Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 22
Útgefandi: Torg ehf. Veffang: frettabladid.isÁbyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. „ÍSÍ hefur í gegnum tíðina hvatt landsmenn til að huga að sinni daglegu hreyfingu í gegnum fjöl- breytt verkefni sambandsins og nú er komið að landsátaki í sundi. Landsátakið, sem er skipulagt af Almenningsíþróttasviði ÍSÍ í sam- starfi við Sundsamband Íslands (SSÍ), er framhald af Íþróttaviku Evrópu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyf- ingarleysi meðal almennings,“ segir Lárus L. Blöndal, forseti ÍSÍ. „Síðustu misseri hafa sýnt okkur með óyggjandi hætti að það skiptir gríðarlegu máli að vera vel á sig kominn, bæði líkamlega og and- lega, og góð heilsa er ómetanleg. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur í pottinn,“ bendir Lárus á og bætir við að Íslendingar hafi alltaf verið duglegir að stunda sund. „Við búum svo vel að hafa góðar sundlaugar víða um landið. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Það er til- valin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frá- bær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.“ ÍSÍ vonast til að landsmenn á öllum aldri taki þátt í átakinu, skelli sér í laugarnar í nóvember og skrái syntar vegalengdir á síðu átaksins, syndum.is. Syndum okkur í gang fyrir veturinn! n Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt möguleika á að verða dregnir út og vinna veg­ lega vinninga, að sögn Lárusar L. Blöndal, for­ seta ÍSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/ EYÞÓR Hildur Karen Aðalsteins- dóttir kennari situr í stjórn Íþrótta- og Ólympíusam- bands Íslands en líf hennar hefur að stórum hluta snúist um sund. Hún sér um flot- námskeið á Akranesi og er að byrja með sundnámskeið fyrir fullorðna. Hildur Karen hefur starfað með íþróttahreyfingunni í langan tíma. Hún er búsett á Akranesi og kennir við Fjölbrautaskóla Vesturlands. Hildur Karen hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri ÍA og framkvæmdastjóri Sundsambands Íslands. Hún segir alla hreyfingu afar mikilvæga fyrir allan aldur. Sjálf hefur hún stundað sund frá sjö ára aldri. „Sundiðkun mín hófst með busli í lauginni í Reykjarfirði á Ströndum. Ég æfði síðan sund með Sundfélagi UMFB í Bolungavík til 16 ára aldurs. Frá þeim tíma hef ég synt mér til heilsubótar og stundum stungið mér til sunds á garpamótum, meðal annars með móður minni á Heims- og Evrópumóti garpa,“ segir hún. „Síðastliðin 30 ár hef ég svo verið viðloðandi sund sem foreldri, þjálfari, ungbarnasundkennari og um þessar mundir með Flotnám- skeið á Akranesi, meðal annars sem valfag við Fjölbrautaskóla Vestur- lands.“ Frábær hreyfing Hildur segir að hreyfing í vatni sé öðruvísi en mörg önnur, til dæmis sé álag á liði minna en við marga aðra iðkun. „Mörgum hættir til að gleyma sundi sem góðri hreyfingu en það er í raun frábær hreyfing fyrir allan líkamann. Fólk þarf ekki að fara daglega í sund til að það hafi heilsubætandi áhrif en því oftar sem það mætir því betri áhrif hefur það á heilsuna. Hvers konar hreyfing í að minnsta kosti 30 mínútur á dag hefur heilsubætandi áhrif,“ upplýsir hún. „Sund reynir á nánast alla vöðva líkamans, krefst samhæfingar, styrkir öndun og fer vel með liði og vöðva. Í sundlaug- inni stjórnar hver og einn ferðinni sjálfur.“ Þegar Hildur Karen er spurð hvort sundið eitt og sér sé nægileg hreyfing eða hvort fólk ætti að stunda aðra líkamsrækt að auki svarar hún: „Við vitum öll hversu mikilvæg hreyfing er fyrir líkam- legt og andlegt heilbrigði fólks og má segja að sund sé nægjanleg hreyfing til að halda sér í formi og bæta úthald en sambland sunds og annarra æfinga gefur enn betri árangur, má þar nefna göngur og styrktarþjálfun. Því má heldur ekki gleyma að sund er hægt að iðka í öllum veðrum og á öllum árstíma í okkar fjölmörgu sund- laugum sem opnar eru almenningi frá morgni til kvölds. Þá má alveg geta þess að þegar maður er í sundi fær maður kær- komið frí frá stöðugu áreiti símans og samfélagsmiðla. Hvíld frá þessu áreiti skapar vellíðan og gott er að hreinsa hugann á meðan maður Styrkir líkamann og eflir andann Hildur Karen hefur stundað sund frá unga aldri og sömuleiðis hefur hún verið að kenna sund. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Sund reynir á nánast alla vöðva líkamans, krefst sam- hæfingar, styrkir öndun og fer vel með liði og vöðva. Í sundlauginni stjórnar hver og einn ferðinni sjálfur. Hildur Karen Syndum til betra lífs Til að taka þátt í sund átak­ inu þarf að skrá sig inn á syndum. is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá sínar sundvegalengd­ ir. Þeir sem eiga notendanafn í verkefninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðu syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt. Á heimasíðu syndum.is eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars fróðleiks og upplýsingar um sundlaugar landsins. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga. syndir. Það er hægt að fá kraft úr vatninu,“ segir hún. Sundlaugar um allt land Hildur segir að það sé alltaf meira gaman að synda með öðrum og að víða séu starfandi hópar í sundlaugum landsins, til dæmis garpasund. Þannig hópar efla félagsandann. „Síðan er það nú þannig að þegar fólk fer að stunda sund þá myndast oft hópar sem synda saman á ákveðnum tímum, styrkja böndin og næra hugann í heita pottinum að loknum sund- sprettinum. Það eru fáar íþróttir sem reyna jafn mikið á alla vöðva líkamans og sundið en um leið er álagið ekki mikið því maður er svo léttur í vatninu,“ segir hún. Hildur Karen bendir á að sund- menning hér á landi sé einstök. „Það sést á þeim mikla fjölda sundlauga sem eru staðsettar um allt land. Að öllum líkindum erum við duglegri en flestar þjóðir að heimsækja sundlaugar,“ segir hún. Ódýrt fjölskyldusport Hildur Karen bendir einnig á að sund sé ódýrt sport. „Ef keypt er árskort í sund kostar dagurinn um það bil 100 krónur. Innifalið í því er aðgangur að sundlaugum hvers sveitarfélags. Þá eru oft veittir góðir afslættir til aldraðra, öryrkja og yngri sundmanna. Búnaður sem þarf til að iðka sund er einfaldur, sundföt og sundgleraugu eru lág- marksbúnaður en einnig er vinsælt að nota blöðkur,“ segir hún. „Sund er frábært fjölskyldu- sport. Á ferðalögum er hægt að koma við í sundlaugum og skola af sér, synda stuttan sprett, leika sér og fara í pottinn. Það er líka þann- ig að í sundlauginni geta allir í fjöl- skyldunni fundið eitthvað við sitt hæfi eða synt á þeim hraða sem hentar hverjum og einum,“ segir Hildur Karen og bætir við að hún viti um fólk sem mæti í laugina á sama tíma á hverjum degi og hafi gert áratugum saman. „Þessu fólki finnst dagurinn ónýtur ef ekki er farið í laugina. Í Covid-lokunum heyrðum við af fólki sem fannst einna erfiðast í ástandinu að komast ekki í laugina.“ Sundátak fyrir alla Hildur Karen segist finna mikinn áhuga hjá fólki að skrá sig í sund- átakið. „Fólk hefur verið að skrá sig á fullu og setja sér markmið en hægt er að skrá sig alveg fram á síðasta dag átaksins,“ bendir hún á. „Þetta er mjög þarft og gott framtak og gott tækifæri fyrir fólk að koma sér af stað í góða hreyf- ingu,“ segir hún og hvetur sem flesta til að skrá sig og vera með í átakinu. „Nú þegar eru sundmenn komnir hring í kringum landið og verður spennandi að sjá hversu margir hringir verða skráðir í lok mánaðarins.“ Ef fólk vill taka þátt og setja sér markmið er hægt að skrá sig á syndum.is, þar eru auk þess ýmsar upplýsingar til dæmis um hvernig maður setji sér sundmarkmið. n 2 kynningarblað 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGURSYNDUM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.