Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 13
FISKIFRETTIR 14. desember 2001
13
Á annað þúsund smábátar eru gerðir út frá Dakhla í Marokko til
veiða á smokkfiski og kolkrabba.
upp til Agadír sem sé 20 klukku-
stunda akstur. Á slíkum ökuferðum
hafi honum komið óvart hversu
mikill fimbulkuldi sé í eyðimörk-
inni á nóttunni.
„Ef skipið þarf að komast í höfn,
til dæmis vegna viðhalds og við-
gerða, förum við alltaf til Las
Palmas á Kanaríeyjum. Ég er þó
ekkert sérlega hrifinn af því að
koma þangað því mér leiðast mjög
samskiptin við hafnarverkamenn-
ina. Þetta er eins konar mafía sem
hefur einokun á þessari vinnu og
hagar sér eins hún vill. Við tökum
gjarnan umbúðir og annað um borð
þegar við þurfum að koma þarna í
höfn. Sem dæmi má nefna að það
eru átta menn í hverju löndunar-
gengi og ef taka þarf tvo menn af
þeim til annarra verka sitja hinir á
rassinum og hreyfa sig ekki. Þurfi
maður svo á tveimur af þeim að
halda kemur það ekki til greina, þá
þarf að kalla til nýtt löndunargengi.
Einn daginn megum við nota okk-
ar menn til að hjálpa til, þann
næsta er það bannað og þriðja dag-
inn heimta þeir að svo sé gert.
Svona vinnubrögð myndu aldrei
líðast hér á íslandi," segir Páll.
Stuttbylgjusendingar
lagðar af
En hvernig hefur Páli gengið að
venjast hinum löngu fjarvistum frá
heimili sínu á íslandi?
„Ég finn nú ekki svo rnikið fyrir
því. Ég er tvo til þrjá mánuði á sjó
og svo svipaðan eða kannski held-
ur skemmri tíma í landi á milli. Ég
kvarta ekki. Starfsdagurinn er
langur, frá morgni til kvölds, og lít-
ill frítími. Ég vil þó endilega korna
því á framfæri að ég er mjög ósátt-
ur við það að ríkisútvarpið skuli
vera hætt að senda út á stuttbylgju.
Það gerðist síðastliðið sumar.
Menn hlustuðu mikið á íslenska út-
varpið en nú erum við algjörlega
fréttalausir. Þessar útsendingar
gögnuðust ekki bara sjómönnum á
úthafsveiðum fjarri heimahögum
heldur líka fjölda ellilífeyrisþega
sem búsettir eru hluta úr árinu í
Suðurlöndum og raunar íslending-
um um víða veröld almennt. Stutt-
bylgjusendingunum var hætt á
þeirri forsendu að nú væri hægt að
hlusta á útvarpið á Internetinu. Því
er til að svara að í fyrsta lagi eru
ekki allir nettengdir og í öðru lagi
háttar því svo til um borð í skipum
eins og okkar sem eru nettengd, að
það er alltof kostnaðarsamt að nýta
sér þessar sendingar. Hver mínúta
kostar mörg hundruð krónur. Mér
skilst að það kosti ríkisútvarpið
eina og hálfa milljón króna á ári að
halda þessum sendingum áfram.
Mér finnst það ekki nægileg afsök-
un til þess að slá þær af. Við höfum
rætt við forustumenn sjómanna-
samtakanna út af þessu máli en það
hefur engu skilað. Ég skora á ríkis-
útvarpið að koma okkur í frétta-
samband á ný.“
Leyfa ber
B-skráningu skipa
Heinaste er skráður á Kýpur og
sama er að segja um Alpha og
Beta. Það er ekki vegna þess að út-
gerðin kjósi heldur að skrá skipin
erlendis en á Islandi, — þvert á
móti.
„Ég hef alltaf furðað mig á því
hvers vegna ekki má skrá þessi
skip einhvers konar B-skráningu á
íslandi. Það er enginn að tala um
að koma með skipin inn í íslenska
lögsögu og láta þau fara að veiða
þar, enda hafa þau engan kvóta við
Island. Ég er alls ekki hlynntur því
að skip með erlendri áhöfn fái að
taka yfir störf íslenskra sjómanna í
íslenskri fiskveiðilögsögu. Ég er
heldur ekki að mæla með því að út-
gerðum sé gert kleift að flagga
skipum sínum fram og til baka inn
og út úr lögsögunni, jafnvel á sama
árinu. Hins vegar er það staðreynt
að til eru allmörg skip sem Islend-
ingar gera út stöðugt til veiða und-
ir fánum erlendra ríkja á fjarlægum
miðum ýmist innan eða utan lög-
sögu, t.d. við Afríku eða á Flæm-
ingjagrunni. Ef þessi skip væru
skráð B-skráningu á Islandi gætu
þau skapað íslendingum veiði-
reynslu sem nýst gæti síðar á ýms-
an hátt, auk þess sem þau skiluðu
skráningargjöldum til heimalands-
ins. Hvers vegna skyldi Kýpur hafa
öll þessi erlendu skip á skrá hjá
sér? Ætli það sé ekki vegna þess að
stjórnvöld þar sjá sér stóran hag í
því?“ sagði Páll Breiðfjörð Eyj-
ólfsson að lokum.
Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og jarscádar á nýju ári.
Sæplast hf. • Pósthólf 50 • 620 Dalvík • Sími: 460 5000 • Fax: 460 5001
Netfang: saeplast@saeplast.is • www.saeplast.is
FRETTIR
Auglýsingar
515 5558
intralox
‘V . ^ , V..
V-V"-4
........ SÉRHANNAÐ
Fyrir Sjávarútveginn
Nýja Sería 800 Flush Grid bandið var hannað sérstaklega fyrir sjávarútveginn
þar sem þörf var fyrir mjög sterkt band með góðri opnun og mikilli endingu auk
þess að vera auðvelt í þrifum. Þetta er viðhaldslítið færiband sem mætir ströng-
ustu hreinlætiskröfum sem gerðar eru í dag.
174
fj
uUo
"Opnar" spyrnur eru einnig fáanlegar.
Dalvegur 16a • 200 Kópavogur
Sími: 564 1550 • Fax: 554 1651 Neyðarnúmer: 846 4897
Netfang: marvisigmmedia.is •
Heimasíða: www.mmedia.is/~marvis