Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Blaðsíða 44
Múlaþing
Sigurðsson fann lík hans undir stórum steini
með baggann við bakið og var hann þá
látinn fyrir nokkru. „skríður maðkurinn út
og inn um vit líksins og var það ófögur
sjón“. ( Söguþœttir landpóstanna II. bindi,
bls. 230 - 231 ). En Magnús var jarðsettur
12. dag júlímánaðar um sumarið.
í aðalmanntali haustið 1860 er Þuríður
Ámadóttir, 41 árs, skráð á Kálfshóli með 4
böm: Sigriður 19 ára, Halldóra 12 ára,
Sigurveig 8 ára og Gunnlaugur 6 ára.
Fjölskyldan fluttist brott vorið eftir. Þuríður
mun mest hafa dvalist í Eiðaþinghá. Árið
1872 fluttist hún frá Finnsstaðaseli til Rósu
dóttur sinnar, sem bjó í Nýjabæ á Hóls-
fjöllum, gift Sigurbirni Þorsteinssyni bónda
þar. Þuríður fór með ijölskyldunni til
Ameríku árið 1879 og var þá sextug að
aldri. (Vesturfaraskrá).
Sigríður Magnúsdóttir eldri giftist Jóni
Sigurðssyni bónda í Fossgerði í Eiða-
þinghá. Þau fluttust til Ameríku ásamt 4
bömum sínum árið 1882. Þorbjörg
Magnúsdóttir giftist Amgrími Amgríms-
syni í Finnsstaðaseli. Þau fóm með tvo sonu
sína til Ameríku árið 1882 frá Seyðisfirði
með sama skipi (Camoens) og ijölskylda
Sigríðar.
Bjarni Eyjólfsson og Eygerður
Gísladóttir
Vorið 1861 fluttust hjónin Bjami (2916)
Eyjólfsson, f. um 1809 og Eygerður (2906),
Gísladóttir, f. um 1812 að Kálfshóli. Þau
voru bræðrabörn. Föðurafi þeirra var
Þórður (2902) Gíslason á Finnsstöðum,
kvæntur Eygerði (4442) Jónsdóttur pamfíls.
Hún var systir Hermanns í Firði í Mjóafirði.
Gísli (2905) Þórðarson, faðir Eygerðar á
Kálfshóli var kvæntur Guðnýju Steingríms-
dóttur. Bjuggu fýrst í Mjóanesi í Skógum,
fluttust þaðan að Ásunnarstöðum í Breiðdal
og enduðu ævi sína þar.
Eyjólfur (2909) Þórðarson, faðir Bjama
á Kálfshóli, þótti harðgerður svoli. Kona
hans var Guðrún (4000) Bjamadóttir frá
Hofí í Fellum. Bjuggu fyrst á Borg í
Skriðdal og fluttust árið 1836 að Skriðu í
Breiðdal. Bjami sonur hans staðnæmdist þó
á Ásunnarstöðum hjá Gísla föðurbróður
sínum og kvæntist dóttur hans Eygerði. Þar
em þau talin ábúendur í sóknarmannatali
Eydalakirkju, skráðu á nýári 1858. Þeim
fæddust 8 böm á 16 ámm, talin hér í
aldursröð: Guðný (2923), Ingibjörg (2921),
Eyjólfur (2917), Vigfús dó ungur, Guðrún
(2920), Sigríður (2922), Margrét (2924) og
Þórður (2919). Fimm þeirra vom síðar í
vinnumennsku á Héraði, trúverðugt starfs-
fólk. Margrét giftist Sigfúsi (14537)
Sigurgeirssyni úr Tungu og bjó Jón sonur
þeirra lengi í Hallfreðarstaðahjáleigu.
Eyjólfur Bjarnason kvæntist Solveigu
(10486) Guðmundsdóttur frá Krossi í
Fellum. Sigurrós hét dóttir þeirra. Hún átti
dótturina Svövu með Jóni (10527)
Ármannssyni á Hrærekslæk í Tungu. Svava
varð ráðskona föður síns og sá um uppeldi
hálfsystkina sinna eftir að móðir þeirra,
Anna Pétursdóttir, lést af slysfömm í maí
1941. Sonur Svövu heitir Björgvin Ámason.
Síðar var Svava ráðskona hjá feðgunum
Kristni Eiríkssyni og Jóni á Keldhólum á
Völlum.
Svava lést árið 1991 og var jarðsungin
28. september á Kirkjubæ.
Sigurrós Eyjólfsdóttir giftist Birni
Sigurðssyni bónda á Tjarnarlandi í
Hjaltastaðarþinghá. Dóttir þeirra María býr
í Reykjavík.
Ekki verður nú séð hvað olli því að
Bjami Eyjólfsson og Eygerður Gísladóttir
fluttust með öll bömin frá Ásunnarstöðum í
Breiðdal í þröngbýlið á Miðhúsum í
Eiðaþinghá. Þar em þau skráð í aðal-
manntali 1. október 1860. Vorið eftir
42