Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1985, Side 36

Strandapósturinn - 01.06.1985, Side 36
komið í húsaskjól. Ár og lækir uxu gífurlega fljótt. Bjarnarfjarðará flæddi yfir meginhlutann af láglendi dalsins, en lækir í fjallahlíðum beljuðu fram straumþungir með fossaföllum og hlóðu upp háum aurgörðum. Kári bóndi var við sjóróðra þetta vor norður á Gjögri og ekki enn kominn heim úr veri, en tveir elstu bræðurnir, Helgi og Magnús, voru í vinnu yfir í Sunndal, en Sunndalur er næsti bær við Goðdal, sunnan undir Tungukotsfjalli. María var því ein heima með fimm börn sín, öll nokkuð stálpuð. Þegar veður fór hríðversnandi þennan þriðjudagsmorgun og orðið ófært vinnuveður, þá vildu þeir Goðdalsbræður umfram allt komast heim til móður sinnar og systkina, þar sem ekki var fyrir að vita nema þau þyrftu hjálpar við, sem og raun varð á. Milli bæj- anna Goðdals og Sunndals eru tvær ár og voru þær nú báðar orðnar langt um ófærar og óreiðar. Þeim bræðrum var því nauð- ugur einn kostur að ganga fram í heiði og henda þar snjóbrýr yfir árnar. Þrjú stór gil renna í Goðdalsá og voru nú ófær með öllu. Helga, sem þá var tæpra sextán ára að aldri, var þetta allt ljóst og einnig hvað leiðin var löng og krókótt. Hann lét því Magnús bróð- ur sinn, sem var rúmu ári yngri, verða eftir í Sunndal, en hélt einn á stað heimleiðis, fyrri hluta dags. Þá var enn rokveður og gífurleg úrkoma. Þegar Helgi náði heim til sín að Goðdal, nokkru eftir miðjan dag, mun hann hafa verið orðinn mjög þreyttur af langri göngu í illviðrinu. Heima voru þá aðeins fjögur systkini hans, sem sögðu honum þau tíðindi, að móðir þeirra hefði farið með kvíánum snemma morguns, ásamt bróður þeirra tíu ára gömlum, er Sigurður hét, og var hvorugt komið aftur. Að fengnum þessum fréttum hélt Helgi af stað niður dalinn að leita móður sinnar. Hann bjóst við að hana væri helst að finna þar sem skjóls væri að vænta, en það var niður hjá svokallaðri Goð- dalshyrnu. Goðdalsá flæddi yfir allar eyrar, upp að hlíðarfæti. Helgi hraðaði för sinni sem mest hann mátti. Niður hjá Hyrnunni fann hann kvíaféð, móður sína og bróður, svo sem hann hafði vænst. Móðir hans var þá nær dauða kominn af kulda og vosbúð, þar sem hún hafði tínt utan af sér fötin eitt af öðru drengnum til skjóls, enda var hann allhréss eftir ástæðum. Hvorki munu föt 34
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Strandapósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.