Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 14
74
HEILSUVERND
hinir, sem verða að burðast með veiklaðan likama, ná oft-
sinnis háum aldri. Þetta er vegna þess, að hinir fyrr
nefndu fara oft gálauslega að ráði sínu með tilliti til heilsu
sinnar og líkamskrafta, en hinir siðar nefndu eru gaum-
gæfnir um lífshætti sína alla. Það gerir gæfumuninn. —
Lifðu með gát! — verður því fyrsta boðorð hvers þess
manns, er lifa vill vel og lengi.
(Niðurlag í næsta hefti).
EITUREFNI í INNFLUTTU HEILHVEITI.
Hér í ritinu (1.—2. h. 1948 og 2. h. 1949) hefir verið sagt frá
því, að eitruðu efnasambandi (köfnunarefnis-tríklóríd, einnig
kallað agene) sé blásið inn í hveiti til að verja það skemmdum. Er
skýrt frá vísindalegum dýratilraunum, sem sýndu, að efni þetta
olli alvarlegum taugatruflunum, er leiddu tilraunadýrin oft til
dauða. Fyrir nokkru hefir verið bannað að nota þetta efni í
ameriskt hvciti, sem ætlað er til neyzlu í landinu sjálfu. En jiað
mun enn vera sett i útflutningsliveiti, og í Englandi mun það
einnig vera notað.
Nýlega skýrir enska timaritið Rude Health svo frá, að efni þetta,
agene, sé einnig sett i heilhveiti. En með þvi að í heilhveiti er meira
af fjörefnum en í hvítu hveiti og allar efnabreytingar örari, þurfi
meira agene i það en i hvíta hveitið til að stöðva efnabreytingarnar
og skemmdirnar, sem af þeim leiðir.
Eftir þessu að dæma er það að fara úr öskunni í eldinn að borða
erlent heilhveiti í stað hins hvíta. I jressu máli er þvi eina lausn-
in sú, að flytja inn kornið og mala það hér heima, annaðhvort
i stórum kornmyllum eða litlum heimiliskvörnum. Gildir það vit-
anlega ekki aðeins um hveiti, heldur almennt um allt korn.
HRESSINGARHEIMILI NLFÍ.
Hressingarheimilið starfaði til ágústloka og var fuliskipað mik-
inn hluta júli og ágúst, svo sem hin fyrri sumur. Tilliögun var
með sama hætti og áður. í næsta hefti verður nánar skýrt frá
starfseminni, og mun forstöðukonan, frú Sigurlaug Jónsdóttir,
m. a. lýsa fæðinu og iáta lesendum i té nokkrar uppskirftir.
FJÓRÐA LANDSÞING NLFÍ
verður háð í Reykjavík laugardag 17. og sunnudag 18. október n. k.