Fréttablaðið - 18.12.2021, Side 42
Jólaappelsínuöndin hefur
verið fastur gestur á jóla-
borðinu hjá Eddu Jensdóttur
frá því að hún kynntist
honum fyrir fjörutíu árum
hjá vinkonu sinni.
jme@frettabladid.is
Vinkonurnar bjuggu á sínum tíma
í sama húsi á Seltjarnarnesi. „Sjálf
átti ég líka uppskriftabók frá Dan-
mörku með sams konar uppskrift
og hef ég nýtt mér hana gríðarlega
mikið,“ segir Edda.
Jólaappelsínuöndin var fastur
liður hjá Eddu og fjölskyldu henn-
ar í um fimmtán ár og gerði mikla
lukku hver einustu jól. „Jólaöndin
er ekki lengur hefð hjá okkur og
núorðið er ég vön að bjóða upp
á rjúpu í matinn á aðfangadag í
staðinn. Þegar rjúpan fæst ekki
er öndin alltaf vænlegur kostur,
enda sívinsæl og mikill jólabragur
yfir henni. Svo er klassískt að vera
með hamborgarhrygg á jóladag og
hangikjöt annan í jólum. Við erum
ekki mikið „hefðarfólk“, og förum
ekkert í mínus yfir því að eitthvað
fáist ekki.
Það hefur aldrei verið vandamál
að fá endur fyrir jólin. Ég kaupi
danskar peking-endur. Ein önd er
nóg fyrir svona þrjá til fjóra.“ Edda
segir algert lykilatriði að vera með
heimagert rauðkál með öndinni,
en uppskriftin er ættargersemi og
kemur frá móður hennar. „Ég fer
samt aldrei eftir skrifaðri upp-
skrift. Ég bara sker niður rauðkál
og steiki upp úr smjöri. Svo helli
ég brúnu lagerediki yfir og set
púðursykur. Stundum skvetti ég
smá balsamediki með. Þá finnst
mér mjög jólalegt að bæta við 1-2
heilum anísstjörnum eða kanil-
stöng. Kryddið gefur ómótstæði-
legan hátíðarblæ. Svo salta ég og
pipra eftir smekk.
Brúnaðar kartöflur eru nauð-
synlegar og jólaölið, þetta í brús-
anum með bláa miðanum. Jólaölið
er líka frábært til að elda pottrétti
upp úr, í staðinn fyrir stout- eða
porterbjór.
Ef ég næli mér í rjúpu fyrir jólin
reyni ég að elda appelsínuöndina
stuttu fyrir jól. Hún er hátíðleg
og ilmurinn fyllir húsið. Ann-
ars er hefð hjá fjölskyldunni að
leigja bústað í nóvember og elda
appelsínuönd.
Við eigum þrjá syni og dóttur.
Synirnir eru orðnir miðaldra karl-
ar í dag og dóttirin býr í Noregi. Í ár
komst ég yfir skoskar rjúpur fyrir
jólin. Ég kaupi þær snemma til
að lenda ekki í vöruskorti. Þessar
skosku eru alveg jafngóðar og
þessar íslensku, maður tekur bara
haminn af áður en þær eru eldaðar.
Það getur nefnilega komið smá
brækja af fitunni ef hún er ekki
hamflett. Annars eru þær alveg
eins og okkar rjúpur.“
Jólaappelsínuönd
uppskrift miðast við eina önd
Fylling
1 poki niðursneiddir þurrkaðir
ávextir (epli, sveskjur, apríkósur og
perur. Fæst t.d. í Hagkaupum).
Skerðu smá af fitu af öndinni og
geymdu. Öndin er næst þerruð og
salti og pipar stráð inn í og utan
á. Fyllingunni er troðið í holið og
lokað fyrir með tannstönglum eða
bandi bundið um leggina. Leggið
öndina, með bringurnar upp, í
eldfast mót með loki og eldið við
250°C í 15 mínútur. Lækka hitann
niður í 190°C og elda í um 1 til 1,5
tíma með lokinu á. Það er lykilatriði
að ausa soðinu sem lekur af henni
yfir kjötið til að halda öndinni safa-
ríkri og svo hún fái stökka puru.
Sósan
Gott er að gera sósuna á meðan
öndin er í ofninum.
1. skref
1 háls af önd
1 laukur, saxaður
3 dl vatn
Steinselja
Rósmarín
Salt og pipar
Brúna hálsinn og lauk í smá smjöri.
Bætið við 3 dl af vatni, steinselju og
rósmarín, salt og pipar og sjóðið.
2. skref
Soð af önd
4 msk. hveiti
Þegar öndin er steikt skal hella
soðinu af henni í pott, leyfa því að
botnfalla og fleyta smá af fitunni
ofan af. Skildu þó eftir næga fitu til
að drekka í sig 4 msk. af hveiti sem
er stráð yfir og látið botnfalla ofan
í soðið. Síðan er þessu hrært saman
saman og soðið varlega ásamt
soðinu af hálsinum.
3. skref
1 appelsína
1-2 dl rauðvín
Appelsínusafi eða Grand Marnier,
smá skvetta ef vill
Svo er það aðalgaldurinn. Börkur
af einni appelsínu, helst lífrænni,
annars þveginni, er sneiddur af
og skorinn í fína strimla. Passa að
ekkert hvítt komi með. Rauðvín
sett í pott og appelsínubörkurinn
með og látið sjóða í nokkrar
mínútur. Þetta má bragðbæta með
nýkreistum appelsínusafa eða ekki
verra, Grand Marnier. Þetta er svo
sigtað og sett út í soðsósuna. Einnig
má sleppa þessu með appelsínuna
og rauðvínið og setja væna skeið
af rifsberjahlaupi og gráðosti út í
sósuna.
Með þessu er best að bera fram
brúnaðar kartöflur, heimagert
rauðkál og steikt epli. Epli eru þá
skræld, skorin í báta og steikt með
timían og smá hlynsírópi, upp úr
andafitu sem skorin er innan úr
öndinni áður en hún er elduð. ■
Appelsínuönd
gefur jólakeiminn
Edda Jensdóttir notast við fjörutíu
ára gamla uppskriftabók þegar hún
eldar appelsínuöndina.
Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Appelsínuöndin er hátíðleg og falleg á jólaborðið. Edda mælir sérstaklega
með að nota Peking-önd. Fréttablaðið/getty
HLÝJAR JÓLAGJAFIR
OPIÐ ALLA DAGA FRAM AÐ JÓLUM
Verslun | Snorrabraut 56, 105 Reykjavík | 588 0488 | Vefverslun á Feldur.is
4 kynningarblað A L LT 18. desember 2021 LAUGARDAGUR