Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Qupperneq 6
4
Ritgerð sú, sem hér birtist, fjallar um gróðurfar þeirra þriggja afrétta,
er takmarkast af Þjórsá að austan, en Hvítá og Jökulfalli að vestan, en
þeir eru: Hrunamanna-, Flóa- og Skeiðamanna- og Gnúpverjaafréttir.
Voru þeir kortlagðir á árunum 1962—64, nema Gnúpverj aafréttur sunnan
Fjórðungssands, sem var kortlagður 1955. Gróðurlýsingin byggist á kort-
lagningu afréttanna og fjallar almennt um niðurstöður hennar. Verður
hér ekki rætt um aðra þætti rannsóknanna, en ýmsar niðurstöður þeirra
hafa verið birtar á undanförnum árum. Einstökum gróðurhverfum á
afréttunum er ekki lýst, heldur mun það gert sérstaklega síðar.
Við upphaf þessara afréttalýsinga skulu þakkir færðar eftirtöldum
aðilum: Dr. Birni Jóhannessyni, sem átti frumkvæðið að rannsóknunum,
Steindóri Steindórssyni, náttúrufræðingi, er verið hefur grasafræðilegur
ráðunautur frá upphafi og tekið þátt í flestum öræfaleiðöngrum, Einari
Gíslasyni, aðstoðarmanni, Gylfa Má Guðbergssyni, magister, og öllum
öðrum, er unnið hafa lengri eða skemmri tíma á sumrin að kortlagn-
ingu og annarri gagnasöfnun.
Landmælingum íslands og U.S. Map Service er þakkað fyrir góða sam-
vinnu við útgáfu gróðurkortanna svo og þeim aðilum, sem veitt hafa
fjárstyrki til þessara rannsókna, en það eru Vísindasjóður, Landgræðslu-
sjóður og Vísindadeild NATO.
Dr. Þorleifur Einarsson, jarðfræðingur, skrifaði kaflann um landafræði
og jarðfræði svæðisins, og Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur, kafl-
ann um úrkomu, og er þeim báðum þakkað.
Ingvi Þorsteinsson.