Heilsuvernd - 01.09.1953, Side 6
HEILSÚVERND
Jónas Kristjámsson,
lœknir:
IVý læknisfræði.
IVý hugarstefna.
Hafa vestrænar þjóðir eða hin almenna háskólalæknis-
fræði fyrir þeirra hönd gert sér grein fyrir þeirri
sannreynd, að þær eru á hrapandi hrörnunarskeiði vaxandi
kvillasemi og úrkynjunar, þrátt fyrir öll læknavisindi og
framfarir á öllum sviðum læknisfræðinnar?
Að vísu hefir læknisfræðinni tekizt að ráða nokkra bót
á næmum sjúkdómum með auknum þrifnaðar- og sóttvarn-
arráðstöfunum. En hrörnunarkvillarnir hafa vaxið örar en
sem því nemur, og þeir eru ólæknandi með þeim aðferðum,
sem hin almenna læknisfræði beitir. T. d. er ekki hægt að
lækna sykursýki með insúlíni. Það heldur henni í skefjum
um hríð og bætir líðan sjúklinganna. En lækning er það
ekki, fyrst sjúklingurinn þarf að nota insúlínið að staðaldri,
enda er engin bót ráðin á orsökum sjúkdómsins. Það er
heldur ekki lækning á tannveiki, þótt tannlæknar fylli
upp í holur eða dragi út skemmdar tennur. Orsakirnar
eru látnar afskiptalausar, og nýjar holur myndast. Og
þannig mætti telja upp flesta hrörnunarsjúkdóma og sýna