Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 17
HEILSUVERND
77
en vökuvenjurnar móta allmikið svefnöndunina. Er því
nauðsynlegt, að þær séu sæmilega rétt myndaðar.
Lítum nánara á svefnöndunina. Við virðum fyrir okkur
heilbrigt, sofandi barn. Það er hvíld. Er þá hvíldin kyrrð?
Nei, langt frá því. I líkamanum er mikil hreyfing. Við tök-
um sængurfötin ofan af barninu (ef það hefir ekki þegar
sparkað þeim af sér). Við sjáum, hvernig brjósthol og
kviðarhol þenst út og stækkar verulega með mjög eindreg-
inni hreyfingu. Ekki er henni lokið fyrr en önnur hreyfing
hefst þegar. Líkaminn slakar á takinu, loftið sem inn hefir
verið dregið, streymir út aftur jafnt og þétt. Þegar út-
streyminu er lokið, verður ekkert hlé, heldur byrja vöðva-
tökin aftur að soga loftið inn. Og við dáumst að þessari
elju, að nota hvert augna'blik til starfs. Þessi rösklega,
stöðuga athöfn, er sem ímynd iðjuseminnar. Heiibrigður
svefn er sannarlega annasamt starf.
Við virðum barnið betur fyrir okkur. Það er greinileg
bylgjuhreyfing utan á hálsinum, háttbundin, og yfir henni
er fjörlegur þokki. Og nú er okkur enn ljósari en áður
hin mikla innri hreyfing barnsins. Blóðið streymir með
léttum hraða um æðarnar, knúið átaki hjartans. Þetta
átak verður auðveldara og áhrifameira, ef lungun fá að
fyllast vel af lofti og hæfilega hratt. En einhvers staðar
hefi ég lesið, að hver hluti hjartans erfiði einn þriðja úr ævi
mannsins, en hvíli sig að mestu tvo þriðju ævinnar, og svara
þessi vinnu- og hvíldaraugnablik þá til 8 stunda vinnudags
hjartans. Ekki þarf þá að vorkenna hjartanu þetta „hvíldar-
lausa“ starf í vöku og svefni. En fulla -samúð skulum við
þó sýna starfsemi hjartans. Kaldrifjaðir eru þeir menn,
sem breyta við hjarta sitt eins og grimmur villimaður við
réttlausan óvin. Hjartanu ber heiður og virðing fyrir sitt
mikilvæga og vökula starf. Það á fullan rétt á að starfa
létt og rösklega og að hreyfingin sé ekki tafin eða ofþyngd
m. a. af grunnum andardrætti.
Nú 'hugsum við okkur andstæðu heilbrigða barnsins sof-
andi, t. d. holdugan reykjara, sem situr í klessu í hæginda-