Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 19
HEILSUVERND
Rasmus Alsaker,
læknir:
Gigt og
Höfundur þessarar greinar er lesendum HEILSUVERNDAR
kunnur, því að hans hefir oft verið getið Iiér í ritinu. Hann er
af norskum ættum en búsettur i New York og hefir starfað sem
læknir um 40 ára skeið. Frá upphafi var honum ljóst, að flestir
sjúkdómar stafa af rangri meðferð manna á líkama sínum og
gjörðist því fráhverfur lyfjum og ýmsum öðrum algengustu lækn-
ingaaðferðum stéttarbræðra sinna. Hefir hann ætíð í læknisstarfi
sínu kappkostað fyrst og fremst að útrýma orsökum sjúkdómsins
með náttúrlegum ráðum, sem miða að því að styrkja innri við-
námsþrótt líkamans og gera honum kleift að yfirbuga sjúkdóm-
inn. Sem dæmi má nefna, að við lungnabólgu hefir liann aldrei
notað nein lyf, og kveðst hann aldrei hafa misst lungnabólgu-
sjúkling, sem hlítt hefir hinum einföldu ráðum hans. — Rasmus
Alsaker hefir skrifað margar bækur um heilbrigðismál. Auk þess
hefir hann um tugi ára ritað veigamestu greinarnar í tímaritið
Health Culture (Heilsurækt) og svarað spurningum lesenda.
Greinin um mataræði ungbarna í Nýjum leiðum II er úr bók
eftir hann. Þá grein ætti hver verðandi móðir að lesa og allar
konur, sem eiga barn á fyrsta ári. Henni fylgja nokkrar lærdóms-
rikar frásagnir, sem lýsa árangrinum af réttri meðferð ungbarna.
Rasmus Alsaker leggur ríka áherzlu á rétt hugarfar. Hann er trú-
maður, og öll bera skrif lians því ljóst vitni, að hann er mann-