Fiskifréttir


Fiskifréttir - 14.12.2001, Qupperneq 51

Fiskifréttir - 14.12.2001, Qupperneq 51
FISKIFRÉTTIR 14. desember 2001 51 TOGVEIÐAR Við komu skuttogarans Ingólfs Arnarsonar RE til landsins í janúar 1974. Frá vinstri eru Halldór E. Sigurðs- son, þáverandi fjármálaráðherra, Sigurjón Stefánsson skipstjóri og Grímur Jónsson fyrsti stýrimaður. um dekkið á 6 klukkustundum í 2- 3 hölum. Síðan var legið í aðgerð og flatningu tímunum saman. Þá var mikill hamagangur um borð. Ahöfnin var 40 manns í saltfisktúr- unum og ekki voru til kojur handa öllum þannig slá þurfti upp bráða- birgðakojum í setustofnunni." Fylltu dallinn á tveim dögum Sigurjón veiddi einnig mikið við Nýfundnaland en hann var þó ekki þar þegar Nýfundnalandsveðrið 1958 gekk yfir og togarinn Júlí fórst með allri áhöfn. „Ég mátti velja hvort ég fiskaði fyrir England eða færi á miðin við Nýfundnaland og landaði heima. Mér leist ekki á að fara til Nýfundnalands því þar var allra veðra von. Ég ákvað held- ur að sigla til Englands og var að koma þaðan þegar ósköpin dundu yfir. Ég hafði verið Við Nýfundna- land sumarið áður og fór þangað einnig næsta sumar. Þarna var mokveiði og við vorum aðeins tvo til þrjá daga að fylla dallana, tók- um 300 tonn á 48 klukkustundum. Það var stundum svo mikið í troll- inu að það splundraðist þegar það kom upp. Aðalmálið var að draga það ekki of lengi. Við fengum upp undir 40-50 tonn af karfa í hali þegar best lét en trollin voru minni í þá daga og úr hampi þannig að þau þoldu ekki mikil átök. Ég man eftir því að ekki var um neitt annað að ræða en að hífa ef við fengum lóðningu á fisksjána sem stóð yfir í eina mínútu. Trollið fylltist á því að fara í gegnum einnar mínútu þykkan fiskkökk," sagði Sigurjón og hann var í framhaldi af þessu spurður hvort þeir hefðu haft ein- hver tök á því að öðru leyti að meta hvað mikið var komið í trollið. „Þetta kom með reynslunni. Ég man eftir því að sumir skipstjórar á síðutogurunum fóru aftur á blökk til að þukla togvírana, kanna spennuna á þeim, og töldu sig finna á þeim hvenær tími var kominn til að taka trollið inn.“ Geðvondir og vitlausir Það þótti lengi loða við skip- stjóra á gömlu síðutogurunum að þeir stæðu vaktina þar til þeir hnigu niður úr þreytu en Sigurjón sagði að það hefðu orðið kynslóða- skipti í stéttinni þegar hann var að byrja. „Gömlu skipstjórarnir stóðu eiginlega þangað til túrinn var bú- inn en það var alveg að leggjast af þegar ég varð skipstjóri. Ég fór alltaf niður um miðnættið. Um klukkan 8 á morgnana hafði loft- skeytamaðurinn samband við önn- ur skip og kom niður til mín með fréttirnar; hvað og hvar menn höfðu verið að fiska. Þá var ég bú- inn að fá ágæta hvíld og það var það sem þurfti. Gömlu skipstjórun- um datt ekki í hug að leggja sig fyrr en eftir 3 sólarhringa og þá voru þeir orðnir geðvondir og vit- lausir.“ Flaska í nestið Þegar líða tók á 6. áratuginn og næsta áratug þar á eftir tók að halla undan fæti í útgerð síðutogaranna. Rekstur þeirra gekk illa og skip- verjar stukku af þeim um leið og þeir fengu pláss á síldveiðiskipum. „Þegar verst lét var illmögulegt að gera þessi skip út vegna þess hve erfitt var að fá menn á þau. Utgerð- armenn voru kannski að koma með strákana í bíl niður á bryggju og létu þá hafa flösku í nestið ef þeir vildu fara um borð. Eftir að út var komið var mannskapurinn óvinnu- fær í meira en sólarhring. Þetta var ekki forsvaranlegt og ýmsir eldri skipstjórar hættu vegna þess. Sem betur fer lenti ég aldrei í þessu því ég var með gamla togarajaxla sem höguðu sér eins og menn.“ Sigldi tveimur Spánar- togurum heim Þegar nýsköpunartogararnir komu til landsins varð bylting í togaraútgerð og Sigurjón tók þátt í henni frá upphafi sem stýrimaður á Fylki og skipstjóri á Ingólfi Arnar- syni eins og fram er komið. I byrj- un áttunda áratugarins varð enn rótækari bylting í togarútgerð með tilkomu skuttogaranna. Sigurjón tók einnig þátt í þeirri byltingu. Hann sigldi tveimur skuttogurum heim fyrir Bæjarútgerð Reykjavík- ur, Bjarna Benediktssyni RE og Ingólfi Arnarsyni RE hinum nýja, og var skipstjóri á þeim báðum. Þetta voru systurskip smíðum á Spáni og voru þau stærstu skip í ís- lenska fiskiskipaflotanum á sínum tíma, um 960 tonn að stærð. Bjarni Benediktsson RE kom til landsins 16. janúar 1973. Heimsiglingin gekk vel að frátalinni bilun í vél. Járnbútar í olíutönkum Sigurjón sagði að það hefðu ver- ið mikil viðbrigði fyrir sig að fara á nýtt skip eftir að hafa verið með sama skipið í 20 ár og þurfa að til- einka sér nýja gerð skipa og nýja veiðitækni í ofanálag. „Strax og skuttogararnir komu til landsins varð ljóst að þeir afköstuðu meira en síðutogararnir. Maður sá einnig fram á að það yrði endanlega ekki hægt að manna þessa gömlu síðu- togara. Ég var því strax fús að taka við Bjarna Benediktssyni RE þegar það kom til tals. Þetta var miklu stærra skip og öðruvísi búið en ég hafði átt að venjast. En hvort tveggja vandist furðufljótt og skip- ið var fyrirferðarminna en ég átti von á. Þrátt fyrir stærðina var það mjög liðlegt í öllum snúningum. Ég var því ánægður með skipið en fljótlega kom í ljós að vélarbilunin var alvarleg. Skipið tafðist frá veiðum hátt í fimm mánuði á fyrsta ári. Tjón hafði orðið á vélinni vegna óhreininda í olíutönkum. Skilið hafði verið eftir í þeim járn- svarf og ólíklegustu hluti að því talið var, svo sem járnbúta. Af þessu urðu mikil eftirmál sem komu óorði á Spánartogarana að ósekju því þetta voru ágæt skip. Þessar vélarbilanir voru að stríða okkur alveg fram á haust. Þá fór þýskur sérfræðingur með mér í veiðiferð til þess að stilla vélina endanlega. A það er að líta að skip- ið sjálft stóð sig alltaf vel ef frá eru taldar þessar hvimleiðu vélarbilan- ir. En ég notaði samt tækifærið strax og það gafst til þess að kom- ast um borð í Ingólf Arnarson hinn nýja en ég sigldi honum frá Spáni til Reykjavíkur í janúar 1974.“ Fyrsti nýsköpunartogar- inn í niðurrif Um það leyti sem Sigurjón hætti á gamla Ingólfi Arnarsyni átti skip- ið 25 ára afmæli og var þess þá minnst að þetta hafði verið mikið happafley og aldrei þurft að kosta neinu til þess fyrir utan reglubund- ið viðhald. Þegar skuttogarinn Ingólfur Arnarson RE kom til landsins var nafni gamla skipsins breytt í Hjörleifur RE og gerði BUR það út áfram. Utgerð þess var síðan hætt árið 1974 og um haustið var þessi fyrsti nýsköpunartogari landsmanna seldur í brotajárn til Spánar. Var stýrið tekið úr skipinu og farið með það á Þjóðminjasafn- ið. Rætt var um að varðveita skipið til minja um þennan þátt í atvinnu- sögu landsins en Sigurjón sagði að það hefði verið óraunhæf hug- mynd. Skipið hefði fljótt ryðgað í sundur. En mörgum var eftirsjá af þessu skipi sem hafði á 27 árum komið með 94.230 tonna afla að landi og megnið af því í skipstjóra- tíð Sigurjóns Stefánssonar. Öllu kastað sem ekki var markaðsvara Sigurjón fór í land árið 1977 þá 57 ára að aldri eftir rúmlega 40 ára sjómannsferil, þar af 25 ár sem skipstjóri. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra Togaraaf- greiðslunnar í Reykjavík og gegndi því starfi til ársins 1984 erTogaraf- greiðslan var lögð niður. Hann hóf þá störf hjá veiðarfæradeild Krist- jáns Ó. Skagfjörðs og starfaði þar uns hann fór á eftirlaun. Það er ekki úr vegi að ljúka spjallinu við Sigurjón með því að inna hann álits á máli málanna í dag, fiskveiðistjórnunarkerfinu og brottkastinu. „Mér finnst brott- kastsumræðan svolítið kjánaleg að því leyti að menn láta eins og þetta sé nýtilkomið. Ég hélt að allir Is- lendingar sem eitthvað hafa fylgst með sjávarútvegi vissu að brottkast hefði verið tíðkað um langan aldur. Þegar ég var á skaki fyrir vestan á litlum pungi á unglingsárunum reri ég með gömlum togarasjómanni. Hann fræddi mig á því að eftir að hrygningu þorsks lauk á Selvogs- banka og þorskurinn var farinn sína leið á Halamiðin sigldu þeir austur á Hvalbak. Þar var svakalegt mok en fiskurinn smár og helm- ingnum var fleygt því þeir veiddu í salt. Svona var þetta upp úr 1930. Það hefur viðgengist alla tíð að fiski sem ekki er markaðsvara er fleygt. Þetta er staðreynd og skrýt- ið ef menn hafa ekki heyrt þetta fyrr en hitt er annað mál að mér er óskiljanlegt ef menn henda verð- mætum fiski. Ég er hlynntur því að stjórna veiðunum með því að úthluta kvót- um á skipin en ég er ekki sáttur við það að menn geti verslað með kvótann. Það hefði aldrei átt að leyfa það. Þeir sem fá kvóta úthlut- að eiga að veiða hann og ef þeir hafa ekki tök á því á að úthluta honum til annarra," sagði Sigurjón Stefánsson.

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.