Heilsuvernd - 01.09.1953, Qupperneq 9
HEILSUVERND
Bahteríar snúast til vornar gegn lyfjnm.
Á síðari árum hafa fundizt mörg ný lyf gegn 'bakteríum
og vírusum, sem notuð hafa verið með miklum árangri
gegn ýmsum næmum sjúkdómum, svo og bólgum og ígerð-
um (súlfalyf, penisilín, streptómysín o. s. frv.). Því miður
hafa lyf þessi ekki reynzt eins ósaknæm fyrir sjúklinginn
og látið var í fyrstu, og hefir oft verið að því vikið hér í
ritinu. Er þetta þeim mun hættulegra, sem læknar virðast
kunna sér lítt hóf um notkun þeirra og beita þeim í tíma
og ótíma, oft án þess að kunnugt sé um orsakir sjúkdómsins
eða brýn nauðsyn sé fyrir hendi. Misnotkun þeirra er og
hættuleg fyrir þá sök, að svo virðist, sem bakteríudrepandi
áhirf þeirra dvíni, ef sami maður notar þau oft. Reynast
þau af þeim ástæðum stundum gagnslaus, t. d. þegar
lungnabólgu ber að höndum. Virðist svo sem sóttkveikj-
urnar öðlist mótstöðuafl gegn lyfjunum, líkt og t. d. skor-
dýr öðlast mótstöðuafl gegn eiturlyfinu DDT.
f franska tímaritinu Vie et Santé segir, að tveir doktorar
í líffræði við hina heimsfrægu Pasteurstofnun í París hafi
skýrt svo frá, að við notkun hinna nýju bakteríudrepandi
lyfja myndist smámsaman nýir bakteríustofnar, sem fram-
leiði varnarefni gegn lyfjunum og verði þannig ónæmir
fyrir þeim. Þannig hafi penisilín t. d. unnið á 90% vissra
bakteríutegunda í fyrstu, en smámsaman hafi hinum ó-
næmu stofnum fjölgað úr 10% upp í 80%.
til þess að verða heilaþroskuð vera með sjálfstæðri hugsun.
Hann hefir að mestu glatað eðlisávísan sinni, sem er rödd
náttúrunnar og firrir dýrin að miklu leyti sjúkdómum og
hrörnun. En mennirnir eiga að nota hugsun sína og vit í
staðinn. Þeir verða að skilja, að mannlegir sjúkdómar eru
sjálfskaparvíti og að náttúrlegt heilsufar hvers manns er
fullkomin heilbrigði.