Heilsuvernd - 01.09.1953, Page 29
HEILSUVERND
Ekki ex allt með felldu.
Orðin hér að ofan koma manni í hug, þegar litið er á
hina ægilegu útbreiðslu allskonar sjúkdóma og vanheilsu,
sem þjá mannkynið. Og þó er ástandið verra en flesta grun-
ar, því að fjöldi manna, sem virðast hafa hestheilsu, ganga
ekki ’heilir til skógar.
Þaðan af verst verður útkoman, þegar farið er að rann-
saka „hjörtun og nýrun“, það er að segja við krufningu á
,,heilbrigðum“ mönnum. Tímaritið Health Culture segir
frá því, að einn af þekktustu skurðlæknum Bandaríkjanna,
dr. W. W. Keen, hafi gert fjölda krufninga á föllnum banda-
rískum hermönnum í síðustu heimsstyrjöld. Hér var um að
ræða menn á bezta aldri og úrvalið úr þjóðinni að líkam-
legu atgervi og hreysti. I líkum hermanna undir tvítugs-
aldri fann læknirinn sjúklegar breytingar í hjarta, lifur
og nýrum í tveimur af hverjum fimm (40%). Af hermönn-
um um fertugt reyndist aðeins einn af hverjum tíu (10%)
laus við sýnilegar sjúklegar breytingar. Annar hver her-
maður á þessum aldri hafði kölkun í nýrum, lifur og æð-
um. Við venjulega læknisskoðun hefði ekki tekizt að finna
þessar breytingar.
Forseti líftryggingafélags í New York segir: ,,Af um-
sækjendum hefir 43% verið neitað um líftryggingu vegna
líkamlegra sjúklegra, einkenna, sem níu af hverjum tíu var
ókunnugt um að væru alvarlegs eðlis“.
Af þessu er ljóst, að sjúkdómar byrja í líkamanum
löngu áður en sjúklingurinn verður þess var eða nokkur
I safn’hauga þessa er nú tekið við sorpi frá 700.000 íbú-
um í Haag og tveimur nærliggjandi borgum. Áburðurinn
er mjög eftirsóttur, og er ekki hægt að fullnægja eftir-
spurninni, enda þ'ótt framleidd séu 160 þús. tonn á ári. Enda
er þetta mjög ódýr áburður, kostar sem svarar 11—12 ísl.
krónur hvert tonn. (WMM).