Heilsuvernd - 01.09.1953, Side 10
Gretar Fells, rithöfundur:
listin ai lifd
- og deyjfl.
(Ur fyrirlestri).
Stundum er því haldið fram, að langlífi sé síður en svo
eftirsóknarvert í sjálfu sér, og í því sambandi er jafnvel
talað heldur illa um ellina. Henni er margt til foráttu fund-
ið, en æskan að sama skapi lofuð og vegsömuð. Því er
'haldið fram, að það sé ekki langlífi, er stefna beri að, heldur
sé hitt eftirsóknarverðast að „lifa stutt — en lifa vél“, eins
og það er orðað. En við þetta er það að athuga, að þegar
talað er um að „lifa vel“ í þessu sambandi, er of oft átt
við það, að lifa skemmtilegu og þægilegu lífi, jafnvei
nautnalífi, eitthvað í svipuðum anda og fram kemur í hin-
um fornu setningum: „Etum og drekkum og verum glaðir,
því að á morgun deyjum vér“. Hér er auðvitað um villu-
kenningu að ræða. Hitt er allt annað mál, að stutt líf getur
verið jafn árangurs- og blessunarríkt og langt líf, og meira
að segja miklu fegurra og stærra og gjöfulla í andlegum
skilningi. Á það hér við, er Jónas Hallgrímsson sagði, að
„oft hefur tvítugur
fyrir tær stigið
sjötugum segg,
er svefnugur hjarði“.