Fiskifréttir - 14.12.2001, Síða 16
16
FISKIFRETTIR 14. desember 2001
ÆXLUN FISKA
Ástir fiskanna
Fyrir nokkrum árum kom út
skáldsagan Astir fiskanna. Sú
saga er reyndar ekki til umræðu
hér en nafn hennar leiðir hugann
að því að fiskar, eins og önnur
dýr, þurfa að hafa einhver ráð
með að viðhalda stofninum.
Margir standa í þeirri trú að
fiskar fjölgi sér eingöngu á þann
hátt að hrygnan hrygni á botn-
inn og hængarnir komi þar á eft-
ir, sprauti sviljunum yfir eggin
og frjóvgi þau. Þannig fer laxinn
að minnsta kosti að því. Æxlun
fiska er miklu fióknara fyrirbæri
en hér er lýst og þeir fara ýmsar
Ieiðir við mökun - sumir hafa
jafnvel samræði eins og spendýr.
Ohætt er að segja að ástarlíf
fiska sé til þess að gera fjörugt og
með sumum þeirra takast að því
er virðist heitar ástir um hríð
þrátt fyrir að í æðum þeirra
renni kalt blóð.
I grundvallaratriðum er frjóvg-
un fiska skipt í tvennt: ytri frjóvg-
un og innri frjóvgun. Við ytri
frjóvgun frjóvgast eggin eftir
hrygningu en innri frjóvgun verður
við einhverskonar samræði og þá
frjóvgast eggin inni í hrygnunni og
hún gýtur frjóvguðum eggjum eða
jafnvel lifandi afkvæmum. Ytri
frjóvgun er einkennandi fyrir bein-
ftska en innri frjóvgun er þó ekki
óþekkt hjá þeim en hún heyrir til
undantekningar. Innri frjóvgun er
hins vegar einkennandi fyrir
brjóskfiska. Þess má svo geta til
fróðleiks að á Islandsmiðum hafa
fundist rúmlega 290 tegundir bein-
fiska og um 40 tegundir brjósk-
fiska.
Snúum kviðum saman
Kynfæri beinfiska eru tveir
sekkir þar sem egg (hrogn) eða
sæði (svil) myndast. Sekkirnir eru
litlir hjá ókynþroska fiski en þegar
fiskurinn verður kynþroska bólgna
þeir út af eggjum og svili. Tegund-
ir mökunar hjá fiskum eru margs-
konar en um þennan þátt í atferli
fiska virðist vera lítið vitað, a.m.k.
eru handbækur fáorðar um hann.
Þekktasta leiðin við mökun er sú
að hrygnan hrygnir á botninn og
hængurinn sprautar svilum yfir og
stundum velur hængurinn staðinn
þar sem hrygnt er. Aðrir fiskar
nudda kviðum saman og sprauta
samtímis hrognum og svilum út í
Tegundir mökunar hjá fiskum eru margskonar. Þekktasta leiðin við mökun er sú að hrygnan hrygnir á
botninn og hængurinn sprautar sviljum yfir. Aðrir fiskar nudda kviðum saman og sprauta samtímis
hrognum og sviljum út í sjóinn. Þá þekkist það að fiskar snúi gotraufum saman og hængurinn spraut-
ar sviljunum inn í hrygnuna. (Teikning: Sigurður Ingi Jensson).
sjóinn, þeirra á meðal eru þorsk-
fiskar en um mökun þorsks er fjall-
að sérstaklega í annarri grein hér á
eftir. Þá þekkist það að fiskar snúi
gotraufum saman og hængurinn
sprautar svilunum inn í hrygnuna
og hún gýtur frjóvguðum eggjum
skömmu síðar. Sumir hængar í
flokki beinfiska hafa einhverskon-
ar tæki eða lim til þess að koma
sæðinu inn í eggjagöng hrygnunn-
ar eins og vikið er að hér að fram-
an. Fisktegundirnar hafa svo mis-
munandi aðferðir við að ná saman.
Sumir fiskar makast með miklum
tilþrifum og bregða á leik sem
stendur yfir í misjafnlega langan
tíma.
Þrjú saman
Þrátt fyrir að erfitt sé að rann-
saka mökun fiska við náttúrulegar
aðstæður hefur allmiklum upplýs-
ingum þó verið safnað um ýmsar
fisktegundir og er loðnan ein
þeirra. Hún hrygnir m.a. við fjöru-
borðið á Nýfundnalandi og þess
vegna hefur verið auðvelt að kanna
atferli hennar. Athuganir hafa einn-
ig verið gerðar á hrygnandi loðnu í
fiskabúri í Vestmannaeyjum. Með
þessum og öðrum rannsóknum hef-
ur safnast þekking á því hvernig
loðnan hagar sér m.a. hér við land.
Hún hrygnir hér á dýpra vatni en
við Nýfundnaland, allt niður á 70-
80 metra dýpi eða dýpra og hefst
hrygning í febrúar og mars og
stendur fram í apríl.
Hrygningarleikir loðnunnar eru
mjög fjörugir. í hrygningargöngun-
um sem koma upp að suður- og
suðvesturströnd landsins er svipað
hlutfall af hæng og hrygnu í torfun-
um. Rétt fyrir hrygningartímann
aðskiljast kynin og þegar kemur að
hrygningu synda hængarnir ótt og
títt fram og aftur við botninn en
hrygnurnar halda sig sér, gjarnan
ofar í sjónum. Hængurinn er útbú-
inn þannig að hann er með loðna
rák eftir endilangri hliðinni og
reyndar kviðnum líka. Eyruggar og
kviðuggar brettast einnig upp yfir
hrygningartímann. Þegar að hrygn-
ingu kemur fer hrygnan inn í hóp
hænganna og er þá gripin af tveim-
ur körlum sem klemma hana á
milli sín og halda henni þétt að sér
og skorðast hún við loðkantinn og
uppbretta uggana. Þrjú saman
þeytast þau í faðmlögum eftir botn-
Allt til rafsuðu
ESAB
Tæki, vír og fylgihlutir. Viljir þú vanda verkið
velur þú ESAB
Danfoss hf.
SKÚTUVOGI 6 • SlMI 510 4100