Strandapósturinn - 01.06.1985, Blaðsíða 85
einn seinfær stirðbusi fyrir í búðinni. Má geta nærri hvort starf
Baldvins var ekki fullmikið starf fyrir einn mann, bæði verzlunin
og peningaskipti og fleira er ferðin útheimti, því að allir orguðu á
Baldvin í senn sem von var, þar allir höfðu jafnnauman tíma. Það
var ótrúlegt hvað hr. Baldvin gat áttað sig á öllu innan um þenn-
an fólksfjölda. Þess mætti og geta að menn fengu nokkrum cent-
um meira fyrir pundið eftir að Baldvin byrjaði að víxfa (pund sterl-
ing f8 krónur danskar), en áður meðan fyrrverandi víxlari réði
einn. Ekki vildi hr. Baldvin reikna sér neitt fyrir fyrirhöfn sína við
peningaskiptin, heldur reikna allt upp á eyri og cent. Vissi ég vel
um það, þar ég var viðstaddur þegar hann var að reikna út mynt-
breytinguna áður kom til Skotlands. Annars get ég ekki borið hr.
Baldvin annað en allt hið bezta yfir höfuð á leiðinni, frá því við
fórum frá Reykjavík og þar til að við komum til Winnipeg, og ég
þekki ekki hver færari myndi en hann til að hafa þennan starfa á
höndum og leysa hann jafnvel af hendi, því að margur myndi
verða argur og uppstökkur við margt er öfugt vill verða, enda
vandi að gera öllum rétt. Alít ég að það sé einn hinn bezti kostur
Allan-línunnar meðan Baldvin er leiðbeinandi vesturförum og
ættu allir, sem það er mögulegt og annars hafa fyrirhugað utan-
för, að kosta kapps um að fara með þeirri sömu ferð, sem Baldvin
fylgir. En því miður er Norðlendingum oft bannað að grípa það
tækifæri vegna íss og óáranar, enda passar línan oft að hafa svo lít-
il skip í förum, að þau geti ekki tekið alla þá sem þó eru ferðbúnir
og verða því að bíða og bíða sér til margfalds skaða í fjármuna-
legu tilliti. Viðvíkjandi meðferð á fólki get ég ekki annað sagt en
hún væri heldur góð. Fólk ekki mjög veikt yfir höfuð og börn því
nær síður, enda fengum við aldrei vont veður. Læknir var á báð-
um skipunum og lyfjahjálp ókeypis. Viðvíkjandi læknunum skal
þess getið, að báðir virtust þeir skylduræknir menn og þó einkum
sá er fylgdi okkur (yfir) Atlantshafið og einatt fór um allt skipið á
vissum tímum til að vita um heilsufar manna og vildi allt gera
sjúklingum til léttis er hann gat. Hann bólusetti alla þá er ekki
höfðu verið bólusettir á síðustu sex árum. Heildarskoðun á fólki
átti að fara fram tvisvar á leiðinni, þegar fólk sté á skip í Glasgow
og áður en að landi kom í Quebec, en ekki vissi ég um að fyrir því
83