Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Qupperneq 15
Myndir af einum skósmið og tveimur fjárhirðum
Börn í berjamó i Bragðavallahólum í Hamarsdal. Eigandi myndar: Ingimar Sveinsson.
Sér hvar þær eru og þekkir landið. Var rétt
til getið, inn á Þrándames voru þær komnar.
Sigurður ákvað því að fara snemma
morguns og leita þeirra. Snjórytja hafði
verið undanfarna daga og tungl á lofti og
því ekki mjög dimmt unr nætur. Sigurður
bjó sig út með nesti og nýja skó, vaknar kl.
4-5 næsta morgun og leggur upp í göngu
inn Hamarsdal. Áætla má að vegalengdin
inn í Hamarsbætur frá Harnri sé ekki mikið
undir 30 km, vegarslóðir litlar og engar
fyrir innan Veturhús. Veður var kalt, snjó-
koma lítil en dálítið ijúk.
I birtingu er hann á Þrándamesi, gengur
nokkuð um, en fínnur ekki kindurnar. Þykir
honum nú ferð sín ekki góð orðin ef hann á
að snúa heim kindalaus. Gengur nokkuð um
og beinir svo för sinni út á við. Heyrist
honum þá kallað: „Og ætlarðu svo ekki að
taka kindumar með“. Stansar hann snöggt
og horfir í kringum sig. Sér hann þá hvar
kindarhorn stendur upp úr snjóskafli.
Gengur hann þangað og fínnur þar
kindurnar, sem hann hafði verið að leita að.
Vom þær vel haldnar, en fennt hafði
lauslega að þeirn.
Leggur hann nú af stað með hópinn út
Hamarsdal og nær í Veturhús í myrkri.
Verið getur, að hann hafi tekið sér þar
gistingu um nóttina, enda gistu smalamenn
oft á Veturhúsum, þegar Snjólfur Stefáns-
son og Ásdís Sigurðardóttir bjuggu þar.
Hér má bæta því við, að fyrr á ámm var
ekki laust við að smalamenn innst í
Hamarsdal yrðu varir við einhver dularfull
fyrirbæri. Kom fyrir að menn villtust,
jafnvel í sólskini og björtu veðri. Fannst
mönnum stundum sem vatnið rynni upp á
móti brekkunni. Heyrði ég eitt sinn frænda
rninn einn segja frá slíkri reynslu. Var þetta
stundum kennt tröllkonunni Menglöð, sem
átti að eiga heima í hellisskúta undir
Menglaðarfossi, innst í Hamarsdal.
Guðjón Brynjólfsson, fræðimaður frá
Stannýri, segir frá Menglöðu tröllkonu í
Grímu, (22. hefti 1947), tímariti um þjóðleg
fræði, sem gefið var út á Akureyri um miðja
síðustu öld.
13