Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 25

Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 25
HEILSUVERND 85 unnar yfir höfuð. Dagleg hreyfing undir beru lofti eykur matarlyst og útgufun gegnum húð og þar með vökvaskipti líkamans. 8. Tannburstun er ekki nauðsynleg þeim, sem lifa ein- vörðungu á hráfæði, og þá tel ég tannhreinsunarefni bein- línis skaðleg, af því að þau trufla eðlilegan gerlagróður í munni. En borði menn soðinn mat, og sérstaklega ef borðuð eru sætindi, kökur eða fínt brauð, er nauðsynlegt að bursta tennurnar undir eins eða sem allra fyrst á eftir. 9. Tannskoðun. Hver maður ætti að fara til tannlæknis a. m. k. einu sinni á ári, fá viðgerð á skemmdum, sem komið hafa, eða vissu sína fyrir því, að ekkert sé að. 10. Hráar kartöflur. Ef ég væri beðinn að nefna eitt- hvað sérstakt, sem framar öðru stuðlaði að verndun tanna, mundi ég nefna hráar kartöflur. Þær á að borða með hýði — vel þvegnar — því að í hýðinu er mikið af flúor, sem er nauðsynlegur tannglerungnum. Bezt venjast menn bragð- inu af hráum kartöflum með því að skera þær í sneiðar ofan á gróft brauð. Þá vil ég mæla sérstaklega með hráum lauk og vatnsdrykkju. Með því að spyrja sjúklinga mína, hefi ég komizt að raun um, að fólk, sem lifir á venjulegu fæði en hefir góðar tennur, drekkur jafnaðarlega mikið vatn. (Lauslega þýtt úr Waerlands Mánads-Magasin). BLINDA AF VÖLDUM TÓBAKS OG ÁFENGIS. Augnsjúkdómur, sem á læknamáli er kallaður ambliopia og lýsir sér í vaxandi sjóndepru og að lokum algerðri og ólæknanlegri blindu, stafar oftast af neyzlu tóbaks og áfengis. Sjóndepran á- gerist hægt og hægt, án þess aS sjúklingurinn verði þess var, vegna þess að þrautir eSa önnur einkenni fylgja honum ekki. —• í Frakklandi dró mjög úr þessum sjúkdómi á stríðsárunum, vegna þess að þá var minna neytt en áður af tóbaki og áfengi. Á síðustu árum hefir hann aftur færzt i vöxt, og er nú tekið að bera á honum hjá konum ,enda fer áfengisneyzla þeirra vaxandi, og í reykingum eru þær nú orðið ckki eftirbátar karla. (Vie et Santé).

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.