Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 8

Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 8
8 FISKIFRETTIR 14. desember 2001 SKOÐUN Birgir Hermannsson trillukarl ræðst að mér og útmálar sem svikahrapp og fréttafalsara í síð- asta tölublaði Fiskifrétta. Arásir hans og svívirðingar eru rugl sem auðvelt er að hrekja. Hann gerir mikið úr því að frásögn minni og Arnar Sveinssonar skipverja á „Bjarma BA“ beri ekki saman. Ég hef sagt að heildaraflinn á „Bjarma“ þá tvo daga sem við vorum um borð hafi verið eitthvað um 70 tonn. Af því hafi á milli 20 og 30 prósentum verið hent aftur í hafið þar sem fiskurinn var af vit- lausri stærð eða tegund. Þetta er brottkast upp á 14 til 21 tonn, deilt á tvo daga. Örn talar um afla og brottkast á einum degi. Birgir kann vonandi margföldunartöfl- una. Hann getur margfaldað tölur Arnar með tveimur og borið sam- an við mínar. Fróður um brottkast Birgir virðist hafa verulegt vit á brottkasti. Hann staðhæfir að dauðir fiskar hljóti alltaf að fljóta á yfirborði hafsins. Hvenær sem er stendur honum og öðru áhuga- fólki til boða að sjá margra mín- útna myndskeið hjá mér af því þegar fiskur sturtast í hafið og sekkur. Nokkrir fljóta, op fuglagerið safnast í kringum þá. A þeim myndum sem ég á að hafa ,,leikstýrt“ sukku flestir fiskarnir eins og straujárn. Steindauðir. Það eru líka til átakanlegar myndir af hinum sem enn voru með lífs- marki og ekki sukku. Burtfleygð- ir þorskar reyna að kafa eða fljóta bjargarlaust með kviðinn upp í loftið og múkkinn býr sig undir að kroppa lifrina úr þeim lifandi. Hann skal líka fá að sjá mynd- ir af sjómönnum sem standa við að flokka aflann. Stærsti þorskur- inn er blóðgaður en hinu sem ekki á að hirða er fleygt á færibandið sem liggur boltað oní dekkið beinustu leið út að lúgunni. Flest- ir þorskarnir hafa legið lengi þeg- ar kemur að þeim að verða blóðg- aðir eða fleygt. Þeir eru dauðir. Ekki sprelllifandi eins og Birgir Ræfildómur og svíviröingar — eftir Magnús Þór Hafsteinsson reynir að ímynda sér í greininni, þar sem hann heldur fram meira eða minna meðvitaðri réttlætingu sinni á brottkasti, sem byggist á tveggja mínútna upptökum sem hann og aðrir sjónvarpsáhorfendur hafa fengið að sjá af spólum sem vara í nálega tvo klukkutíma. Kollinn á karlinum Trillukarlinn rifjar einnig upp ágætt viðtal sem ég tók við Gunnar Örlygsson í Auðlindinni fyrir rúmu ári síðan. Gunnar viðurkenndi að hafa tekið þátt í viðamiklu svindli á svokölluðum pokafiski. Eitthvað fang þess er ekki minna en svo að það er búið að vera á borði Ríkis- lögreglustjóra í nálega tvö ár. Hrokkinn úr gír Heilinn í Birgi Hermannssyni virðist svo hafa hrokkið úr gír þeg- ar hann gerði sér grein fyrir því að brottkastið væri ekki lengur ein- angrað hneyksli á íslandi, heldur væru brottkastmyndirnar komnar ljóslifandi í dreifingu út um allan heim á Internetinu. Ég get upplýst hann og aðra um að þessar myndir hafa slegið öll met á vefsíðum Intrafish fréttaþjónustunnar. Þús- hefur þetta viðtal skolast til í koll- inum á karlinum því hann ímyndar sér nú að Gunnar hafi fullyrt að hafa rogast sjálfur með 200 tonn af flökum upp bryggjuna í Sandgerði. Þetta er kjaftæði. Gunnar var við- riðinn útflutning á fiski sem m. a. var seldur með flugi til útlanda. „Svarti“ fiskurinn var að sögn hans keyptur beint af sjómönnum á Suð- urnesjum og greitt fyrir í beinhörð- um peningum. Rannsókn í þessu máli mun nú vera á lokastigi. Um- undir fólks um allan heim hafa skoðað þær frá því þær voru lagðar út fyrir mánuði síðan. En það er ekki mitt vandamál að þessar ljótu myndir verði kannski vatn á myllu þeirra sem telja að Is- lendingar hafi kannski ekki alveg allt hreint í pokahorninu þegar kemur að fiskveiðistjórnunarmál- um. Að þær hafi rústað ímynd ís- lenska kvótakerfisins. Því þessar myndir sýna sannleikann um um- gengni sem því miður virðist hafa tíðkast hjá okkur í að minnsta kosti tólf undanfarin ár. Við höfum fjöl- margar sannanir. Könnun Kristins Péturssonar, ótal sjómenn sem hafa tjáð sig leynt og ljóst um vandann, samanburðarrannsókn Fiskistofu í Breiðafirði í fyrra þar sem borin var saman stærðardreifing afla með og án eftirlitsmanna um borð í bát- unum, Gallup könnunin sem fram- kvæmd var fyrir ári, rannsóknir Hafrannsóknastofnunar.. Þarf að telja meira? Hvað með myndirnar sem sýndar voru í sjón- varpinu um daginn sem teknar voru sumarið 1999? Þar lá renna fyrir brottkastið beint í sjóinn. Týndur trillukarl Birgir Hermannsson hefur greinilega tapað sjálfum sér í heift- arlegri afneitun sinni. Hann neitar að horfast í augu við þá staðreynd að þetta kerfi hefur hræðilega galla „Engir þeirra, sem dæmt hafa mig sem svindlara, höfðu uppi tilburói til að kanna málió áður en þeir kváðu upp heig- ulsdóma sína í fjöl- miólum“ sem auðvelt er að benda á. Ég ætla svo sem ekki að fordæma hann fyr- ir það. Honum hlýtur að líða illa þar sem hann horfir upp á þá sorg- legu staðreynd að þorskkvótinn hans, sem í dag er tæp 200 tonn, minnkar hratt ár frá ári. Þvert á væntingar. En eins og Birgir segir; tilgangurinn helgar meðalið. Hann er hættur að sjá skóginn fyrir trján- um og ímyndar sér efalítið að hafa hag af því að ráðast á mig því fréttaflutningur minn af vankönt- um kvótakerfisins rýrir virði kvót- ans hans. Verð á varanlegum þorsk- kvóta meira eða minna í uppnámi því stöðugt fleiri gera sér grein fyr- ir því að núverandi fiskveiðikerfi er alls ekki að skila því sem vænst var þegar rætt er um bolfiskveiðar. Þetta vita allir sem hafa kjark til að horfast í augu við staðreyndir. Birgir ætti að vita að verðmæti og stærð kvótans hans rýrnar ekki af því að ég flyt „neikvæðar" fréttir af kerfinu. Rýrnunin stafar af því að kerfið skilar neikvæðum ár- angri og tiltrúin á því fer óðum minnkandi. Ræflar í stjórnsýslu Útgerðarmaður „Hermóðs IS“ ætti frekar að huga að stjómvöld- um í stað þess að beina spjótum sínum að mér. Eðlilegt er að spyr- ja hvers vegna þau hafa látið brott- kastið viðgangast í alltof mörg ár þar sem það og kvótasvindlið hef- ur efalítið valdið gríðarlegu tjóni sem aldrei verður bætt? Líka hvort stjómvöld hafi bmgðist í að taka á vandamálinu því nú eru fyrstu myndirnar af brottkastinu loksins komnar fram? Ég hef gran um að þessar myndir séu ekki þær síð- ustu. Svo hefur verið áhugavert að fylgjast með aumkunarverðum til- raunum sjávarútvegsráðherra og annarra til að klína falsstimpli á brottkastmyndirnar án þess að hafa nokkrar sannanir undir hönd- um til að styðja mál sitt. Ræfil- dómur þessara aðila í þessu máli er sláandi. Ég hef ekki haft uppi neinar blekkingar. En enginn þess- ara manna, sem hafa dæmt mig án dóms og laga sem svindlara, hafa haft uppi neina tilburði til að kanna málið áður en þeir kváðu upp sína heigulsdóma í fjölmiðl- um. Samviska mín er hrein. Hið sama gildir um þá myndatöku- menn sem komu að þessu máli, þá Friðþjóf Helgason og Ragnar Axelsson. Hið raunverulega brottkast botnfisks á íslandsmið- um var filmað á heiðarlegan hátt nú í nóvember. Þeim fiski sem fleygt var hefði verið fleygt í haf- ið hvort heldur við hefðum verið um borð eður ei. Þetta getum við svarið fyrir hvaða dómstól sem er. Höfundur er fiskifræðingur og fréttamaður • Hönnun breytinpa skrúfu- og stýrisbúnaðar -• Kostnaðaráætlanir, verklýsingar, eftirlit -• Hallaprófanir, gerð stöðugleikagagna Andveltlgeymar Almenn tækniþjönusta fyrir útgerðir og vélsmiðjur *** A F L V I S Aflvís ehf Glerárgöfu 30 600 Akureyri Sími: 461 4610 Fax: 461 4612 Gsm: 899 9876 Netfang: aflvis@est.is lÉr'jl Önnumst sölu af öllum gerðum sklpa og báta. Önnumst einnig kvótamiðlun. É É I^HIBHLI OG íKIP Hverfisgötu 105 • 101 Reykjavík • S: 551 7280 & 696 0646 • www.hreidrid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.