Heilsuvernd - 01.09.1953, Síða 26

Heilsuvernd - 01.09.1953, Síða 26
HEILSUVERND Um hvítlauk. Fyrir ævalöngu 'þekktu menn undramátt hvítlauks til lækninga og varnar gegn sjúkdómum. Um 3000 árum fyrir Krists burð notuðu Ba'býloníumenn hvítlauk til lækninga. Við byggingu pýramídanna í Egyptalandi var hvítlaukur keyptur fyrir stórfé verkamönnum til matar. Hippókrates hinn gríski, „faðir læknisfræðinnar“, notaði einnig hvít- lauk til lækninga og ritaði greinar um áhrifamátt hans. Og norskir víkingar og sjófarendur til forna fluttu með sér hvítlauk, sem eflaust hefir átt sinn þátt í að verja þá gegn skyrbjúgi. Rannsóknir síðari ára hafa staðfest fornar og nýjar hug- myndir manna um lækningamátt hvítlauks. Bakteríur, sem settar eru í hvítlaukssafa, lamast og hætta að hreyfast eftir þrjár mínútur. Ef hvítlaukssafa er dreypt í vökva með bákteríugróðri í, leggja bakteríurnar þegar á flótta út til allra hliða. Eftir tvær minútur eru sumar þeirra hættar að hreyfa sig, og að tíu mínútum liðnum eru þær allar orðnar hreyfingarlausar. Rannsóknir hafa og sýnt, að nýr safi er miklum mun áhrifameiri en safi, sem geymdur hefir verið í nokkra mánuði. Hér í ritinu hefir áður verið sagt frá því, hvernig stór og Ijót sár hermanna læknuðust á fáum dögum með hvít- lauksbökstrum. (2. árg., 4. h.). Þá hefir læknir einn í fr- landi, W. C. Minchin að nafni, notaði hvítlauk mjög til lækninga og birt árangurinn í enska læknablaðinu Lancet. 1 því tilefni fékk hann bréf frá fjölda lækna víðsvegar að, sem skýrðu honum frá því, að þeir hefðu einnig notað hvit- lauk með áþekkum árangri. Árið 1941 birti dr. Emil Weis skýrslu í The Medicál Record um tilraun á 22 sjúklingum með meltingarsjúk-

x

Heilsuvernd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.