Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Side 7

Fiskifréttir - 14.12.2001, Side 7
FISKIFRETTIR 14. desember 2001 7 í Llv'h J W Ester, Atlas og Helterma: 1200 tonn af grálúðu við Kanada Togararnir Ester, Atlas og Helterma, sem íslendingar standa að útgerð á, veiddu sam- tals 1200 tonn af grálúðu í kanadísku lögsögunni áður en þeir urðu frá að hverfa þegar hafís lagðist yfir svæðið. Þetta kemur fram á fréttavef Interseafood.com. Ester fékk 446 tonn, Atlas 408 tonn og Helterma 345 tonn. Veitt var af kvóta sem frumbyggjar í Kanada hafa til ráð- stöfunar norðan 65° milli Kanada og Grænlands. Úthlutað var 1500 tonnum af grálúðu. Þetta var í fyrsta skipti sem kvóta á þessu svæði var úthlutað til almennra veiða en áður höfðu Kanadamenn og Grænlendingar stundað þar vísindaveiðar. Bátar í höfn. (Mynd/Fiskifréttir: Heiðar Marteinsson). Borgaði 150 kr./kg fyrir ýsu- kvótann — leigusalar geta notaö vef Fiskistofu til aö pína veröiö upp hjá þeim sem standa illa aö vígi, segir Örn Pálsson, framkvæmda- stjóri LS Smábátasjómenn eru víðast hvar búnir eða langt komnir með ýsukvóta sinn og að sögn Arnar Pálssonar, fram- kvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda, hafa sumir þeirra lent í miklum hremm- ingum við að leigja til sín ýsu til að eiga kvóta fyrir meðafla. „Ég þekki dæmi um smábátasjó- mann sem átti lítinn ýsukvóta og fór á veiðar á stað sem alla jafna er ekki mikil von til þess að fá ýsu. Engu að síður fékk hann tvö tonn af ýsu á krókana og það varð til þess að hann fór fram úr úthlutuð- um kvóta. Hann fékk strax hótun um sviptingu veiðileyfis frá Fiski- stofu en hvernig sem hann reyndi gat hann ekki leigt neitt til sín. Á síðustu stundu áður en hann átti að missa leyfið tókst honum að leigja til sín það sem upp á vantaði. Hann þurfti þá að greiða 150 krónur fyr- ir kílóið af ýsunni sem er hæsta verð sem ég hef heyrt um en verð- ið hefur legið í 120-130 krónum á kíló. Ljóst er að þeir sem eru að leigja frá sér vissu um stöðu þessa manns. Mér finnst öfugsnúið þegar þeir sem stunda það að leigja frá sér geti fylgst með því á heimasíðu Fiskistofu - þar sem finna má kvótastöðu og landanir skipa - hverjir séu tæpir og eigi jafnvel yfir höfði sér veiðileyfissviptingu og notfært sér neyð þeirra og pínt verðið upp. Þessi smábátasjómaður sagði við mig að hann myndi ekki hreyfa bát sinn fyrr en alþingi væri búið að afgreiða frumvarp um við- bótarkvóta til smábáta,“ sagði Örn Pálsson. ALHLIÐA SKIPAVIÐGERÐIR & PJÓNUSTA! AUt á sama stad Nýsmíði • Endurbyggingar • Viðgerðir • Sandblástur • Slipptökur • Botnhreinsun • Málun • Stálviðgerðir • Vélaviðgerðir • DNV Vottaðar skrúfuviðgerðir • Trésmíði • Rafmagnsviðgerðir • Tækniþjónusta • Varahlutaþjónusta • Vélsmiðja “^“■™“■ ORMS & VÍGLUNDAR ehf. 800 tonna SLIPPUR. 2.750 tonna flotkví við Háabakka. 13.000 tonna flotkví utan Suðurgarðs með djúpristu allt að 11 metrum. SKRIFSTOFUR, SMIOJA& RENNIVERKSTÆÐI: DRAFNAR - SLIPPUR: Kaplahraun 14-17 • 220 Hafnarfjörður Strandgata 82-84 • 220 Hafnarfjörður Símar: +354 555 4199 • Fax: +354 555 1421 Símar: +354 565 0393 & +354 565 4880 GSM: +354 892 0895 & +354 893 6920 Fax: +354 565 5890 • GSM: +354 892 0883

x

Fiskifréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.