Heilsuvernd - 01.04.1958, Side 25
HEILSUVERND
17
tilraunadýrin fullkomlega heilbrigð og sjúkdómalaus, en
á fæði áþekku því, sem vestrænar þjóðir nota, verða þau
að bráð samskonar sjúkdómum og þær, að krabbameini
ekki undanskildu.
Að margara dómi eru þetta einhverjar merkilegustu nær-
ingartilraunir, sem nokkru sinni hafa verið gerðar. En því
miður virðast læknavísindin ekki hafa gefið þeim þann
gaum sem skyldi, og á þær eða niðurstöður þeirra er ekki
minnst í þeim læknisfræðibókum, sem ég hefi lesið. Þó
er getið þar um McCarrison og frá því sagt, að hann hafi
aldrei séð botnlangabólgu í Hunzalandi þau 9 ár, er hann
starfaði þar sem læknir, enda þótt landsmenn fái þann
sjúkdóm, eins og annað fólk, ef þeir dvelja erlendis og
taka upp mataræði vestrænna þjóða. (Frá þessu var sagt
í Heilsuvernd fyrir nokkrum árum).
I ljósi þessara tilrauna og út frá athugunum á heilsu-
fari ýmissa afskekktra þjóða eða þjóðarbrota, sem búið
hafa við frumstæða lífshætti, virðist mér varla komizt hjá
því að álykta ,að einfalt, náttúrlegt mataræði, ásamt heil-
næmum lífsháttum að öðru leyti, sé öruggasta — og senni-
lega eina — leiðin til þess að öðlast fullkomna heilbrigði.
(Niðurlag í næsta hefti).