haldi sér ungu í útliti, sál
og sinni. Það tónar allan
skrokkinn í sundinu, ber
sig vel og lítur frísklega
út.
Brynjólfur Björnsson
4 kynningarblað 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGURSYNDUM