Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 32

Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 32
HEILSUVERND Hárþvotto- og hárlitunarefni varasöm. Fyrir fáum árum komst franska kvenþjóðin í uppnám, er það vitnaðist, að kona ein i París hafði látizt að afstöðn- um hárþvotti, en í hárþvottaefninu, sem hún notaði, var eiturefni, sem kallað er kolefnistetraklórið. Nokkru síðar var gefin út reglugerð, sem bannaði sölu hárþvotta- og hár- litunarefna, sem innihalda þetta efni og nokkur önnur til- greind eiturefni. Sérstaklega munu það þó vera hárlitunar- efnin, sem hætta stafar af. Frá 'þessu er sagt í franska tímaritinu Vie et Santé, sem jafnframt leggur konum eftirfarandi ráð til að komast að raun um, hvort þeim stafi hætta af þeim hárþvotta- eða litunarefnum, sem þær ætla að nota. Húðin á bak við eyrað, rétt við hársvörðinn, er hreinsuð með vínanda eða eter, og síðan er nokkrum dropum af efninu borið á blett, sem er 2—3 cm á hvern veg, látið þorna og ekki þvegið af fyrr en að einum eða tveimur sólarhringum liðnum. Sýni húðin einhvern þrota á þessum stað, ætti konan ekki að nota efnið til þvottar eða litunar. — Að sjálfsögðu er hættan af þessum efnum enn meiri, ef fleiður eða sár eru í húð eða hársverði. VARIZT. Varizt að borða á milli máltiða. Varizt að borða fljótt. Varizt að gleypa matinn hálftugginn. Varizt að steikja matinn í feiti. Varizt að deila við eiginmann yðar eða eiginkonu í viðurvist barnanna. Varizt að setja út á náungann eða tala illa um hann, svo að börn- in heyri. Börn taka betur eftir en flesta grunar, og þau eru vís til að endurtaka það, sem þau heyra, þegar verst gegnir. Varizt að leita ávirðinga og galla hjá náunganum. Leitið að því góða i fari hvers manns. Reyndu að þekkja sjálfan þig og uppræta þína galla. (H. C.).

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.