Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2007, Blaðsíða 135
Frá Jökuldalsfólki
Baðstofan í Hnefilsdal. Maðurinn á hestinum er Ragnar Agústsson.
Eigandi myndar: Jökuldalshreppur hinn forni.
henni er hið sama burðarvirki
og steypt var fyrir kerrubrúna
árið 1924.
En Guðmundur Hávarðsson
var framfaramaður á fleiri
sviðum. Hann lét gera vandaða
og nýstárlega baðstofu í
Hnefilsdal árið 1896 með
gluggaþili milli stafna uppi og
niðri, sem var íverustaður fólks
fram um 1960.
En framfaramálin gengu
hægt eins og fram er komið, og
við bættist erfitt árferði, sér í
lagi vorharðindi 1899, en þá
gáfust upp hey í Hnefilsdal og
vafalaust víða annarsstaðar
líka, og rak þá Guðmundur Hávarðsson um
400 fjár norður í Möðrudal til beitar. í
dalskoru sem kallast Möðrudalur vestan í
Fjallgörðunum voru þá einhverjar snapir, en
segja má að nú um stundir sjáist þar ekki
stingandi strá. Fljótlega mun hafa gengið í
norðanstórhríð sem stóð óvissan tíma, og
varð þá að reka féð nærri bæ og standa yfír
því. Eitthvað af fé fórst í krapablám þegar
snjóa tók að leysa m.m. Voru æmar þar
fram yfír sauðburð, en á heimleiðinni tókst
ekki betur til en svo að ungur vinnumaður
Guðmundar, Jón Brynjólfsson að nafni,
fórst í Sauðá á Dal, en hann hafði verið
uppfóstraður af þeirn hjónum Guðmundi og
Jómnni í Hnefílsdal, mun enda hafa verið
frændi Jórunnar. Reyndar hefí ég sterkan
grun um að þeir bræður Pétur og
Guðmundur hafí báðir rekið fé norður, en
Pétur hafði þá fyrir nokkm misst konu sína
eins og áður er fram komið, og hygg ég að
þegar hér var komið hafí hann verið öðmm
þræði viðflæktur hjá bróður sínum í
Hnefílsdal, og vel gátu þessi harðindi ásamt
sviplegu fráfalli vinnumannsins orðið til
þess að þeir bræður fóru að hugsa til þess að
flytja vestur um haf. Verið getur og að þeim
hafi orðið hugsað til þess hvenær helstu
flutninga-leiðir til kaupstaðar yrðu orðnar
greiðari, og hafi máski örvænt um að árin
yrðu ansi mörg áður en það yrði.
Nú fór að styttast í yfírráðum Hneflunga
á jörðinni Gauksstöðum, því vorið 1902
flutti Gunnar Jónsson frá Háreksstöðum,
sem síðar var kenndur við Fossvelli í Hlíð,
í Gauksstaði, hafandi keypt jörðina af
erfingjum Hávarðs Magnússonar (Helgu
Hávarðsdóttur samkv. Sveitum ogjörðum í
Múlaþingi), og Gunnar bjó á Gauksstöðum
næstu fímm ár. Þar með var lokið eign og
ábúð Hneflunga á jörðinni.
Vorið 1903 fór Pétur Hávarðsson frá
Hnefílsdal vestur um haf með tvær dætur
sínar, Oddnýju Helgu Sigríði sem þá var
liðlega tvítug og hafði verið vinnukona á
Skjöldólfsstöðum, og Hallfríði Elínu Þóm
sem þá var 14 ára, en Sigvarður sem þá var
24 ára varð eftir hér á landi eins og fyrr er
fram komið. Pétur lést í Grafton Norður-
Dakóta 5. janúar 1925, og hefur þá verið
um sjötugt.
133