Heilsuvernd - 01.04.1958, Qupperneq 12

Heilsuvernd - 01.04.1958, Qupperneq 12
4 HEILSUVERND ugur, og var satt að segja mjög kvíðafullur um að ég 'hefði tekið að mér verk, sem ég væri ekki fær um að leysa af hendi. Fyrsta verk mitt hjá félaginu var það að fara á fund Ágústar. Hafði ég aldrei séð hann fyrr. Við fyrstu sýn var mér strax ijóst að í þessum hægláta og prúða manni bjó göfug og góð sál. Er skemmst frá að segja að á þess- um fyrsta fundi okkar leysti hann úr vandræðum minum og þekkingarskorti með þvílíkri kurteisi, lipurð og sam- viskusemi að betur var eigi á kosið. Þann tíma er við urð- um samferða, rækti hann störf sín í þágu félags vors í sambandi við byggingu Heilsuhælisins með alveg dæma- lausri samviskusemi og trúmennsku, og í því sambandi minnist ég þess er hann dvaldi sjúklingur í nokkrar vikur í hælinu fyrir austan, þá mjög þjáður, svo þjáður að oft gekk hann um gólf mestan hluta næturinnar án þess að njóta svefns eða hvíldar. En þrátt fyrir allar þessar þján- ingar fylgdist hann með gangi byggingarinnar og var sí- fellt að leiðbeina og benda á það sem betur mátti fara, og síðast í haust er hann lá í Landspítalanum þá helsjúkur, sendi hann mér boð að finna sig, var þá erindið aðallega það að fá fréttir um það hvort smíði baðdeildarinnar í Heilsuhælinu væri lokið. „Vertu trúr allt til dauða og ég mun gefa þér lífsins kórónu“. Það má með sanni segja að Ágúst hafi verið trúr í starfi allt til dauða, en þroski manns byggist á því hvernig vér leysum störf vor af hendi. Og ef við litum á það sem staðreynd að þroskaferill manns- ins sé ekki takmarkaður við þetta líf en nái útyfir gröf og dauða, og að þetta líf sé skóli, aðeins einn bekkur af ótal mörgum á þroskaferli vorum, þá er það sannarlega gleðilegt að minnast þess með hvílíkum ágæt- um Ágúst stóðst sitt lokapróf hér í heimi, prófið, sem við öll verðum að taka fyrr eða síðar. Og þó að við söknum hans er það huggun í harmi að vita það fyrir víst að nú líður honum vel og að framtið hans er tryggð um alla eilífð.

x

Heilsuvernd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.