Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 46

Fiskifréttir - 14.12.2001, Blaðsíða 46
46 FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001 TOGVEIÐAR M m i (C Á Ingólfi Arnarsyni RE við Grænland. Saltað var á dekki því lestar voru fullar. Sigurjón Stefánsson á heimili sínu. Hann var aflasæll togaraskip- stjóri í 25 ár og kom með að landi hátt í 100 þúsund tonn af fiski í skipstjóratíð sinni. (Mynd/Fiskifréttir: Sigurjón Ragnar). Skuldaói venjulega stígvélin og stakkinn eftir vertíöina — segir aflaskipstjórinn Sigurjón Stefánsson um fyrstu árin sín á sjó Sigurjón Stefánsson var með fengsælustu togaraskipstjórum landsins í aldarfjórðung um og eftir miðja síðustu öld. Hann var skip- stjóri á Ingólfi Arnarsyni RE, fyrsta nýsköpunartogaranum sem kom til landsins, samfellt í um 20 ár og hann tók þátt í skuttogaravæðing- unni, fyrst sem skipstjóri á Bjarna Benediktssyni RE en síðan á Ingólfi Arnarsyni RE. Sigurjón fór í land árið 1977 eftir farsælan fer- il sem skipstjóri. Lætur nærri að hann hafi þá verið búinn að veiða samanlagt hátt í 100 þúsund tonn á skipstjóratíð sinni. Aflaverðmæti þess miðað við fiskverð í dag er hátt í 10 milljarða króna. Sigurjón fæddist að Hólum í Dýrafirði árið 1920. Faðir hans, Stefán Guðmundsson, var skip- stjóri og útgerðarmaður. Sigurjón sagði í samtali við Fiskifréttir að það hefði aldrei komist annað að hjá sér en að stunda sjóinn og byrj- aði hann á skaki 15 ára gamall. „Það var ekki auðhlaupið að kom- ast í gott skipsrúm á þessum árum. Þénustan var víðast hvar engin og ég skuldaði venjulegast stígvélin og stakkinn þegar vertíðin var búin. I gegnum kunningsskap komst ég að hjá Magnúsi í Höskuldarkoti þegar ég var 17 ára. Þá var ég búinn að róa eina vertíð frá Sandgerði. Magnús var mesti aflamaður á Suð- urnesjum á sinni tíð. Við vorum ráðnir upp á premíu og var ég með 1.000 krónur í laun eftir fyrstu ver- tíðina sem þótti ágætt í þá daga. Það var mjög gott fiskirí en ég man ekki hvað báturinn fiskaði mikið enda held ég að það hafi aldrei ver- ið gefið nákvæmlega upp.“ Þorskur með lystisnekkju Auk þessa veiðiskapar var Sig- urjón tvö sumur á síld á Gunnvöru með þekktum skipstjóra, Barða Barðasyni, en einnig var hann eitt sumar á síldveiðiskipinu Dóru sem gert var út frá Fáskrúðsfirði en lagði upp á Siglufirði. „Ég byrjaði á togurum árið 1941 er ég réð mig á Belgaum sem var nokkuð þekkt skip. Ég var á honum að meira eða minna leyti næstu árin og þá kynnt- ist ég siglingum með ísfisk á er- lendan markað sem síðar meir var snar þáttur í útgerð þeirra skipa sem ég var á,“ sagði Sigurjón. Hann gerði hlé á sjómennskunni og settist í Stýrimannaskólann haustið 1943 en stýrimannsprófi lauk hann árið 1945. Á stríðsárunum var Sigurjón á skipum sem sigldu með fisk til Englands, bæði Belgaum og svo á tveimur skipum sem keyptu fisk í landi og sigldu með hann. Þetta voru skipin Kapitana og Hrímfaxi. „Kapitana var urn margt sérstætt skip en ég fór með henni tvo túra árið 1942. Hún var áður lysti- snekkja sem Magnús Andrésson keypti frá Bandaríkjunum og lét breyta í flutningaskip fyrir ísfisk. I skipinu voru vandaðir klefar, allt úr fínasta maghony og kopar, og þetta var allt rifið úr til að búa til lest fyr- ir ísfiskinn. Ég held að hvorki fyrr né síðar haft íslenskur þorskur ver- ið fluttur á lystisnekkju til neyt- enda erlendis." Skotið á Kapitönu Þegar hér var komið sögu var Sigurjón aðeins rétt rúmlega tví- tugur að aldri og hann var spurður hvort ekki hefði verið beygur í honum að sigla til Englands á stríðsárunum. „Þetta var mikil áhætta og við gerðum okkur vel grein fyrir því. Við lentum aldrei í neinum hremmingum en þó man ég sérstaklega eftir einum túr á Kapitönu þar sem okkur leist ekki á blikuna. Þetta var að kvöldlagi og við sigldum alltaf ljóslausir. Ég var á vakt í brúnni og stýrimaðurinn sagði mér að fara út og lesa á logg- ið. Þar sem niðamyrkur var kveikti ég snöggvast á eldspýtu til að sjá á loggið. Þegar ég kom inn í stýris- húsið aftur heyrðum við einhvern hvell og menn héldu að seglin væru farin að slást. Ég vissi að það gat ekki verið því við vorum á það liðugum vindi að seglin voru þan- in. Ég var sendur út á dekk til að kanna málið. Sá ég þá blossa í fjar- lægð og litlu seinna þutu fallbyssu- kúlur rétt hjá með miklum hvin. Ég fór aftur inn og sagði stýrimannin- um frá því að verið væri að skjóta á okkur. Það varð úr að skipið var stöðvað og við biðum þess sem verða vildi í myrkrinu. Skothríðin hélt áfram um stund og svo var skotið upp blysi sem sprakk beint yfir okkur og hékk þar í fallhlíf. Skipið lýstist upp eins og um há- bjartan dag. Ég verð að viðurkenna að ég var orðinn verulega smeykur því aðdragandinn að þessu var ná- kvæmlega sá sami og þegar Reykjaborginni var sökkt. Þetta leit því ekki vel út. Enn biðum við og þá renndi skip sér upp að hliðinni á okkur og kallað var til okkar á ensku og spurt um ferðir okkar. Þarna reyndust vera Ameríkanar á ferð. Þegar þeir höfðu fengið allar upplýsingar sögðu þeir bara „good luck“ og slógu í og voru horfnir.“ Biluð vél og rifin segl Ekki gekk vel að fá fisk í Kapi- tönu og minntist Sigurjón þess að þeir hefðu beðið heilan mánuð á Siglufirði uns þeir fengu fisk í lest- arnar. Á leiðinni suður lentu þeir í hrakningum, vélin bilaði og seglin rifnuðu í tætlur í óveðri. Sigurjón fór því af skipinu þegar það kom til Reykjavíkur og réð sig á Hrímfaxa, 700 tonna skip. Tóku þeir fisk í Vestmannaeyjum og sigldu til Eng- lands. Eftir þann túr fór Sigurjón í Stýrimannaskólann. Hlé var á sigl- ingum um skeið en hvernig kom honum bresku hafnarborgirnar fyr- ir sjónir á þessum árum. „Þær eru nú eins og þær eru. Það var mikið drabb í þeim. Þegar menn voru langt að komnir eftir langa útivist vildi það henda að drykkjan var meiri en góðu hófi gegndi.“ Bjargaði þýskum togara Að loknu námi í Stýrimanna- skólanum fór Sigurjón aftur á Belgaum og þaðan yfir á nýsköp- unartogarann Fylki - sem leysti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fiskifréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.