Heilsuvernd - 01.04.1958, Blaðsíða 29

Heilsuvernd - 01.04.1958, Blaðsíða 29
HEILSUVERND 21 átta manns, borðstofa og búningsherbergi. Eitthvað fylgd- ist ég með samtalinu, því mér til mikils hugarléttis segist pabbi, „sjálfur ætla að hafa hann Lokk hennar Krist- mundu í taumi“. Innan stundar hljóðnaði í baðstofunni, allir voru riðnir úr hlaði, nema mamma, sem allan guðs- langan daginn var í önnum við matseldina frammi í eld- húsi. Nokkru síðar kom hún inn með mat, en ég sagðist ekki hafa lyst á honum. En sannleikurinn var, að ég gat ekki opnað munninn til þess, og því síður lyft hendi. Hvarf hún þá aftur til búverka, en mér tókst um leið að leyna ástandi mínu. Um kvöldið gat ég loks sezt upp í rúminu og lyft hendi að munni og eitthvað borðað. Var ég svo vist sofnuð er fólkið kom heim úr skemmtiferðinni. Morguninn eftir féll lífið aftur í sínar daglegu annir, allir hurfu til verka, nema ég hélt til næstu vikur í rúm- inu. Loks fór ég að geta höndlað blýantinn og draga upp myndir sem í huganum sveimuðu, og þá liðu dagarnir fljótar, og svo fór ég að geta fært mig í fötin og farið á kreik. Dag nokkurn seinna um sumarið, var öllu hrossastóðinu smalað heim. Pabbi ætlaði að selja tryppi á markað. Hann segir við mig: „Ætli það verði ekki réttast að þú seljir hann Lokk þinn? Þú verður víst aldrei maður til þess að njóta hans sjálf hvort sem er, og lítil ánægja fyrir þig er að sjá hann alltaf undir öðrum.“ Ég játti því, því ráð pabba voru ætíð sönn og rétt. Var nú Lókkur minn teymdur út úr stóðinu með mark- aðstryppunum ásamt móður sinni, Toppu. Mig langaði að halda í tauminn á meðan hann var járnaður, en gafst fljótt upp, því hann varð ólmur og vildi ekkert með þess háttar samskipti hafa. Eftir dálitlar stimpingar fékk hann samt skeifur eins og hin tryppin. Og síðan var haldið af stað. Ég stóð norðan undir hlöðuveggnum og horfði á eftir hópnum inn þjóðveginn, mjallhvíti lokkurinn, sem blakti í takt við brokk og höfuðhreyfingar folans mins, veifaði

x

Heilsuvernd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.