Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Page 13

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Page 13
11 jafnan basalt. Líparít er að finna á nokkrum stöðum, svo sem við Stóru- Laxá, í Þjórsárdal (Skeljafell, Rauðukambar og Fossalda), í Fitjaskóg- um og í Kerlingarfjöllum, sem reyndar eru nær eingöngu gerð úr þessari ljósu bergtegund. Jarðmyndun þessi er bezt könnuð í Hreppum og dregur nafn af þeirri sveit og nefnist Hreppamyndun. Elztu lög hennar munu vera síðtertier að aldri, en mest af henni mun þó vera orðið til á ísöld, ýmist á hlý- eða jökulskeiðum. Hér er gert ráð fyrir, að ísöldin hafi staðið um 3ja milljóna ára skeið. Jarðlögum Hreppamyndunarinnar á svæðinu hallar til beggja hliða frá því miðju um 2—3° til NV að vestan, en SA að austan (jarðlagaandhverfa). Umhverfis Kerlingarfjöll og sunnan Hofsjökuls eru nokkur móbergs- fjöll, sem sennilega eru til orðin á jökulskeiði síðla á ísöld. Þau eru eink- um gerð úr gosmóbergi með miklu ívafi af bólstrabergi. Við Hofsjökul svo og við Hvítá undir Bláfelli eru grágrýtisflákar, sem runnið hafa sem hraun frá dyngjum á hlýöldum síðla á ísöld. Á svæðinu er aðeins eitt hraun, sem runnið hefur á nútíma. Er það Illahraun, sem komið er upp í eldvörpum norðaustan Kerlingarfjalla. Teygjast kvíslar þess niður í farveg Miklalækjar, Kisu og Hnífár. Jarðmyndanir þær, sem nú hafa verið taldar, mynda berggrunn svæð- isins, en hann er víða hulinn jökulruðningi, jökulvatnaseti og jarðvegi. Laus jarðlög Eftir að berggrunnurinn var fullmyndaður, hafa ár og jöklar rofið hann. Allar jökulmenjar, sem nú er að finna á yfirborði berggrunnsins, eru verksummerki jökla síðasta jökulskeiðs og reyndar fyrst og fremst síðasta framhlaups jökulsins í ísaldarlokin. Hann gekk þá fram og ýtti upp mikl- um jökulgörðum um þvert suðurlandsundirlendið frá Vatnsdalsfjalli fyrir ofan Fljótshlíð og vestur til Efstadalsfjalls og þaðan norður um Sandvatn, Bláfell og með austurjaðri Langjökuls (Búðaröð). Aðrar menjar um þessa framrás eru einkum jökulrákir á klöppum, langrákaður jökulruðningur og botnurðarásar, sem benda til þess, að aðalskriðstefna jökulsins hafi verið til vesturs. Þessi jökulframrás varð fyrir 11000— 10000 árum á svonefndu Búðastigi. Jökulruðningur hylur víða berggrunninn. Hann er „leirborinn“ með stökum grettistökum og nokkuð tekinn að harðna. Efsti metrinn hefur molnað og linazt við veðrun og vindur síðan feykt burt fínasta korninu, svo að jökulruðningurinn er nú víða ærið stórgrýttur á yfirborði. Fyrir rúmum 10000 árum tók Búðajökullinn að hörfa frá Búðaröðinni vegna hlýinda. Er Þjórsárhraunið mikla kom upp á gossprungu vestan Vatnaaldna (Hófsvaðssprungan) fyrir 8000 árum, voru Tungnaáröræfi orðin jökullaus, en þar hafði ísaldarjökullinn verið þykkastur. Ummerki

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.