Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 21
HEILSUVERND
81
ágætur, en drekki menn mikið af honum í býrjun, er hætt
við að því fylgi auknar þrautir og óþægindi í bili. Drekka
þarf að minnsta kosti sex glös af volgu vatni daglega, að
morgni dags og á milli máltíða. Vatnsdrykkja er nauðsynleg
vegna meltingar og hægða og til að leysa upp skaðleg úr-
gangsefni og flytja þau á brott úr líkamanum.
Menn verða að gefa sér góðan tíma til að borða, tyggja
matinn vel og reyna að temja sér glaðlyndi.
Liðagigt er bólgur í liðamótum víðsvegar um líkamann.
Þetta er hræðilegur sjúkdómur, sem gerir menn karlæga
eða að krypplingum, stundum á bezta aldri.
Þennan sjúkdóm væri auðvellt að umflýja, ef menn vildu
veita athygli byrjunareinkennum hans og láta þau sér að
varnaði verða. Algengust þessara byrjunareinkenna eru
þau, að menn eru dálítið stirðir, er þeir vakna og byrja
að hreyfa sig á morgnana. Þessi stirðleiki getur komið
fram í hvaða liðamótum sem vera skal, t. d. í fingrum eða
höndum. Liðamótin eru ekki eins mjúk og liðug og þau
eiga að sér, og gengur ef til vill illa að beygja þau fyrst
í stað, en skjótlega liðkast þau, þegar menn eru komnir
á fætur og farnir að starfa eða hreyfa sig. Þetta má heita
óbrigðult merki um byrjandi liðagigt, og við þessari að-
vörun ætti enginn að daufheyrast.
Nokkru síðar fer að bera á eymslum og jafnvel verkj-
um í liðamótum fyrst á morgnana. En þetta hverfur einnig,
þegar kemur fram á daginn, svo að flestir halda, að engin
alvara sé á ferðum.
Næsta stigið er það, að liðirnir fara að bólgna, hvort
sem því fylgja verkir eða ekki. Þá er engum blöðum um
það að fletta, að um raunverulega liðagigt er að ræða.
Á fyrstu stigum veikinnar er auðvelt að stöðva hana og
lækna að fullu. Af fjörutíu ára reynslu sem læknir get ég
fullyrt þetta. Til mín hafa leitað sjúklingar með liðagigt
svo þúsundum skiptir, og hafi þeir hlítt ráðum mínum, veit
ég enga undantekningu frá því, að þeir hafi hlotið fullan