Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Síða 33

Fiskifréttir - 14.12.2001, Síða 33
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001 33 HVALVEIÐAR ummæli, var sagt að við landið væru stórkostlegir hvalir og sjó- skrímsli og yrðu hvalirnir ekki unnir nema ís eða vindur ræki þá á land. Af riti Blefkens mátti þó marka að slíkt væri ekki óalgengt þar sem hann segir að íslendingar byggi sér hús og geri muni úr hval- beinum og hann segir einnig að eina brúin í landinu sé gerð úr hvalbeinum. Baskarnir sem komu til Islands til hvalveiða í byrjun 16. aldar settu upp bækistöðvar sínar á Ströndum og stunduðu einkum hvalveiðar á Húnaflóa. Fyrstu árin sem þeir voru hér við land áttu þeir vinsam- leg samskipti við íslendinga og áttu við þá nokkra verslun. Munu þeir jafnvel hafa greitt einhvers konar skatt af veiðum sínum. Þá keyptu þeir sauði og kjöt af heima- mönnum og guldu fyrir það sem upp var sett. Um þetta leyti var far- ið að þrengja að hvalveiðimönnum og þeir höfðu ekki eins mikið fé fyrir veiðar sínar og áður, mest vegna þess að veiðin minnkaði, og því fór svo að það sem Baskarnir greiddu áður fyrir skilvíslega fóru þeir að taka ófrjálsri hendi. Þegar á árinu 1614 kom til átaka milli bænda og Baska á Ströndum en steininn tók þó úr árið eftir þegar þar ríkti hreint styrjaldarástand sem lauk með meiri mannvígum en dæmi voru um á íslandi allt frá því á Sturlungaöld. Þetta vor 1615 er þess getið að mörg hvalveiðiskip frá Spáni og Frakklandi hafi komið til landsins en vegna hafíss komust þau ekki leiðar sinnar fyrr en seint og um síðir og var komið fram á sumar er 16 þeirra komust fyrir Horn og á hvalveiðislóðirnar í Húnaflóa. Höfðu Spánverjar bækistöð sína á Reykjarfírði á Ströndum, skutluðu hvalina frá smábátum og drógu þá síðan að skipunum sem lágu úti á firðinum þar sem þeir voru unnir og lýsið brætt. Aðrar afurðir af hvölunum hirtu Spánverjarnir lítt en buðu heimamönnum bæði kjöt og rengi fyrir lítið fé. Þegar hér var komið sögu mun stjórnvöldum í Danmörku hafa þótt nóg um og talið að ástæða væri til að sporna við veiðunum þótt ekki væri til annars en að Danir gætu sjálfir setið að þeim. Konungsbréf barst til landsins þar sem strang- lega var bannað að eiga viðskipti eða samskipti við spænsku hval- veiðimennina og veiðar þeirra voru bannaðar. í bréfinu var mælt fyrir um að heimamenn mættu taka skip Spánverjanna og drepa þá með þeim aðferðum sem hentugastar þættu. Fól konungsvaldið Ara Magnússyni, sýslumanni í Ögri, að framfylgja því er í bréfinu stóð. Ekki var þó lagt til atlögu við Spánverjana um sumarið, enda voru þeir varir um sig og vopnaðir m.a. fallbyssum. Um haustið, þegar Spánarskipin voru orðin fullhlaðin lýsi og tilbú- in til heimferðar, brast á norðan- veður og hafís rak inn á Húnaflóa. Hrakti þrjú skipanna í strand, brotnuðu og ónýttust. Menn komust lífs af og gátu bjargað nokkru af góssi sínu í land, m.a. bátunum sem notaðir höfðu verið við hvalskutlunina um sumarið. Og þótt veður og sjólag væri illt tókst mönnunum að róa og sigla á bátum þessum fyrir Horn og komast inn á Jökulfirði, þar sem þeir tóku land og hertóku þar skútu sem Gunn- steinn Grímsson, bóndi á Dynj- anda, átti. Hópur Spánverja steig um borð í skútuna og sigldi til Patreksfjarðar þar sem þeir höfðu síðan vetursetu og vorið eftir tókst þeim að hertaka tvær enskar skútur og komast und- an. Þeir sem ekki fóru með skút- unni héldu áfram ferð sinni og komust til Dýrafjarðar þar sem þeir fóru með ránum og ofbeldi og unnu sér m.a. það til óhæfu að brjóta upp dönsku kaupmannsbúð- ina á Flateyri og ræna úr henni mjöli, skreið og fleiri vistum. Stungin göt á líkin, þau bundin saman og þeim varpað í sjóinn Til að gera langa sögu stutta þá fór svo að Islendingum tókst að vinna á öllum þessum mönnum og eru lýsingar af þeim aðförum held- ur ógeðslegar. Ekki er vitað með vissu hversu margir Baskar voru drepnir en sennilega hafa þeir ver- ið rúmlega þrjátíu. Gilti einu hvort menn báðu sér griða eða reyndu lítt að verjast. Þeir voru murkaðir nið- ur og síðan voru stungin göt á hupp Hvalveiðar við ísland á 17. öld. Hvalskutlarar hafa skotið skutlum sínum í hvalinn en móðurskipin bíða upp við land. Og vitanlega er gjósandi eldfjall í baksýn. eða háls líkanna, þau bundin sam- an og þeim kastað í sjóinn. Allt góssið sem Böskunum hafði tekist að bjarga með sér var hertekið og voru í því nokkrir vínkútar sem slegnir voru upp og drukkið úr í veislu sem Ari sýslumaður hélt liðsmönnum sínum í Ögri að lokn- um „afreksverkunum." Með þessum voðaverkum var endi bundinn á hvalveiðar Baska við Island. Sennilegt er þó að bæði þeir og Frakkar hafi sent hingað skip í nokkur ár í viðbót en þau hafa lítt getað athafnað sig þar sem óhugsandi var að eiga nokkur við- skipti við landann. Þar með sátu Danir nær einir að hvalveiðunum, en þær stunduðu þeir þó aldrei að neinu ráði. Seinna, eða á 17. og 18. öld og á fyrri hluta 19. aldar, komu hingað til lands hvalveiðiskip frá fleiri þjóðum, en veiðarnar urðu aldrei miklar, þar sem hvalateg- undir þær sem héldu sig við landið þóttu styggar og erfiðar viðureign- ar. A svipuðum tíma og dró úr hvalveiðum við Island og á norður- slóðum jukust þær verulega á suð- urhveli og er það til marks um verðmæti hvallýsisins að Evrópu- þjóðir hikuðu ekki við að senda skip heimshornanna á milli ef ein- hver von var á hval. Veiðarnar fengu á sig dularfullan ævintýra- ljóma og úr slíkum jarðvegi spratt ein frægasta skáldsaga heimsbók- menntanna, sagan Hermans Mel- ville um hvíta hvalinn, Moby Dick. Dælur tíl allra verka Vélasalan býður landsins mesta úrval af dælum, frá þeim minnstu upp í þær stærstu. Margir verðflokkar eftir efnisgæðum og vörumerki. Helstu tegundir: flojgt # pédrouo ^srule* rotan ^*J EJ^pumper Pedrollo VÉLASALAN Ánanaust 1, Revkiavík. Sími 580 5300. Fax 580 5301. Netfang: velasalan(®velasalan.is Veffang: httD://www.velasalan.is

x

Fiskifréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.