Heilsuvernd - 01.09.1953, Blaðsíða 31
HEILSUVERND
Auðhenni heilbrigðra 09 sjúhrii jurtn.
Heilbrigðisástand jurta má rannsaka á þann hátt að
blanda nokkrum dropum af safa úr jurtinni saman við eim-
að vatn og koparklórið í ákveðnum hlutföllum og láta
blönduna kristallast. Smásjárrannsókn leiðir síðan í ljós
mismun á niðurröðun kristallanna eftir því hvort jurtin
er heilbrigð eða sjúk. f safa úr heilbrigðri jurt mynda
kristallarnir reglulega geisla út frá einum miðdepii, en í
safa úr sjúkri jurt er kristallagerðin óregluleg (sjá mynd).
Rannsókn á safa úr jurtum, sem ræktðar eru með til-
búnum áburði annarsvegar og safnhaugaáburði hinsvegar,
sýna óreglulega kristallagerð úr þeim fyrrnefndu en reglu-
lega úr þeim síðarnefndu. M. ö. o.: Með tilbúnum áburði
rækta menn sjúkar jurtir, en með safnhaugaáburði heil-
brigðar jurtir.
M-yndin til vinstri er af kristölluðum safa úr sjúku tré og kræklóttu,
en myndin til hœgri af safa úr lieilbrigöu tré af sömu tegund. 1 safa
úr lieilbrigSa trénu mynda kristallarnir geisla út frá einum miðdepli,
en í safa úr sjúka trénu er niðurrööun kristallanna óreglúleg.