Heilsuvernd - 01.04.1958, Side 35

Heilsuvernd - 01.04.1958, Side 35
HEILSUVERND 27 rannsóknir á töðu t. d. sýni gerfiræktaða töðu eins góða. Þetta má vel vera, en þau tæki ná bara ekki þeim líf- efnum, sem um er að ræða. Þetta mætti sennilega sýna og sanna með fóðurtilraununum á hvorri töðunni fyrir sig eða öllu heldur báðum hlið við hlið, sem stæði í fleiri ár, en það hefir mér vitanlega aldrei verið gert. Sleppum nú þessu. Ég var að hugsa um að skrifa Jónasi Kristjánssyni, mínum gamla lækni og kunningja, en veit ekki vel hvar hann er niður kominn. Ég bið þig að bera honum kæra kveðju frá okkur, og ef til vill lofarðu honum að sjá þetta blað. Með beztu óskum. Gísli Helgason. Svar við bréfi Herra Gísli Helgason, Skógargerði. Kæri fornvin! Úlfur kollega sýndi mér bréf þitt, mér til mikillar ánægju. Það varð að samkomulagi að ég svaraði bréfi þínu, og það geri ég hér með. Innilega þökk fyrir bréfið, það gladdi mig að lesa svo greinagott bréf. Þó ég fallist ekki að öllu leyti á allt, sem þú segir í því, þá er ég þér sammála um margt, og þér þakklátur fyrir skilning þinn á því máli, sem snertir oss jarðarbúa mest allra mála, það er manneldið. Það er eldgömul umsögn, að maðurinn er það sem hann etur. Ef hann lifir á dauðri eða deyddri fæðu bíður hann kvöl og kröm af hverskonar tegund og lífið verður ömurlegt og kvillasamt. Ef þú hinsvegar velur þér lifandi fæðu er þér búin velferð gegnum lífið. Sjúkdómar eru engin tilviljun, þeir eru hrein afleið-

x

Heilsuvernd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilsuvernd
https://timarit.is/publication/1615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.