Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1985, Page 54

Strandapósturinn - 01.06.1985, Page 54
að eins konar verndarhring umhverfis bæinn, en þann hátt höfðu bæði galdramenn og aðrir á gagnvart illum öndum, m.a. Lilith. Því kemur til álita, að Guðmundur hafi átt að vinna það afrek að stugga burtu sjálfri drottningu undirheima. Hefur hann því ekki verið eftirbátur Jóns helga Ögmundarsonar, sem læknaði Svein nokkurn Þorsteinsson, en hann „ærðist að skrímsli nokkru, honum sýndist það vera kona helzti væn“ (Bisk. Bmf., I. bls. 170). Fróðárundur eru einna þekktust yfirnáttúrulegra atburða í forn- ritum (Isl. fornr., IV. bls. 137 —152). Þau hófust með komu suður- eyskrar konu, Þórgunnar að nafni, að Fróðá á Snæfellsnesi. Hún virðist helzt hafa átt að vera norn, sem var hætt allri iðkun fornra fræða og tryggði sér sáluhjálp með því að fá leg á helgistað. Dæmi um slíka trú eru nokkur finnanleg. Það bar til í Fróðárundrum, að selshöfuð kom upp úr eldgróf í skála og horfði upp á rúmtjaldið á rúmi Þórgunnar, en hún var þá látin og hafði lagt áherzlu á, að allur rekkjubúnaðurinn yrði brenndur. Ekki er ósennilegt, að sá, sem þarna var á ferðinni, hafi átt að koma áður í rúm þetta, t.d. á helztu samkomudögum norna og meistara þeirra, 1. maí (beltene) eða 1. nóvember (samain eða hallowe’en). Þetta gæti verið skýring þess, að Þórgunna lagði jafnmikið kapp á að rúmbúnaður yrði brenndur og raun bar vitni, enda hefur hún vafalítið ekki kært sig um að aðrar konur fengju heimsókn af þessu tagi. Vafasamt verð- ur að telja, að fólk hafi þá gert sér grein fyrir sóttvörnum. Vinnu- kona ein barði selshausinn með lurk og einnig vinnumaðurinn, en selurinn gekk upp við hvert högg. Þá hljóp Kjartan bóndasonur til, ungur sveinn, og laust selinn með járndrepsleggju mikilli, og gekk hann þá niður. Hefur sleggjan væntanlega verið úr járni, en það var víða talið hin bezta vörn gegn öllu illu. Þetta getur skýrt árang- ur Kjartans. Síðar kom rófa upp úr skreiðarhlaða á bænum,“ vax- in sem nautsrófa sviðin; hún var snögg og selhár.“ Hún mun hafa tilheyrt sama anda, enda var það venja norna að kyssa óæðri enda meistarans, er hann mætti til leiks, og sýna honum virðingu sína á þennan hátt (smánarkossinn). Meistarinn hefur verið að rukka um þennan virðingarvott í hið síðara skiptið og látið réttan líkams- hluta ganga á undan. Hinn síðari maki Lilithar var á ferðinni í 52
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.