Fiskifréttir - 14.12.2001, Qupperneq 15
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001
15
SJAVARUTVEGSSYNINGAR
95% sýningarrýmis uppbókaó
— á íslensku sjávarút-
vegssýningunni 2002.
Ný sýningarhöll í byggingu
Utlit er fyrir að Islenska sjávarútvegssýningin 2002, sem haldin
verður í Smáranum í Kópavogi 4.-7. september á næsta ári, verði enn
stærri en síðasta sýning en þá var metþátttaka. Nú þegar er búið að
bóka 95% sýningarrýmisins og ráðstafanir verða gerðar til þess að
auka við plássið.
Þetta sagði Mari-
anne Rasmussen
framkvæmdastjóri
sýningarinnar í sam-
tali við Fiskifréttir.
Að þessu sinni verður
meginhluti sýningar-
innar í íþróttahúsi
Smárans og nýrri
íþrótta- og sýningar-
höll, sem um þessar
mundir er verið að
reisa við hliðina, en
hún á að verða tilbúin
í apríl næstkomandi.
Tengibygging verður
reist á milli húsanna tveggja en
tölvuvædd skráning gesta verður
bæði í anddyri Smárans og í sér-
byggðu húsi við nýju fjölnotahöll-
ina. Með tilkomu nýju íþróttahall-
arinnar gjörbreytist öll sýningar-
aðastaða til hins betra, að sögn
Marianne. Sýningarrými í þessum
tveimur húsum er um 300 fermetr-
um minna en var síðast í sex bygg-
ingum, þ.e. íþróttahúsi Smárans,
tennishöllunum tveimur og þremur
bráðabirgðaskálum. Að þessu sinni
verður einn skáli reistur framan við
nýju íþróttahöllina sem hýsa mun
þá sýnendur sem bætast við, en
ennþá hafa um eitt hundrað fyrri
sýnendur ekki látið heyra frá sér.
Því má búast við að fjöldi pantana
eigi eftir að berast á næstu vikum
og mánuðum og er þess vænst að
menn láti vita af sér sem allra fyrst.
Sérstakir þjóðarbásar verða á sýn-
ingunni sem fyrr, þar sem sýnendur
frá einstökum löndum sameinast á
einum stað, og hafa þegar borist
staðfestingar á pöntunum frá Dan-
mörku, Svíþjóð, Noregi og Færeyj-
um um slfkt rými, auk þess sem ver-
ið er að kanna áhuga annarra þjóða,
þeirra á meðal Spánveija, Breta og
Kanadamanna. Auk
þeirra fyrirtækja sem
áður hafa tekið þátt í
sýningunni hafa
borist pantanir frá
nýjum fyrirtækjum
m.a. frá Kóreu, Nor-
egi, Bretlandi, Spáni
og íslandi. í janúar
næstkomandi verður
haldinn á íslandi
fundur í ráðgjafa-
nefnd sýningarinnar
en hana skipa m.a.
fulltrúar úr hópi
sýnenda.
íslensku sjávarútvegs-
verðlaunin
Islensku sjávarútvegsverðlaun-
in, sem stofnað var til í tengslum
við Islensku sjávarútvegssýning-
una árið 1999, verða afhent í annað
sinn á næstu sýningu á hátíðar-
kvöldi á Broadway. Verðlaunin eru
veitt fyrirtækjum og einstaklingum
sem þykja hafa náð framúrskarandi
árangri á ýmsum sviðum sjávarút-
vegs, svo sem í fiskveiðum, útgerð,
fiskvinnslu, framleiðslu tækjabún-
aðar og markaðsfærslu. Að Is-
lensku sjávarútvegsverðlaununum
standa tímaritin World Fishing og
Fiskifréttir. Sjóvá-Almennar hafa
þegar gerst stuðningsaðilar hátíð-
arinnar og fleirum stendur það til
boða.
Eins og áður sagði varð metþátt-
taka í Islensku sjávarútvegssýning-
unni 1999 en hún varð 45% stærri
en sýningin á undan. Sýnendur
voru alls 850 og gestir voru um
17.000 talsins. Nánari upplýsingar
um sýninguna og allt henni tengt er
að finna á heimasíðunni:
www.icefish.is
Marianne
Rasmussen
Nýja íþrótta- og sýningarhöllin í Smáranum í Kópavogi sem nú er í
byggingu og verður tilbúin í apríl á næsta ári. (Mynd/Fiskifréttir:
Sigurjón Ragnar).
Fiskifréttir í hverri viku
Kortið sýnir íþróttahúsin tvö þar sem meginhluti sýningarinnar verður, en framan við nýja húsið verður
reistur einn bráðabirgðaskáli. Bflastæði fyrir 500 bfla verða þar sem bráðabirgðaskálarnir þrír voru áður
og tennishallirnar verða ekki notaðir sem sýningarrými að þessu sinni.
Ó‘t
LÖNDUN EHF.
Box 1517-121 Reykjavík
Sími: 552 9844 • Fax: 562 9840