Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 04.11.2021, Blaðsíða 36
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Halldóra Sveinsdóttir Sóltúni 1 í Reykjavík, andaðist mánudaginn 1. nóvember. Útförin fer fram frá Grensáskirkju þriðjudaginn 16. nóvember kl. 15.00. Guðný Ásgeirsdóttir Stäuble Markus Stäuble Patrick Julian, Anna Margret og Klemenz Ásgeir Ásgeirsson Ingibjörg Ýr Pálmadóttir Sunna Dögg, Pálmi Ragnar, Ásgeir Orri, Skúli Thor og langömmubörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Bjarni Guðráðsson bóndi og organisti, Nesi í Reykholtsdal, lést á Landspítalanum 31. október sl. Útför hans fer fram frá Reykholtskirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 11. Útförinni er streymt beint á feisbókarsíðu Reykholtsprestakalls og á facebook.com/snorrastofa. Fjölskyldan þakkar starfsfólki taugalækningadeildar Landspítalans fyrir hlýhug og góða umönnun. Sigurður Bjarnason Vaka Kristjánsdóttir Einar Bjarnason Sigrún Benediktsdóttir Sigríður Bjarnadóttir Helga Björk Bjarnadóttir Birgir Hlíðar Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Emilía Lilja Aðalsteinsdóttir frá Hrappsstöðum í Dalabyggð, síðast til heimilis að Gullsmára 9, Kópavogi, lést 31. október. Kveðjustund verður frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 11. nóvember klukkan 15. Leifur Steinn Elísson Sveinbjörg Júlía Svavarsdóttir Bjarnheiður Elísdóttir Kári Stefánsson Alvilda Þóra Elísdóttir Svavar Jensson Gilbert Hrappur Elísson Guðrún Vala Elísdóttir Arnþór Gylfi Árnason og fjölskyldur. Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, faðir, afi, tengdafaðir og fóstri, Sævar Ólafsson Sigtúni 27, Patreksfirði, sem lést á líknardeild LSH 24. október verður jarðsunginn frá Patreksfjarðar- kirkju laugardaginn 6. nóvember kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Athöfninni verður streymt á bit.ly/patreksfjardarkirkja Guðný Elínborgardóttir Vilhelm Snær, Stefán Pálmi, Guðný Ólafía, Páll Janus Við aðstoðum þig við gerð viljayfirlýsingar um útför þína af nærgætni og virðingu – hefjum samtalið. Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is Hinsta óskin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Jósteinsdóttir Núpalind 6, Kópavogi, sem lést 9. október, verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 6. nóvember klukkan 13. Ingibjörg Björgvinsdóttir Hörður Ingi Jóhannsson Brynja Björgvinsdóttir Vilbergur Magni Óskarsson Svandís B. Björgvinsdóttir Þórir Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Grétar Ellertsson mjólkurfræðingur, lést á dvalarheimilinu Sólvöllum, Eyrarbakka, 29. október. Jarðarförin fer fram frá Eyrarbakkakirkju föstudaginn 5. nóvember klukkan 13. Ellert Ágúst Magnússon Ragnheiður Þórunn Magnúsdóttir Indriði Ingvarsson Heimir Magnússon Brit Helen Leikvoll Sólveig Magnúsdóttir Ari Jóhannes Hauksson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, stjúpfaðir og afi okkar, Stefán B. Ólafsson (Stebbi í Crawford) framkvæmdastjóri, varð bráðkvaddur 13. október. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju 5. nóvember klukkan 15. Athöfninni verður streymt á mbl.is/andlat Ingunn Magnúsdóttir Valgerður Stefánsdóttir Kristján Þór Hlöðversson Agla Marta Stefánsdóttir Daníel Traustason Róbert Traustason Anna Einarsdóttir og afabörn. Guðni Ágústsson safnaði sögum frá hinum og þessum úr dreif- býlinu og tók saman í nýútgef- inni bók sinni. arnartomas@frettabladid.is Það eru fáir sem þekkja króka og kima landsbyggðarinnar jafn ítarlega og Guðni Ágústsson, en hann segir frá ferðum sínum um landið í nýútgefinni bók sinni, Guðni – á ferð og flugi. Þar má finna viðtöl frá heimsóknum Guðna um dreif býlið og þær oft kostulegu sögur sem heimamenn höfðu honum að segja. „Rauði þráðurinn í bókinni er auð- vitað sauðkindin,“ segir Guðni. „Þetta fólk á f lestallt kindur, enda eru sauð- fjárbændur skemmtilegustu menn landsins.“ Í för með Guðna var Guðjón Ragnar Jónasson, kennari í Menntaskólanum í Reykjavík, sem átti hugmyndina að ævintýrinu. Félagarnir heimsóttu fólk hér og þar og settu upp samkomur þar sem lagt var upp úr góðum sögum og Guðjón gerði sitt besta við að skrásetja stemninguna. „Við áttum samtöl við alls konar fólk sem hafði frá svo mörgu að segja, en öllu skemmtilegu,“ segir Guðni. „Guðjón skrifaði þetta svo niður en umgjörðin er okkar beggja.“ Grindvískur krimmi Í bókinni fer Guðni um víðan völl og í hópi viðmælenda kennir ýmissa grasa. „Þarna koma fyrir hálfbrjálaðir sauð- fjárbændur í Grindavík þar sem við upp- lýsum glæpasögur af því hvernig þeir stálu eigin kjöti af heimaslátruðu sauðfé úr innsigluðum gámum lögreglunnar,“ lýsir Guðni. „Síðan fórum við í Vest- mannaeyjar þar sem má finna magnaða bændur sem hafa fé sitt í eyjunum. Við fórum meðal Húnvetninga og hittum sjálfan Geirmund Valtýsson í Skagafirði sem hefur sungið fyrir þessa þjóð í sex- tíu ár. Það hafa f leiri hjónabönd orðið til undir vangalögum Geirmundar en nokkurri annarri hljómsveit.“ Þá heimsóttu félagarnir Axel Rúnar Guðmundsson á Valdarási sem gerðist svo frægur að spila með Manchester United. „Albert Guðmundsson ráð- herra fór svo með hann til Frakklands, enda gríðarlegt efni sem hann var þessi drengur,“ segir Guðni. „Við heimsóttum líka biskupssoninn, hagfræðinginn og bóndann á Einarsstöðum, Jón Magnús Sigurðarson, sem rekur sauðfé og leið- segir í einni frægustu laxá landsins, Hofsá.“ Þótt Guðni hafi í gegnum árin þvælst út um landið og heimsótt hvert einasta hérað var þó eitt og annað sem kom honum á óvart á fyrrnefndri ferð og flugi. „Suma ætluðum við ekkert að tala við, en þeir urðu frábærir viðmælendur,“ lýsir Guðni. „Það var eins og við værum leiddir af himnum ofan til sumra sem við vissum ekki að væru til. Það var vakað yfir okkur. Fyrir vikið er þetta lifandi bók full af húmor og skemmti- legu fólki og á erindi til fólks sem saga þjóðar.“ n Leiddir af himnum um dreifbýlið Þetta fólk á flestallt kind- ur, enda eru sauðfjár- bændur skemmtilegustu menn landsins. Guðni fagnar útgáfunni ásamt dóttur sinni Agnesi og syni hennar Snorra. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI 1890 Fyrsta neðanjarðarlestin fer á milli King William Street og Stockwell í London. 1897 Fjórir bátar farast á Ísafjarðardjúpi í ofsaveðri og einn á Skjálfanda og með þeim tuttugu og tveir menn. 1942 Áhöfn Brúarfossi bjargar 44 skipbrotsmönnum af enska skipinu Daleby sem sökkt hefur verið á leiðinni milli Íslands og Bandaríkjanna. 1969 Tveir strætisvagnar skella saman á Skúlagötu í Reykjavík og sautján farþegar slasast. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. nóvember 2021 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.