Heilsuvernd - 01.04.1958, Page 19

Heilsuvernd - 01.04.1958, Page 19
HEILSUVERND Björn L. Jónsson: Hvað segja læknavísindin um náttúruiækningastefnnna? Erindí flutt á fundi í Náttúrulækningafélagi Reykjavíkur 5. marz 1958. Á síðustu árum hefi ég oft verið spurður að því, hvort nám mitt í læknisfræði hafi breytt viðhorfi mínu til nátt- úrulækningastefnunnar. I kvöld ætla ég að leitast við að svara þessari spurn- ingu að nokkru. Endanlegt svar verður þetta ekki, og það af þeirri einföldu ástæðu, að námið hefir ekki veitt mér færi á að dæma um gildi þessarar stefnu eða bera saman árangurinn af venjulegum lækningaaðferðum og aðferðum náttúrulækna. Við skulum byrja á því að rifja upp fyrir okkur, í hverju náttúrulækningastefnan er fólgin. Kjarni hennar er þetta: 1. Réttir lifnaðarhættir tryggja mönnum allt að því full- komna heilbrigði. 2. Rangir lifnaðarhættir eru meginorsök sjúkdóma. 3. Flesta sjúkdóma má lækna, séu þeir ekki kornnir á of hátt stig, án lyfja eða skurðaðgerða, með viðeig- andi mataræði, hæfilegri hreyfingu, ljósi, lofti, böð- um o. s. frv. Hvað segir nú læknisfræðin um þessi boðorð? Það er kunnara en frá þurfi að segja, að læknavísindin hafa tekið stórstígum framförum á síðustu áratugum. Þekking og skilningur á hinni margbrotnu líkamsvél og störfum hennar eykst með hverju árinu sem líður. Þrot- laus leit er gerð að eðli og orsökum sjúkdóma, því að öll- um er ljóst, að þekking á þeim er eina örugga leiðin til að geta ráðið niðurlögum sjúkdómanna. Ný sannindi koma fram í dagsljósið, kennslubækur verða úreltar og eru gefn-

x

Heilsuvernd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.