Heilsuvernd - 01.09.1953, Qupperneq 13
HEILSUVERND
73
langt gengið og í framtíðardraumi Jesaja, sem áður var
nefndur.
En nú liggur fyrir að athuga, hvað það sé, er
einkum til þess þurfi að ná háum aldri. Það er að sjálf-
sögðu margt og verður fæst af því rakið hér, enda veitti
sjálfsagt ekki af mörgum fyrirlestrum til þess að gera
því öllu full skil. Hér verður aðallega drepið á eitt einasta
atriði, en það er líka svo stórt atriði, að það getur talizt
eitt af frumskilyrðum langlífis, ef ekki aðalatriði aðalatrið-
anna á þessu sviði. Frá því segir í helgum fræðum Austur-
landa, að lærisveinar Búddha hafi einhverju sinni komið
að máli við hann, og beðið hann að láta sig hafa, ef unnt
væri, í einu einasta orði þá leiðsögn, er fæli í sér allt eða
flest, sem nauðsynlegt væri til þess að geta lifað heilögu
lífi, er leiddi til lausnar. Var ekki til einhver móðurdyggð,
er svo mætti kalla, móðurdyggð, er fæddi af sér allar aðrar
dyggðir. Var ekki til eitthvert eitt leiðsagnarorð, er komið
gæti í staðinn fyrir hundrað orð og gert þó sama gagn?
Sagan segir, að Búddha hafi orðið við þessari ósk læri-
sveina sinna. Hann lét þá hafa eitt orð, sem auðvelt er að
muna, og felur vissulega í sér holla og sígilda áminningu,
frjósamt orð og örlagaþrungið. Þetta eina orð var: gaurn-
gcefni. — Var það vissulega samboðið vizkumeistaranum
að velja þetta orð, enda mun mega rekja flesta heimsku
og yfirsjónir til skorts á gaumgæfni. — Þegar um er að
ræða langt líf og farsælt, er alveg áreiðanlegt, að þar er
það einmitt gaumgœfnin, sem mestu máli skiptir.
Fyrsta boðorð þess manns, er verða vill langlífur í land-
inu, verður því þetta: Lifðu með gát! Tem þér gaumgæfni
á öllum sviðum, gaumgæfni um mataræði, gaumgæfni um
hreyfingu, hvíld og svefn, og síðast en ekki sízt — gaum-
gæfni um tilfinningar, hugsanir og orð. Til marks um það,
hve gaumgæfnin sé mikils virði með tilliti til heilsunnar,
má nefna það fyrirbrigði, sem alkunnugt er, að menn, sem
fengið hafa ef til vill mjög hraustan líkama í vöggugjöf,
verða stundum skammlífir og deyja jafnvel skyndilega, en