Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Qupperneq 31

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur - 01.10.1967, Qupperneq 31
29 ur Þjórsá. Landinu hallar austur að ánni, og eru gróðurskilyrði þar víða hin áskjósanlegustu. Að vestan ganga ógrónir geirar inn í gróðurlendið, en uppblástur, sem átt hefur sér stað á vesturmörkunum, virðist nú að mestu leyti hafa stöðvazt. Alvarleg gróðureyðing á sér hins vegar stað í suðurhluta afréttarins, í hlíðum Sandafells og sunnan þess. Á þessum slóðum eru víðáttumikil svæði með þykkum, þurrum og mjög fokgjörnum móajarðvegi. Ríkjandi gróður er þursaskegg og grös með grunnstæðu rótakerfi, er veitir litla mótstöðu gegn eyðingaröflum. Hefur þar átt sér stað mikil gróður- og jarðvegseyðing af völdum vatns og vinda. Þar eru djúp gil grafin af vatni, og á flatlendinu sunnan fellsins hefur vindurinn feykt jarðvegi og gróðri af stórum svæðum, svo að myndazt hafa örfoka geirar, sem stækka ört. Augljóst er, að þarna mun víðáttumikið gróðurlendi eyðast á næstu áratugum, verði ekkert að gert. Fjárþungi er mikill á þessu svæði vegna nálægðar við afréttargirðinguna. Nokkur uppblástur og sandfok er bæði sunnan og norðan Dalsár, og eru sendnar víðigrundir þar á víðáttumiklu svæði. Engin veruleg gróður- eyðing á sér stað sunnan Fjórðungssands að öðru leyti en hér hefur verið rakið. í Eyvafeni á Fjórðungssandi er talsverð gróðureyðing, sem orsakast af því, að votlendi hefur þornað vegna áfoks og fýkur síðan eða færist í kaf. I Þjórsárverum er engin gróðureyðing umfram það, sem eðlilegt getur talizt, og þar er sennilega nokkurn veginn jafnvægi milli gróðureyðingar og endurgræðslu. YFIRLIT OG ÁLYKTANIR í heild er tæpur þriðjungur af afréttarlandinu milli Þjórsár og Hvítár- Jökulfalls gróið land. Samfellt gróðurlendi er á tiltölulega skýrt afmörk- uðu svæði, sem takmarkast í stórum dráttum við 600 m hæð yfir sjávar- máli. Móbergshryggirnir, í 700—800 m hæð, sem ganga eftir miðju svæðinu endilöngu allt inn að Kerlingarfjöllum og Hofsjökli, eru nær ógrónir, en því meira sem landið lækkar að ánum austan og vestan hryggjanna, verður landið grónara. Kerlingarfjöll og næsta umhverfi þeirra, mega heita gróðurlaus, og hið víðáttumikla sand- og melaflæmi, Fjórðungs- sandur, á norðausturhluta svæðisins, frá Kisu allt norður í Þjórsárver, sem er í 600—800 m hæð, er nær algjör eyðimörk.

x

Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Landbúnaðardeildar : A-flokkur
https://timarit.is/publication/1604

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.