Heilsuvernd - 01.09.1953, Page 15
HEILSUVERND
Venjulega er talið, að lungnabólga stafi af sýkli. Nátt-
úrulæknar líta þó annan veg á orsakir hennar. Dr. Rasmus
Alsaker kveður meginorsök lungnabólgu vera veiklun
líkamsvefjanna vegna söfnunar eiturefna í þeim. Með þessu
sé sýklunum búinn 'hentugur jarðvegur, sem er nauðsyn-
legt skilyrði fyrir því, að þeir verði skaðlegir. Hann hagar
meðferð sinni á lungnabólgusjúklingum í samræmi við
þetta, og er vikið að árangri þeirra aðferða á öðrum stað
í þessu hefti.
Sú kenning, að lungnabólga sé fyrst og fremst innvortis
óþrifnaðar- eða eitrunarsjúkdómar styrkist af þeirri
staðreynd, að hún er lítt eða ekki næmur sjúkdómur, eins
og vera mundi, ef bakterían væri aðalorsök hans. Og sömu
ályktanir má draga af reynslu lækna hin síðari ár, sam-
kvæmt upplýsingum frá sænskum lækni í nýlegu hefti af
Waerlands Mánads-Magasin.
Hann skýrir svo frá, að í seinni tið sé farið að bera á
sveppálungnábölgu, sem er enn verri viðfangs en bakteríu-
lungnabólga. Ástæðuna telur læknirinn þá, að þótt nýju
lyfin ráði niðurlögum bakterianna, bæti þau ekki hið sjúk-
lega allsherjarástand líkamans, þvert á móti. Afleiðingin
verður sú, að sveppategundir, sem jafnaðarlega eru mein-
lausar og jafnvel gagnlegar líkamanum, gjörast hættulegir
sýklar. Slíks eru fleiri dæmi um bakteríur, sem lifa og eiga
heima innan líkamans, en geta breyzt úr nytsömum gerlum
í banvæna sýkla.
GJAFIR I HEILSUHÆLISSJÓÐ.
Ónefnd frú kr. 500. — Bjarni Sigurðsson frá Vigur kr. 200. —
Jórunn Pálsdóttir kr. 100. — Kærar þakkir.